Vikan


Vikan - 20.07.1961, Blaðsíða 13

Vikan - 20.07.1961, Blaðsíða 13
„C-ir-l-l-e-n,“ kallaði Jackson og dróst eftir mýrinni. Ekkert svar. Jackson benti örmagna í áttina, sem Cullen átti að fara, en hné síðan stynjandi niður ... í faðmlögum runnu þeir niður brekkuna. Þarna lágu þeir á rykugum akrinum. Út úr runnun- urn kom Muller lögreglustjóri. Konan opnaði hurðina hræðslulega, og þau gengu inn. Drengurinn benti á Jackson. „Hann er særður, mamrna." Konan sá kvaladrættina í andliti Jacksons. Hún gekik að eldavélinni og hitaði fullan ketil af vatni. „Við viljum fá eitthvað að borða, og siðan förum við,“ sagði negrinn, Þegar hann sá, að sú ljóshærða gleypti Jackson með augunum. Konan kom með vatnið og léreítstusku. Síðan sótti hún kjöt ost og brauð og skellti trédiskum á borð- ið. Jackson og svertinginn köstuðu sér eins og hungraðir úlfar yfir matinn. „Er enginn karl- maður i húsinu?" spurði Jackson og beit i stóran lcjötbita. Pilturinn hristi höfuðið þungbúinn. „Maðurinn minn hljóp burt íyrir átta vikum . . . Hann skildi okkur hérna eftir,“ sagði konan lágri röddu. Hún forðaðist að líta á negrann. „Viljið þér eitthvað að drekka?" spurði hún Jack- son. Hann horfði fast á þröngar buxur hennar. „Jæja, áfram þá. Komið með glas handa honum og mér.“ Það leið um það bil hálf klukkustund, þar til henni tókst, með því að nota þungan hamar og sterkan meitil til skiptis, að brjóta handjárnin. konu.“ Hann dró hana til sin. Hún slökkti á gamla olíulampanum. Myrkrið, sem umlukti þau, var blitt og gott, eins og höndin, sem strauk hár hennar. Á sama tírna og Muller lögreglustjóri sagði við menn sína: „Sjáið, sporin eru alveg ný. Þeir geta ekki verið komnir langt,“ — var Jackson að þvo sér við brunninn hjá húsinu. Ljóshærða kon- an kom út úr húsinu og þrýsti sér að honum. „Mér dettur dálítið gott í hug. Þú lætur negrann halda einan áfrarn." Hann starði tortryggnislega á hana. „Því í and- skotanum?“ „Þú ert heimskur. Það er alls staðar verið að leita að tveimur flóttamönnum, tveimur, heyrirðu það! En ef maður og kona fara saman í bíl norð- ur á bóginn, hver grunar þau?“ „Hvernig þá, — maður og kona?“ spurði hann. „Ég fer með Þér. Gerðu það. Leyfðu mér að fara með þér.“ „Hvernig þá, •— í bíl?“ er allt ákveðið, hugsaði Cullen. Allt ákveðið, eftir duttlungum svona Ijóshærðrar konu að morgni dags. . . . Jackson leið illa. Bíllinn dugði ekki og ráðagerð- irnar voru einskis virði. Úlnliður Jacksons var dökkur og særður, og negr- inn varð að hlaupa til, svo að Jackson liði ekki út af eins og liðið lík. Sú Ijóshærða kom með nýj- ar umbúðir. Cullen bar Jackson varlega að bedda, sem stóð þar. Svo settist hann við borðið, upp- gefinn og úttaugaður. Áður en konan var búin að þurrka hitasóttarsvitann af enni Jackson, var hann sofnaður. Alla nóttina sat hún við rúm hans. Pilturinn svaf á gömlum legubekk úti í horni. Jaokson stundi í óráðinu. Konan fann, hvernig einmana- leikinn óx með henni í næturkyrrðinni. Hún þoldi þetfa ekki lengur. Hún byrjaði að gráta eins og barn, sem hefur verið barið. Órólegar hendur hennar gripu um axlir mannsins og læstu sér í vöðva hans,- eins og þær ættu ekkert annað at- hvarf hér á þessari jörð. Þá opnaði Jakson augun og leit á hana, sá hróp- ið í augum hennar. Hægt lyfti hann hægri hendi og þurrkaði tár hennar varlega burt. „Það er langt siðan,“ hvíslaði hann, „langt síðan ég hef snert „Jú, aftast í skúrnum á ég gamlan bíl. Hann fer ekki í gang, en. . .“ Þegar Jackson heyrði þetta, kastaði hann hand- klæðinu á jörðina og þaut inn í skúrinn. Reyndar, Þarna stóð slitinn, gamall bíll. Hann hafði það að koma honum í gang. Konan hafði hlaupið inn i húsið. Hún setti í flýti niður i tvær gamlar ferðatöskur. Einmitt þegar hún kom með töskurnar inn í skúrinn, birt- ist negrinn í dyrunum. Cullen hafði vaknað við hávaðann í bílmótorn- um. „Ertu að fara, Joker?“ spurði hann. Jackson leit vandræðalega á hann. „Heyrðu mig,“ sagði hann dræmt. „Það er betra, ef við skiljum núna.“ Cullen skildi, hvernig í öllu lá. Sú ljóshærða gleypti Jackson með húð og hári. Hann sneri við. Hún kom út með töskurnar. Pilturinn stóð í hliðinu og hafði hendur í buxnavösunum. Þetta „Ég get vísað yður á ágæta leið,“ stamaði kon- an. „Bak við húsið tekur mýrin við. Ef þér farið til vinstri, komið þér að járnbrautargarðinum. Þar fér miðdegislestin fram hjá á hverjum degi á leið norður.“ Negrinn leit á Jackson. „Allt í lagi, Joker, þá fer hvor sina leið,“ sagði hann lágt. Svo hljóp hann bak við húsið. Konan henti töskunum inn í bílinn. En Jack- son hugsaði sig enn um. Ef negrinn kæmist þessa leið, ,þá. . . . Konan leit fyrirlitlega á hann. „Asni geturðu verið! Hann kemst aldrei að járnbrautargarðin- um. Hann hleypur beint í mýrina og kemst aldrei upp úr henni!“ Hún hló móðursýkislega. Jackson hljóp eins og hann væri sleginn með svipu út úr bílnum. Konan kastaði sér í veg fyrir hann. „Ég elska þig, ég elska þig,“ stundi hún. „Þú mátt ekki fara núna!“ Hann reif sig lausan og hrinti henni hranalega burtu, — en um leið lyfti Framhald á bls. 35. VIKAN 13

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.