Vikan


Vikan - 02.02.1961, Blaðsíða 2

Vikan - 02.02.1961, Blaðsíða 2
KANTER'S teg. 8267 með lausum hlír- um, er hið rétta corselett fyrir sam- kvæmiskjóla, úr lenoteygju og blúndu, fleygið í bakið. Slankbelti eða Brjóstahaldari er undir- fatnaður, sem þér kaupið ekki nema að vel athuguðu máli. Lifstykkjavörur eru það þýðingarmikill þáttur í klæðaburði yðar, að nauðsynlegt er að velja þær með fyllstu nákvæmni. Spyrjið um hinar velþekktu KANTER'S lífstykkjavörur sem eingöngu eru framleiddar úr beztu efnum, í nýjustu sniðum. Þér getið ávallt verið öruggar um að fá einmitt það sem yður hentar bezt frá » m • -í'- , wm mm ■•••»»:í:í:Síí.íwh«m«»wWwWiiíi 8 8 8 8 8 8 8 1 I 8 8 8 8 8 8 1 1 % 8 8 I 1 « I I 8 8 Spurt um Roy. Kæra Vika. Ég er einn af þeim sem les Vikuna alltaf og þykir mér það skemmtilegasta blaðið. Nú ætla ég að biðja þig að segja mér hvort hann Roy Rogers er dáinn, ef svo er ekki, hve gamall hann er þá. Með fyrir fram þakklæti, Jón Haukur. P.S. Hvernig er skriftin? Nei, Roy Rogers er í fullu fjöri. Ekki reit ég nákvæmlega, hversu aldraður hann er, en hann hlýtur að vera kominn um eða yfir sext- ugt. — Skriftin er svo sem ekki ljót, en ekki nógu jöfn, og mér sýnist eftir henni að þú sért dálítið pjattaður. Er það ekki rétt? Hvað ber að athuga? Kæra Vika! Þú hefur svo oft áður hjálpað mér vel þegar ég hef verið í vandræðum, að ég sný mér til þín einu sinni enn. Svo er mál með vexti, að ég ætla að kaupa mér notaðan bíl i vor, en blöð- in eru alltaf að skrifa um það að bílar á bila- sölum séu svo mikið svindl og hálfónýtir. Hvað þarf maður helzt að athuga, þegar maður kaupir bil? I. B. Það er svo margt, sem þá kemur til greina, að því verður varla lýst í einu svari. En meðal annars verður að ganga úr skugga um, hvort nokkur skuld hvílir á bílnum og fá í hendur vottorð um, að svo sé ekki. Einnig er ráðlegt að ganga úr skugga um það, hvernig gengur að fá varahluti í þessa ákveðnu gerð af bíl. Þá er að komast að því, hvort bíllinn er mikið ryðgaður, hvernig dekkin eru, hvernig mótorinn er, hvort hann hefur verið gerður upp, og ef svo er, hvar var hann gerður upp og að hve miklu leyti; var hann boraður, og þá hve mikið, skröltir bíllinn mikið, hvernig er rafgeymirinn í hon- um, hefur hann lent í árekstri eða veltu o.s.frv., o.s.frv. Ef þú ert alveg úti á þekju um allt, sem við kemur bílakaupum, skaltu fá einhvern bifvélavirkja í lið með þér, þegar að kaupunum kemur. Stjörnuspáin. Kæra Vika. Hvernig er þetta eiginlega með stjörnuspána ykkar? Nú er ég búinn að fylgjast með henni i þrjá mánuði, og hún hefur alltaf passað, en svo var eitt atriði, sem ekki kom heim i síðustu viku. Hvernig stendur á þvi? Rósa. Stjörnuspáin okkar er samin af færustu sér- 2 VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.