Vikan


Vikan - 18.05.1961, Page 11

Vikan - 18.05.1961, Page 11
 Eim segir Vesturbærinn skák í þessari keppni. Iíristjana Magnúsdóttir, þátttakandi núm- er níu í íegurðarsamkeppninni, á heima að Ránargötu 46. Fað- ir hennar er Magnus Steingríms- son, verkstjóri í Fiskhöllinni, en móðir hennar heitir Zanny Clausen og er frá Hellissandi. Kristjana er fædd og uppalin á íiánargötunni, nam við Gagn- fræðaskóía Vesturbæjar og Gagnfræðaskóla verknámsins. Hún hefu verið langdvölum er- lendis, en þess á milli hefur hún unnið í fiski og verið nokk- ur sumur kaupakona að Hlíð í Gnúpverjahreppi. Kristjana fór til Englands og nam ensku í London í eitt ár. Síðan hélt hún til Banda- ríkjanna og vann algeng hús- störf hjá fjölskyldu einni, sem ferðaðist fylki úr fylki, og hef- ur hún verið í þeim öllum. Hún var ár í Bandaríkjunum, og síðar vann hún f jóra mánuði á hóteli í Iíaupmannahöfn til þess að læra dönsku. Hún starf- ar á skrifstofu hjá Loftleiðum. Hún hefur tekið allmikið þátt í íþróttum, handbolta og tennis, og verið í ballett í Þjóðleik- húsinu í 10 ár. Kristjana er 20 ára, 169 cm á hæð, 58 kg á þyngd. Önnur mál: brjóst 96 cm, mitti 64 cm, mjaðmir 96 cm, ökli 21 cm og háls 30 cm.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.