Vikan - 02.02.1961, Page 5
f 3' 't
- >••
«.U,ph S>;ÍU
i»>*i «h w *»=* i*> ww
."'"ILæ
'-4-^03í«
L 'l|</i- •.<■•
^vnuíi^sí !••>’■■
-. •, •*(
Þýzkar flugvélar .réðust á spænska þorpið Guernica og gereyddu því. Fullur
hryllings og viðbjóðs á grimmdaræðinu málaði Picasso hina frægu Guernica-
mynd, sem líklega er frægasta málverk hans. Það er að mestu í svörtu og hvítu.
HJÖRLEIFUR SIGURÐSSON skrifar um Pablo Picasso
hinn mikla brautryðianda í nútímalist, sem fór ótrauður sínar eig-
in leiðir enda þótt efnaleg velgengni væri í veði og vinir hans
sneru við honum baki.
sumar þeirra voru þó haldnar í næsta
alvarlegum tilgangi eins og veizlan,
sem Picasso hafði til heiðurs Henri
Rousseau, barnalega málaranum
heimsþekkta. Hún var vandlega und-
irbúin og maturinn pantaður í beztu
verzlun borgarinnar. Konurnar önn-
uðust framreiðslu en karlarnir héldu
ræður og lásu upp. Rousseau sjálfur
var svo hrærður, að hann táraðist.
Þetta var fyrsta viðurkenningin, sem
honum hafði hlotnazt, og hún átti
hreint ekki svo lítinn þátt i því að
opna samtiðarfólki hans dyrnar að
hlýjunni og föllskvalausri lífsham-
ingjunni i málverkum hans. Sannleik-
urinn er ,sá, að Picasso og félagar
hans voru að breytast úr áhyggju-
lausum unglingum i alvarlega þenkj-
andi menn, sem fórnuðu borgara-
legum þægindum á altari listar sinn-
ar. Þegar þau Picasso og Fernande
hittust fyrst var hann blásnauður.
Nafntogað skáld hafði hirt hann upp
af götunni, gefið honum að borða og
leyft honum að mála i litlu kompunni
sinni á nóttunni. Þarna vann Picasso
eins og ljón þegar galsinn hafði guf-
að upp. Öllum, sem heimsóttu hann
á vinnustofuna uppi á Montmartre-
hæðinni kemur saman um, að þar
hafi verið staflar af myndum bæði
stórum og litlum. Skáldkonan Ger-
trude Stein hefur lýst vinnubrögðum
málarans þegar hann var að mála
af henni portrettið, sem flestir kann-
ast við. Um það bil áttatíu sinnum
labbaði hún yfir Signu, fram hjá
Óperuhöllinni, upp Chlichy-götu,
upp á Monmartre-hæðina til að sitja
fyrir. Stundum gekk allt að óskum
og listamaðurinn virtist harla ánægð-
ur með verk sitt. Stundum dróst ekki
upp úr honum orð. Þegar myndin
var til sýnis stöku sinnum virtist
mönnum hún vera fullgerð og ein-
hver sárbændi málarann um að láta
hana standa óbreytta. Loksins, þegar
komið var fram á vor, fannst honum
nóg komið og ákvað að Ijúka verkinu.
Picasso er hamhleypa og vinnan er I>
hans lífs-elexír. Nú vinnur hann
jöfnum höndum að keramik og mál-
verki, og hér sjáum við vinnustofu
hans, þar sem mörgu ægir saman.
Þegar Picasso hafði loks hlotnazt viðurkenning, kúventi hann
árið 1907 og byrjaði á kúbisma. Þetta er fyrsta myndin í þeim
stíl og heitir „Ungu stúlkurnar frá Avignon“. I fyrstu þótti
mönnum, að nú væri Picasso genginn af vitinu, en hann
sannfærði þá áður en langt um leið.
VIKAN. 5