Veðrið - 01.04.1958, Síða 12
hann nánar og tölum um kaldan loftmassa, ef yfirborð það, sem hann berst
yfir, er hlýrra en lofthitinn og hlýjan loftmassa, ef yfirborðið er kaldara en
lofthitinn. En hiti og rakamagn loftsins breytist smám saman, fyrst í neðstu
loftlögum, en brátt gætir breytinganna hærra uppi. Fer svo jafnan að lokum,
að loftmassinn glatar flestum af sínum upprunalegu einkennum og er þá oft-
ast kominn langt burt frá „æskuslóðunum."
í síðasta hefti þessa tímarits lýsti Borgþór H. Jónsson framrás loftmassanna
og hringiðu þeirri, sem þeir mynda. Við skulum nú athuga nánar eiginleika
þeirra loftmassa, sem berast hingað með hringiðu þeirri, sem flestir kannast við
undir nafninu lcegð á Greenlandshafi.
Eiginleikar loftmassanna eru breytilegir eftir árstíðum, en í þessum greinar-
stúf eru ekki tök á að taka fyrir langt tímabil enda hefur lítið verið rannsakað
hér á landi um eiginleika einstakra loftmassa. Við verðum því að láta okkur
nægja að skoða lítillega loftmassa þá, sem áttu hér leið um sumarið 1955. Eru
sunnlendingum í fersku minni þau endemi, sem þá yfir gengu, og enn í dag eru
afleiðingar veðráttunnar það sumar á dagskrá hjá Alþingi og blöðum.
Votviðrasumarið 1955 lögðu lægðir tíðast leið sína N og NA Grænlandshaf og
ollu vætutíð á S og SV-landi, en þurrviðrum á N og NA-landi. Mynd I sýnir aðal-
brautir þeirra loftmassa, sem bárust hingað með lægðum þessum. (Á kortið eru
teiknaðar jafnliitalínur fyrir yfirborð sjávarins í júlí og ágúst). Nú er það
ýmsum erfiðleikum háð að rekja braut loftsins langt aftur í tímann einkum
yfir sumarmánuðina, þegar vindar eru að jafnaði hægir. Samt má oftast með
sæmilega góðri nákvæmni rekja braut loftsins 36—48 stundir aftur í tímann.
Nú ber ekki svo að skilja, að loftmassarnir þræði brautir þessar nákvæmlega
liverju sinni, lieldur er liér átt við aðalbrautir þeirra. Brautir I og II eru leiðir
köldu loftmassanna, sem berast hingað, þegar lægðir fara norður Grænlands-
haf. Landfræðilega eru þeir af sama uppruna, hafa hlotið „uppeldi" sitt yfir
ís- og fannbreiðum heimsskautasvæðanna. Hins vegar hefur hvor sina ferða-
sögu að segja þegar hingað kemur. Sá hinn fyrri hefur farið tiltölulega stuttan
veg yfir úthafið en aftur á móti er braut hans þvert á jafnhitalínurnar í sjón-
um og hitamismunurinn mikill á þeirri leið eða um það bil 10° C milli Græn-
landsstrandar og SV-fslands. Loftmassi sá, sem lagt hefur leið sína suður
fyrir Grænland (II), liefur farið langan veg yfir úthafið, áður en hann kemur
inn yfir landið. Vestan við Grænland liggur leið hans þvert á jafnhitalinur
sjávarins, en eftir að hann beygir til NA, er braut hans því nær samsíða jafn-
hitalínunum. Upphitun þessa loftmassa er því ekki eins ör yfir hafinu og á
sér stað í fyrra tilfellinu.
Brautir III og IV eru leiðir hlýju loftmassanna sein berast hingað, þegar lægð-
ir fara norður Grænlandshaf. Loftmassar þessir hafa mótazt við mjög svipuð
skilyrði þ. e. í háþrýstisvæði þvf, sem oftast er yfir N.-Atlantshafinu á sumrin,
Azoreyjahæðinni. Stöku sinnum er þó um að ræða loft, sem mótazt hefur yfir
meginlandi N.-Ameriku, en borizt á haf út og síðan norður með austurströnd
Bandarikjanna (braut III).
En loftmassar þessir hafa mjög svo svipaða eiginleika, einkum í hærri loft-
10