Veðrið - 01.04.1958, Side 21
hugunar- og útsendingartíma háloftaskeyta, og þegar útsendingar eru fleiri sam-
timis en loftskeytamenn á verði, eru þær sendingar, sem helzt þola bið, teknar á
segulband, en svo skrifaðar upp jafnskjótt og tími vinnst til.
Nú hefur verið ákveðið að' hætta útsendingu veðurfregna með loftskeytum
frá flestum Evrópulandanna frá áramótum 1959 og 1960, en taka í þess stað upp
sjálfvirka fjarritvélasendingu og móttöku. Kostir sjálfvirkrar móttöku eru þeir að
meiri afköst fást nteð minna starfsliði. Mikil og lýjandi móttaka eftir heyrn liverf-
ur úr sögunni að mestu, en vinnan verður fólgin í stillingu og gæzlu tækja.
En reynzlan hefur sýnt að þegar móttökuskilyrði eru léleg, þá fæst ekki jafngóður
árangur og með loftskeytamóttöku æfðra manna.
Undirbúningur er þegar hafinn til að annast hina sjálfvirku móttöku hér í
deildinni. Stefnuloftneti fyrir Evrópumóttöku hefur verið komið upp og athugað
með kaup á nýjum tækjum, sem nauðsynleg eru vegna breytinganna.
Hitahvörf
í neðstu lögum lofthjúpsins lækkar liitastigið að jafnaði með vaxandi hæð.
Undantekningar verða þó oft frá þessari regiu, og hlýnar þá upp á við. Slík lög
eru venjulega fremur þunn, og er kallað að þar séu hitahvörf. Þau eru oft við
yfirborð jarðar, en þó stundum ofar.
Á björtum og kyrrum sumarnóttum verður t. d. oft frost í lautum og dæld-
um, þegar ekki frýs nokkrum metrum ofar á hólum og hæðum. Þess vegna velja
menn kartöflugörðum stað uppi í brekkum og holtum, ef þess er kostur. Hita-
hvörf, sem þannig verða til á næturnar undir haustið geta orðið 4 til 7° C.
Miklu meiri hitahvörf geta orðið að vetrarlagi í stillum, þegar snjór er á
jörðu. Og í þannig veðurlagi koma mestu frostin, bæði hér á landi og annars
staðar. Verða flugmenn oft varir við þetta, þegar þeir hækka og lækka flugið.
Einhver mestu hitahvörf, sem ég hef heyrt getið um, mældi íslenzkur flug-
maður nú í vetur. Sunnudaginn 22. febrúar flaug Björn Guðmundsson, flug-
stjóri á Sólfaxa, skymaster flugvél Flugfélags fslands, til Meistaravíkur. Á flug-
vellinum þar var frostið 33° C um hádegið, en á sama tímar var Sólfaxi í 600
m hæð, og þar uppi mældist frostið aðeins 4' C. Þarna hafa því verið 29 stiga
hitahvörf. Hefur nokkur, sem les þessar línur, heyrt um eða mælt meiri hitahvörf?
Það er ekki óalgengt, að frostið í Meistaravík sé svona mikið eða meira á
veturna, því að þar eru oft stillur. Hitt mun vera sjaldgæfara, að á sama tíma
sé svona hlýtt litlu ofar. Hið tiltölulega háa hitastig þarna uppi i þetta skipti,
var vegna þess að vestan-átt var á og loftið þar hefur komið ofan að með hinu
mikla lofthafi, sem þarna hefur steypzt austur af Grænlandsjökli. Vegna aukins
loftþrýstings hlýnar loftið, um 10° C á hvern kílómetra, sem það streymir nið-
ur, svo að í þriggja km hæð hefur hitastig þess verið 4- 28° C, en það er al-
gengt i þeirri hæð á þessum slóðum á veturna.
Jónas Jakobsson.
19