Vikan


Vikan - 02.02.1961, Blaðsíða 18

Vikan - 02.02.1961, Blaðsíða 18
Klukkan 11,47: Sakamálablaðamaðurinn Miska kemur upp um morðingjann. „Ég gerði það ekki, hún amma mín gerði það. Ef þér trúið þvi ekki, þá skuluð þér sjá nýjustu kvikmynd mína, Psycho. f Treptow-lystigarðinum í Austur-Berlfn eru minnisvarðar 7000 sovéthermanna, er féllu í Þýzkalandi. Tvö ár voru minnisvarðarnir í smíð- um. 80 myndhöggvarar og 200 steinsmiðir unnu samfleytt fjóra mánuði við hina ýmsu minnis- varða, sem þekja 100.000 fermetra svæði ásamt reitum og gangstígum. Það kostar austur-þýzku stjórnina um 2 milljónir á ári að halda þessu við, enda eru um 26 manns vinnandi við þetta allan ársins hring. Á myndinni horfa unglingar frá Austur-Berlín á eitthvert minnismerkið, og rússneskur hermaður stendur vörð. Þetta er ekkert smáræði, eins og sjá má af myndinni, enda hafa Þjóðverjar alla tíð verið hrifnir af öllu risavöxnu. Bokksöngvarinn Tommy Steele hefur nú vent.sínu kvœöi í kross og er tekinn upp á því aö leika leilclistarinnar vegna. Og fyrst lhann tók upp á því, geröi hann þaö ekki endasleppt. Hann starfar nefni- lega í leikhúsinu Old Vic, þar serh ýmsir f, œgustu leikarar Breta hafa leikiö á sinum beztu árum. Iiér er hann í grín- hlutverki, og sagt er, aö honum takist vel upp. Klukkan er 11,43 á laugardegi í höfninni í Hamborg. Alfred Hitchcock leikur í hrollvekj- unni, Morðið í stýrishúsinu. — Við rúðuglerið ber andlit morðingjans. Á stýrinu hvílir djörf hönd hins myrta. Toni armsterkur prinsessumaöur horfir eittihvaö skugga- lega á Jón Væna. Fundum þeirra bar saman á frumsýn- ingu á villtavesturskvikmyndinni Alamo, í hverri Jón Vceni fer meö aöalhlutverlciö. Margrét brosir blítt, eins og hún á kyn til. Hún lieföi átt aö gerast leikkona. Útlitiö heföi staöiö fyrir sínu. — Charles de Gaulle lítur á sig sem meyna frá Orléans endur- borna, en hlutverk hennar var í því fólgið aS sigra fjendur Frakklands. En de Gaulle hefur tekizt á hendur öllu erfiðara hlut- verlc. Hann ætlar einnig aS sigra vini sina. Og þáttur i því er franska kjarnorkusprengjan. MeS henni ætlar hann aS tryggja Frakklandi sæti i félagsskap þeim, er Kjarnorkuklúbburinn nefnist, en Bretar og Bandarikja- menn hafa hingað til drukkiS þar tvimenning og Frakkland verið skutilsveinn. Rolf Björling, sem erft hefur bœöi söngrödd og vaxtarlag fööur síns, Jússa Björlings hefur nú samning viö Stokkhólms- óperuna. Hér sést dreng- urinn œfa arlu úr La Traviata. Ef marka má skrif um hann, hefur haun alla möguleika til aö veröa góöur Björling. Okkur finnst, aö hann hafi aö minnsta kosti út- litiö, þó aö enn höfum viö ekki heyrt hann syngja. Klukkan 11,44: Stýrishússdyrnar opnast með lágu braki, og í ljós kemur nef og hálft annað auga. „Er allt í lagi?“ Enginn anzar. Klukkan 11,46: Kalt augnaráð morðingjans fylgir líkinu eftir á blautri ferð þess í skipakví númer 12. Morðinginn raular: „Er hann að sökkva, eða sýnist mér bara svo?“ Þorpið Lautzenhausen í Þýkalandi er i sömu aðstöðu og ICeflavík hér á landi. Þjóðverjar tala um „gullregnið“ í Lautzenhausen. Þar í grennd er bandaríski þotu- flugvöllurinn Hahn Air Base. Um 500 sálir þýzkar hafa þar sinn jarðíneska bústað. Og það, sem tapazt hefur á sálarsviðinu, vannst aftur í spairisjóðsbókinni. 1951 voru álögð útsvör og skattar um 100.000 krónur, 1959 var talan hálf milljón. Þar er stéttaskiptingin með dálitið öðru móti en annars staðar. Fjórar eru stéttirnar, og lifa þær 1 vel skipulögðum fjandskap, og græðir hver á annarri, nefnilega bændur, hermenn, sjoppueigendur og „ungfrúrnar“. — Baruch Friedmann, heim- spekistúdent frá Lodz, sem á veitingastað, er Atlantic-Bar nefnist, segir: „Stúlk- urnar mlnar lifa eins og nunnur, örva umsetninguna, lofa öllu og efna ekkea-t.“ Kynþáttaskiptingin gleymist ekki heldur á þessum stað. Negrarnir fá hvergi af- greiðslu nema á Charti-Bar, og þær stúlkur, sem leggja leið sina þangað, fá ekki atvinnu annars staðar á eftir. > Brazilía Meðan Kubitchek var enn forseti Brasiliu, var ákveðið að reisa nýja höfuðborg inni í miðju landi, og skyldi hún vera nafna landsins. En eftirmaður hans var ekki eins hrifinn af hugmyndinni og lét stöðva verkið. Tala atvinnulausra vex með hverjum degi, síðan Janio Quadros tók við, og þar sem þeir verkamenn, sem höfðu fengið vinnu við byggingu höf- uðborgarinar tilvonandi, höfðu haft gott kaup, létu þeir fjöl- skyldufl sínar koma til sín.' 1 staðinn fyrir borg, reista af færustu verkfræðingum núttm- ans, hafa nú hlaðizt upp braggahverfi, sem engum eru til sóma. Þessi unga stúlka ér talin hafa mesta möguleika af unglingum í Þýzkalandi, sem nú eru að koma fram á sjón- arsviðið. Hún hefur fengið töluvert meiri tilsögn og notið kennslu í lengri tíma en flestir jafnaldrar hennar í skemmt- analífi þar. Auk þess kvað hún hafa það, sem ekki er minna um vert, en það er sterk skapgerð. Og nú getum viði séð til, hvort hún verði enn viðlátin eftir svona fimm ár. Heidi Briihl heitir hún og er rúmlega nítján ára. 1B VIKAN WKAN 19

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.