Veðrið - 01.04.1958, Qupperneq 6
eftir það kólnaði heldur og veður urðu óstöðug. Aðfaranótt 1!). des. gekk stór-
viðri af norðaustri yfir Norðausturland og olli miklum sjávargangi við Eyja-
Ijiirð. Meðalhiti mánaðarins var lítið eitt undir meðallagi og úrkoma var um
meðallag.
í heild varð árferði mjög gott í flestum liéruðum. Skaðaveður voru að vísu
nokkur í janúar, en fátíð eftir það. Sumarið var sólríkt og heyþurrkur víðast
góður, hel/.t varð vatnsskortur til baga á Norðausturlandi.
Meðalhiti ársins varð liærri en i' meðalári (1901 — 1930). Unt 1950 komu
fjögur ár, 1949—1952, sem voru kaldari en verið hafði um langt árabil, en
síðan hefur ekki orðið framhald á þeirri þróun. — Án þess að nokkru verði
spáð um framtíðina, er ekki hægt að segja, að ennþá sé lokið því hlýindaskeiði,
sem nú hefur staðið siðan um og eftir 1920.
Úrkoma var víðast nokkuð meiri en 1901 — 1930, en hins vegar ntjög svipuð
og á síðustu áratugum. Á Norðausturlandi var hún þó lítil.
Sólfar mun hafa verið í meira lagi tun land allt, og ollu því mest heiðríkj-
urnar í júní og júlí.
Hér á eftir fara nokkrar bráðabirgðatölur frá fáum veðurstöðvum. í svig-
um er prentað meðallag margra ára á stöðinni. I’að skal tekið fram, að úrkomu-
meðallög eru miðuð við tímabilið 1931 — 1955, og eru allmikið önnur en þau,
sem birt voru í síðasta hefti Veðnrs og miðuð við tímabilið 1901 — 1930. Voru
þau að ýmsu leyti óáreiðanlegri, þvf að samfelldar úrkomumælingar voru ekki
gerðar í Reykjavík og á Akureyri á því árabili.
Hiti Úrkoma
u
> 3 5 > r3
ZT U U S 3
V Bí < £ £ GO M V Bi < £ is cn M
Janúar .... 1.1( 0.6) 0.8(—2.5) 0.7 132 (92) 47 (42) 116
Febrúar .... —1.5( 0.2) —3.4(—2.0) -2.9 27 (63) 80 (40) 30
Marz 0.3( 0.5) —1.5(—1.7) -0.2 23 (65) 56 (44) 33
Apríl 5.0( 2.G) 4.5( 0.8) 4.4 63 (49) 19 (32) 23
Maí 7.0( 6.3) 6.1( 5.0) 5.0 96 (39) 24 (21) 19
Júní 9.9( 9.6) 8.8( 9.3) 7.8 32 (39) 12 (22) 7
Júlí 12.0(11.3) 10.7( 10.9) 9.4 30 (51) 19 (35) 23
Ágúst 11.3(10.6) 10.7( 9.2) 10.5 72 (71) 30 (40) 24
September . . 7.1( 7.8) 6.0( 6.8) 6.1 26 (73) 45 (50) 19
Október . . 4.7( 4.3) 2.9( 2.5) 3.2 157 (92) 81 (58) 35
Nóvember . . 3.0( 1.4) 2.0(—0.5) 1.9 59 (80) 54 (43) 29
Desember . . —0.4( 0.0) —1.7(—1.9) -1.5 97 (82) 60 (53) 43
Árið 5.0 (4.5) 3.8 (3.0) 3.1 815 (796) 527 (480) 401
4