Vikan


Vikan - 20.07.1961, Side 15

Vikan - 20.07.1961, Side 15
hafa einkasundlaug . . . og hesta . . . og eigin golfvöll. . . . og aeft þjónustuliö til að annast starf- semina. . . . Og almennilega bifreið í staðinn fyrir gamla skrjóðinn okkar, bætti Mikki við af tilfinningu. — Eg þori að veðja um, að frændi hefur átt einhvern af allra glæsilegustu gerðunum. Annað á ekki við á svona stöðum. líann beit sundur setn- inguna, þegar kirkjuklulÆan hinum megin við torgið sló tvö. — Er klukkan virkilega orðin svona margt? Ég lofaði Bellu að koma til hennar rétt eftir hádegisverð . — Hvers vegna hringdir þú ekki til hennar og segir, að þér hafi snúizt hugur? sagði Lísa. .— Það gerði henni ekki minnstu vitund til svona einu sinni. Hann hristi höfuðið. — Nei, ég get ekki látið það bíða að segja henni þessi fagnaðartiðindi. Og það fyrsta, sem við gerum á mánudagsmorguninn, er að auglýsa húsið til sölu og spyrjast fyrir um, hvað farseðlarnir til Ríó kosta. — Því skal ég komast eftir í kvöld, sagði Mar- ín. — Ég þarf að láta leggja hárið á greiðslu- stofunni i Bensons-magasíni og get þá litið inn í ferðadeildina um leið og spurt um farmiðaverðið, ef þú vilt. — Já, gerðu það, svaraði Mikki ákafur. — Eg get ekið þér þangað, áður en ég fer til Bellu. EKKI ÖLL, ÞAR SEM HÍFN SÝNIST. HURÐIN lokaðist að baki þeim, og allt varð hljótt inni fyrir. — Vesalings Terens, mælti Kitty skjálfrödd- uð. — Mér finnst ég ekki geta trúað þvi, að hann sé horfinn að fullu og öllu. Eíni bróðirinn minn.. . Lísa reyndi að hugga móður sína. — Þú mátt ekki láta þetta fá allt of mikið á þig. Hugsaðu til þess, að þið höfðuð ekki sézt í nærri tuttugu ár. Átján, leiðrétti Kitty hana með tárin í aug- unum. — Og að þetta skyldi einmitt verða að vilja til núna, þegar hann ætlaði að fara að koma heim. — Góða mamma, það hefur hann ætlað sér árum saman, svaraði Lisa, eins og satt var. Móðir hennar andvarpaði. — Það gerir þetta einmitt enn hörmulegra. Við höfum beðið svo lengi eftir honum, . . . og hann hefði áreiðanlega hjálpað okkur á ýmsan hátt með að borga húsið og . . . — En nú hefur hann gefið okkur nýtt heimili, svo að við þurfum að minnsta kosti ekki að hafa áhyggjur af því, anzaði Lísa, og það glaðnaði þegar í stað yfir Kitty. — Ég verð að skrifa Flórens frænku rétt í þetta skipti og segja henni fréttirnar. Nú getur hún þó ekki sagt, að Terens ætti að sýna ein- hvern lit á að hjálpa skyldfólki sínu! Hún tíndi saman böggla sína og gekk upp á loft til að skrifa frænku sinni, sem að visu þótti nokk- uð aðfinnslusöm og opinská. Lísa tók að bera af borðinu og var rugluð í kollinum. Hún var á leið til eidhúss með fullan bakka, þegar dyrabjöllunni var hringt. Hver í ósköpunum getur þetta verið? Varð henni hugsað. Þegar hún opnaði, stóð hún frammi fyrir Adda. Hann bar upp erindi sitt vafningalaust. — Hvar er Marín, Lísa? Ég verð að tala við hana. Okkur varð sundurorða í morgun. — Hún er ekki heima, sem stendur, svaraði Lísa. — Þú verður að koma inn og biða eftir henni. Henni féll mætavel við mág sinn tilvonandi og tók svari hans, hvenær sem var. Hann var traust- ur maður og áreiðanlegur og innilega ástfanginn, — en Marín var svo óútreiknanleg. Addi átti sér aðeins tvö markmið í lífinu: að kvænast Marínu og lcaupa jörð. Þegar þau trúlofuðust, hafði Marín verið hrifin af hugsuninni um jörðina, en viidi þó ekki neita sér um neitt fyrir þær sakir. Hún var að vísu ekkert dekurbarn, en þó vön að fá sínu framgengt. 1 fyrsta lagi var hún yngsta systkinið, og í öðru lagi hafði hún erft gullrautt hár og himinblá augu frá ömmu sixmi. En þetta tvennt hafði gert ömmu að eftirsóknarverðustu stúlk- unni í Connemara fyrir fimmtíu árum. Misskipt er þessu, sagði Lísa stundum við sjálfa sig hrygg í huga, þegar hún leit I spegilinn, — því að augu hennar voru grá aö lit eins og í föð- ur hennar, og hárið var bara brúnt og liðað frá náttúrunnar hendi. Munnurinn var of stór og nefið ósköp hversdagslegt, ekki vitund skrýtið og skemmtilegt eins og á Marínu. Hvar sem Marín fór, horfði fólk á eftir henni, kvenfólk með öfund í svip, en karlar með aðdáun. Og Marín hafði vanizt á það að telja sig eiga það skilið. — Hvað er langt þangað til hún kemur? spurði Addi óþolinmóður. Lisa sagði sem satt var, að það hefði hún ekki hugmynd um. — Hún fór í hárlagningu, og svo ætlaði hún að athuga, hvað farið kostaði til Brasilíu. — Brasiliu? spurði Addi forviða. — Hvers vegna þurfti hún þess? — Við ætlum að fara þangaö, svaraði T.isn glaðlega. — Það er að segja mamma og við Mikki. Ég skal segja þér, að Terens frændi er látlnn og við höfum erft gistihúsið hans í Nova Friburgo. Það er tæp klukkustund síðan við fengum vitn- eskju um það. . . Og áður en hann gæti komið upp nokkru orði, bætti hún við: — Svo að af þessu leiðir, að Marín verður að sjá um sig sjálf , . . . ef þiö farið ekki að gifta ykkur. Andrés leit beint í augu henni. Hann var hrein- skilinn, en vandræðalegur á svip. — Hefur Marín stungið upp á þessu? —■ Nei, það gerði Mikki. Rödd hennar var hlý og hvetjandi. — En er það ekki góð hugmynd? Allt þetta ólukku-þref ykkar . . . Það dimmdi yfir svip hans. — Hún var þvi samþykk, að við skyldum spara til að kaupa jörð. Það var hennar hugmynd upphaflega ekki síður en mín. En nú. . . . — Nú er hún orðin leið á að bíða. Lísa lauk við setninguna fyrir hann. Hún var ekki gift, og hún hefur ekki mikla skemmtun af því að vera trúlofuð. Yfirleitt er hún óánægð með allt. — En við vorum sammála um að . . . — Það skiptir ekki máli, mælti Lísa óþoUnmóð- Framhald á bls. 20. - Geturðu fyrirgefið mér, ástin mín, mælti hann upphátt, með greinilegum amerískum hreim, með- an hann hélt handlegg hennar föstum. vkcam 15

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.