Veðrið - 01.04.1969, Side 17

Veðrið - 01.04.1969, Side 17
Daglegar hitabreytingar í 500 og 1500 rn hœð, október—desember 1968. austar og liél/t yfir Norðurlönduni fram um miðjan mánuðinn. Suðlæg vindátt var því ríkjandi þetta tímabil og yfirleitt hlýtt í veðri. Hlýjasti dagurinn var hinn 6., og mun þá hafa verið yfir landinu loft, sem komið var sunnan frá Mið- jarðarhafi. Upp úr miðjum má'nuðinum gerði mesta kuldakaflann, sem kom fyrir áramót. Hann fylgdi lofti, sem kom norðan af hafísbrciðunni undan strönd- um Norðaustur-Grænlands. Eins og að jafnaði, þegar norðanátt stendur nokkra daga í einu, barst að kalt loft, ekki aðeins næst jiirðu, lieldur ekki síður ofar. En heimkynni þessa fimbulkalda heimskautalofts er fyrir vestan og norðan Græn- land, auðnir nyrztu hcraða Kanada og einnig sjálft heimskautasvæðið. Þetta norðlæga loft dvaldi hér fram yfir jól, þó að lieldur drægi úr kuldunum á Þor- f láksmessu. Og í þessu norðanveðri mun hafísjaðarinn hafa færzt talsvert í átt að landinu, bæði með færslu og með myndun nvíss. Þegar norðanáttinni slotaði, myndaðist hæð yfir fslandi. Hún þokaðist liægt austur á hóginn og veður hlýn- . aði fram að áramótum, svo að hitinn á gamlársdag var 6 til 8 stig viða um land. f janúar var hiti um meðallag í tveggja kílómetra hæð, en 1.8 stigum laégri en það við jörð. Þrjú mikil kuldaköst komu í mánuðinum, og ber mikið á þeim sent djúpum dölum á hitaritunum. Þá stóð vindur á liánorðan, en jtess á milli var norðaustan- og austanátt, nema dagana 22. til 25. sló fyrir á suðaustan, enda voru það hlýjustu dagar mánaðarins. I norðanveðrunum nálgaðist haíísinn Norð- urland. Og að loknu kuldakastinu urn miðjan mánuðinn varð vart við ís við Straumnes og 1-Iorn. Einnig var jakahrafl við Grímsey hinn 19., og mun hvíta- björninn, sem Grímseyingar lögðu að velli fjórum dögum seinna, hafa komið með þessum jökum. VEÐRIÐ 17

x

Veðrið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.