Vikan - 18.05.1961, Side 29
FYRIR GRANNA
FYRIR ÞREKNA
ÚR ÚVALS TERYLENE
ÚR ÚRVALS ULL
Hinar marg eftirspurðu
ljósgráu Italic buxur
komnar.
SKARA FRAMÚR
Framl.
Klæðagerðin
Skikkja
STWÆTI * «F
Sími 15985
HVAÐ SEGIR ÞÓR RALDIJRS ...
Framliald af Lls. 22.
Vil.jastyrkurin'i verður sérstaklega sterkur,
gegnum það mótlæti, sem þetta fólk verður
oft fyrir. Þessi t’.mglstaða gerir hana að góðum
ceremonialista, ef hún kæmist í kynni við
slíkt á annað borð.
Hið rísandi merki Ljóni: Hið rísandi merki
er 15° Ljón eða annar gráðutugur þessa merkis.
Undir þessum áhrifum er metnaðargirnd
Ljónsmerkisins nokkuð minnkuð, fyrir undir
áhrif Bogamerkisins, sem er merki hins æðri
huga. Hin heimspekilegu og trúarlegu áhrif
koma hér betur í ljós og þeir sem hér eru
fæddir skilja auðveldlega hinar veiku hliðar
bæði í nútima stjórnmálum og trúarbrögðum.
Og það sem meir er um vert er að þeir hafa
hugrekki til að afla skoðunum sinum fylgis.
Þeir þrír þættir, sem ég hefi tekið til
nokkurrar umræðu eru helztu atriði i fari
hvers manns, en hvað ræður styrk þeirra og
magni kemur fram þegar litið er á aðrar af-
stöður plánetanna.
Venus er i 11° Ljónsmerkisins, en hún er
meðal annars gráða heimspekingsins og þess,
sem tileinkar sér fegurðina í ljósi heimspek-
innar. Einnig er 13° Ljónsmerkisins undir
sterkum áhrifum þar sem hin rísandi gráða
og Venus eru kölluð samsiða henni á máli
stjörnuspekinnar. 13° er gráða listanna og er
aðalsmerki listamaunsins meðal annars. Hún
hefur einnig yfir að búa næmleika fyrir tónum
og hefur hæfni til að leika á hljóðfæri eins
og t. d. píanó,. en hún mun vera allþekkt í
heimi skemmtanalifsins, þar sem máninn er
í fiinmta húsi í afstöðu við hið rísandi merki.
Hún mun að öllum líkindum giftast tvisvar
en fyrri maður hennar er talsvert eldri en
hún er, þar cð tákn hans er Satúrn í ævi-
sjánni.
Ég hef nú drepið á það helzta i fari hennar,
en i blaðinu leyfir ekki frekari skrif tim það
efni, þó meir en ltelmingi meir mætti um
þetta stjörnukort rita. Ég vildi því.að lþkum
drepa nokkuð á það helzta í framtíðinni.
Árið 1964 verður henni mjög hagstætt til
ritstarfa, bréfaskrifta og smáferðalaga. 1972
er hagstætt í sambandi við heimilið og mun
þar lil koma aðstoð eins vinar liennar. 1975
verður afdrifarikt á sviði listabrautar þinnar.
1982 verður sérstakt ár í lifi þinu með til-
iiti til mjög margra þátta.
15. april 1961.
Þór Baldurs.
PÁFAGAUKURINN
Framhald af bls. 16.
lina skrapp eitthvað afsíðis. — En það máttu
vita, að ef þú þegir ekki eins og steinn, þá sný
ég af þér hausinn!
— Ég elska ])ig, Cleo! æpti páfagaukurinn og
iét sér hvergi bregða.
Jean hækkaði í viðtækinu og tók auk þess að
syngja sjálfur fullum hálsi, svo að Jacqelina
heyrði ekki í fuglskrattanum. Svo tók hann
nokkra sykurmola upp úr vasa sinum og kast-
aði i skyndi inn i búrið.
— Gerðu það nú fyrir mig, greyið mitt, að
lialda þér saman. Sko, — vitanlega meina ég
ekkert með þvi, þótt ég segist ætla að snúa af
þér hausinn! Þú hlýtur að geta tekið gríni, ha?
Kvöldið eftir heppnaðist Jean Dupont að
hregða sér út í bæ.
— Viðskiptaerindi, sagði hann við Jacque-
linu.
Iiann átti stefnumót við Cleo í Café de la Paix.
■— Þú kemur nokkuð seint, varð Jacquelinu
að orði, þegar hann kom heim.
— Já, þetta tók lengri tíma cn ég hafði
húizt við. Að svo mæltu tók hann sér sæti i
þægilegum stói og fór að líta yfir blöðin.
Páfagaukurinn prílaði um inni í búrinu sinu.
■Og svo tók hann til máls:
— Ég elsk. . . .
Jean stakk hendinni í vasann i skyndi. Hvar
í fjáranum voru sykurmolarnir? Jæja, páfa-
gaukskvikindið var þó þagnað, hvernig sem á
þeirri guðslukku stóð.
Þegar hann hafði loks fundið sykurmolana og
ætlaði að lauma þeim inn í búrið til hans, sá
hann, hvers kyns var.
Það var Jacquelina, sem hafði stungið hand-
fylli af sykurmolum að kvikindinu! -Ar
VIKAN. 29