Vikan - 02.02.1961, Page 8
Viggó Maak, skipaverkfræðingur Eimskips, fylg-
ist með smíði skipsins og þekkir það eins og
fingurna á sér. Hér útskýrir hann leyndardóma
vélanna í skipinu fyrir blaðamönnum.
Stefán Jónsson, fréttamaður hjá Ríkisútvarpinu,
sér fyrir sér fréttaauka kvöldsins og hugsar mál-
ið með alvöruþunga.
Vilhjálmur Jónsson, framkvæmdastjóri Olíufé-
lagsins h.f., ræðir við Hannibal Valdimarsson.
Forstjóri Eimskipafélags íslands, Guðmundur Vilhjálms-
son, lyftir glasi og fagnar þeim áfanga, sem félagið hefur
náð með nýju og glæsilegu skipi.
Eimskipafélagi íslands hefur bætzt
nýtt skip í kaupskipaflota sinn. Það er
tíunda skipið, sem Eimskipafélagið fær
eftir stríð og nítjánda skipið, sem fé-
lagið eignast frá uppliafi. Með þessu
skipi hefur allur floti Eimskipafélags-
ins verið endurnýjaður frá þvi sem var
fyrir strið.
Brúarfoss hinn nýi er glæsilegur far-
kostur, systurskip Selfoss, sem Eim-
skipafélagið hefur átt um nokkurra ára
skeið, en smávægilegar breytingar hafa
þó verið gerðar. Brúarfoss er 2339
brúttólestir og smiðaður í skipasmíða-
stöðinni Aalborg Værft í Alaborg í Dan-
mörku. Skipið gengur rúmlega 15 míl-
ur á klst. Það er að öllu leyti smíðað
samkvæmt ströngustu kröfum Lloyds
Register of Shipping.
Við komu Brúarfoss, efndi Eimskipa-
félagið til mannfagnaðar um borð og
gafst blaðamönnum þar kostur á því að
skoða skipið undir leiðsögn Viggós E.
Maack, skipaverkjfræðings. Um borð
voru saman komnir allmargir forystu-
menn fyrirtækja, sem að einhverju
leyti hafa samstarf við Eimskipafé-
lagið. Vikan birtir hér nokkrar svip-
myndir úr þessu samkvæmi.
<
Mikið er nú gaman,
nýtt skip bætist í flot-
ann. Torfi Hjartarson
tollstjóri gleðst með
Hafsteini Bergþórssyni
forstjóra Bæjarútgerðar
Reykjavíkur.
>
Jónas Böðvarsson,
skipstjóri á Brúar-
fossi, ræðir við for-
mann félagsstjórnar
Eimskipafélagsins,
Einar Baldvin Guð-
mundsson hæstarétt-
armann.
B VIKAN