Vikan


Vikan - 27.04.1961, Side 19

Vikan - 27.04.1961, Side 19
PRENTMYNDIR UNNAR MEÐ RAFEINDUM * * x '1 Fyrir fáum árum var fundin upp vél, sem olli gerbreytingu í myndamóta- iSnaðinum, og er líklegt, aS hún muni í náinni framtið leysa gömlu handverksað- ferðina af hólmi að mestu. Þessi nýja vél er þýzk og byggist á notkun rafeinda. Vélin er geysilega flókin að innri gerð og völundar- smíð hin mesta. Til þess að gera langt mál stutt og flókið mál einfalt: Fyrir- myndinni er komið fyrir i vélinni og hún síðan stillt eftir þvi, hversu hún á að stækka eða minnka. Eins konar sleði rennur fram og aftur gegnum vélina. T öðrum enda hans er Ijós- geisli, sem fer yfir fyrir- myndina, fram og aftur eins og sleðinn gengur. Þessi Ijósgeisli „sér“ 1 mm þykka linu af mvndinni 5 einu. Mvndamótið er ýmist grafið í plast, sink, magn- esium eða aluminium. Efn- ið er látið á hinn enda sleð- ans og nm leið og hann rennur fram og aftur, gref- ur hárfin nál i efnið, djúpt eða grunnt, allt eftir þvi hvort ljósgeislinn fer yfir Ijóst eða dökkt. Siðan sfðastliðið sumar hefur Vikan fengið öl! myndamót hjá Rafgraf h.f., en jiað fyrirtæki á eina slika vél af fullkomnustu tegund. Rafgraf h.f. er til húsa í Rolholti 6 hér i bæ, og jirátt fyrir feiknarlega afkastagetu vélarinnar, i'it- heimtir hún aðeins einn starfsmann. Síðan Vikan hóf viðskipti við Rrafgraf h.f., hefur útlit blaðsins batnað til muna, og er það fyrst og fremst því að hakka, að myndamótin eru betri. Auk þess sem áður hefur verið talið, hefur þessi myndamótavél þann kost, að hún getur skerpt á myndum, sem eru daufar. Myndamótavélin í Raf- graf litgreinir og gerir myndamót fyrir litprentun. Hún getur stækkað fjórum sinnum og minnkað þre- falt. Vélin er framleddd f Vestur-Þýzkalandi, og eft- irspurnin er svo mikil, að þriggja ára afgreiðslufrest- ur er nú hJA fyrirtækinu. A Myndirnar mældar út og reiknað um hvað mörg % þær eiga að niinnka eða stækka. r~ Styrkleiki ljoss og skugga stillt ur ínn. A Vélin að grafa, myndin sésí undir hausn- um, sem fótó- sellurnar eru í og stjórna raf- eindunum. rafemdaheihnn, stjórnar henni og sem Efsta myndin. Vélin við hlið hennar. Miðmyndin. Vélin stillt á myndina. Neðsta myndin. Vélin stillt á plötuna, sem á að gera myndina Myndirnar klipptar til eftir. VIXAN 19

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.