Veðrið - 01.04.1958, Side 25
Þegar hér er komið, er hægt að færa allar þessar tölur a íslandskort. Vegna
þess að ársúrkoman við sjávarmál breytist tiltölulega jafnt frá einu héraði til
annars, er nú unnt að áætla hana á hverjum einasta stað á landinu, teikna úr-
komulínur, t. d. fyrir 500 mm, 1000 o. s. frv. Þegar því er lokið, má svo finna
„raunverulega" úrkomu á liverjum stað á landinu, út frá hæð landsins yfir sjó.
Með þessari aðferð hef ég teiknað kort af meðallagsúrkomu á Islandi yfir árið.
Á svo litlu korti er þó ekki unnt að sýna úrkomuna eins nákvæmlega og ástæða
væri til á stærra korti, þá yrðu línurnar of þéttar og ruglingslegar. En í stór-
um dráttum kemur þó vel fram hinn mikli úrkomumunur héraðanna. Frá
Austfjörðum til Eyjafjalla liggur mesta úrkomubeltið, þar sem úrkoman verðuí
jafnvel meiri en 4000 mm á stórum svæðum. Önnur mestu úrkomusvæði eru
Hellisheiði, Hofsjökull og belti frá Langjökli til Skarðsheiðar og Esju, einnig
Snæfellsnes og hálendi Vestfjarða. Tiltölulega þurrt belti teygist frá Borgar-
firði syðra til Fljótsdalshéraðs, en þurrast virðist í dölum Norðurlands, einkum
í Suður-Þingeyjarsýslu. Allmikil úrkoma, 1000—2000 mm og sums staðar meiri,
er aftur á fjallgörðum Norðurlands og Vestfjörðum.
Þetta kort er svo til eingöngu byggt á úrkomumælingum, en vafalaust mætti
bæta það með ýtarlegri rannsókn á hinum víðtæku rennslismælingum, sem
gerðar hafa verið á síðustu árum.
MISVIÐRL
Gott dæmi um misviðri fann cg við 30. ágúst 1931 í gamalli vasabók. Ég
átti þá lítinn sumarbústað inni á Laugarási, þar sem nú er Dyngjuvegur 14, og
fór á hjóli til vinnu og úr í bænum. Oft tók ég eftir því, er ég hélt heimleiðis
að áliðnum sólskinsdegi, að á vissum stöðum á leiðinni var áberandi kalt og
hráslagalegt. Þessir staðir voru þrfr: Hjá Gasstöðinni, við brúna fyrir neðan
Lækjarhvamm og á Múlavegi í Laugadalnum, þar sem hann er lægstur. Hinn
30. ágúst kom ég heim um 20-leytið. Heima hjá mér, uppi á hæðinni, var þá
9 stiga hiti. Nú tók ég hitamæli og fór með hann niður að Laugarási, sem
stendur urn 15 m lægra. Þar var hitinn 8 stig. En á brúnni yfir Laugalækinn,
niðri í slakkanum, var hitinn aðeins 3.8 stig eða 5.2 stigum lægri en uppi á
hæðinni. Hæðarmunur mælingastaða er 20—25 metrar. Það kom líka oft fyrir á
fyrstu frostnóttum að haustinu, að kartöflugras lét á sjá fyrir næturfrosti niðri
f Laugadalnum, þótt ekki sæi á þvf uppi í ásnum. — Kalda loftið safnast fyrir
í dældunum, þegar kvöldar, og flýtur þaðan eins og vatn, en ósýnilegt, eftir
slökkum undan hallanum. Hið sama á sér að sjálfsögðu stað við Lækjarhvamm
og f Rauðarárslakkanum.
Þetta er mikilsvert atriði, þegar skrúðgörðum er valinn staður. Með einföld-
um hitamælingum má velja milli staða. Það getur haft býsna mikil áhrif á
veðurathuganir, ef hitamælar eru fluttir, þótt ekki sé nema fáa metra. Víða
erlendis eru miklar rannsóknir gerðar á misviðri og hitamun innan takmarkaðra
svæða. Nefnist sú fræðigrein míkró-meteórólógi eða míkró-klímatólógi, óþjál orð
og leiðinleg. J. Ey.
23