Veðrið - 01.04.1969, Page 19

Veðrið - 01.04.1969, Page 19
staðið nijög lengi á norðan eða norðvestan eftir að leið á veturinn. — Að lokn- um norðan-snúning hinn 17. var austlæg átt í nærri viku. Þá gerði tveggja ilaga sunnanátt, en síðustu fimm dagana var vindur breytilegur. Og línuritin frá seinni hluta mánaðarins sýna engar óhemjulegar sveiflur. Þau lofa þannig góðu um stilltara og hlýrra veðurfar, enda cru ckki nenia rúmar þrjár vikur til sumars. Árið 1968. Þetta ár er liið 15. í röðinni, síðan hita-athuganir þessar hófust. Einkennis- liiti þess, meðaltal mánaðameðaltalanna á 500 metra bili upp í 2000 metra hæð, var — 0.438. Hafa átta ár verið hlýrri en það og sex kaldari. Frostmarkið lá að meðaltali í 900 metra hæð. Á undanförnum 15 árum er meðallagið 917 metrar. Fyrstu fimm árin, 1954—1958, var það 920 metrar, næstu fimm 945 metrar og nú hin síðustu, 1964—1968, hefur frostmarkið legið í 885 metra liæð frá sjó. Þetta er því kaldasta tímabilið, enda hafa þrjú árin á því verið hafísár. Hitt er j)ó merkilegra, að kaldasta árið á tímabilinu er 1966, en j)á kom enginn hafís. Hitasveiflan í 1000 metra hæð var nálægt meðallagi, eða 11.2 stig. Eins og oftast var júlí hlýjastur með 5.6 stiga liita, en janúar kaldastur með 5.6 stiga frost. Hitafall með hæð var 5.18 stig á kílómetra, minna en j)að hefur áður orðið á síðustu 15 árum. Á sumrin er hitafall með hæð meira en á veturna vegna sólfarsins. Þetta ár var })að mest í júní, 6.27 stig á km. Minnst var það 4.17 stig á km í október. Hlákur á árinu 1968 voru í góðu meðallagi. Meðaltal áranna 1954—1963 er 1988 gráðudagar við jörð, 614 í 1000 m hæð og 125 í tveggja km hæð. Árið sem leið voru sambærilegar tölur 2074, 647 og 151. Meðalhitinn og hlákumagnið eru Arssveiflan 1968. Mest áberandi einkenni hitafarsins árið 1968 er hinn liái hiti i juli og núvember og tiltölrhga lágur hiti fyrri helming ársins, ef undan er skilinn april, þegar ofar dregur. VEÐRIÐ — 19

x

Veðrið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.