Vikan - 08.03.1962, Blaðsíða 2
Nýr kraftmeiri
VOLVO
1962
* Ný gerS af vél B18 75 og 90 ha.
■ 12 volta rafkerfi
* Asymmetrisk ljós
* Öflugri hemlar
* Diskahemlar á AMAZON SPORT
* Öflugri tengsli
* Stærri miðstöð
* Nýtt litaúrval
Verð:
PV 544 Favorit kr. 159.500,00
Amazon 75 hp. — 195.000,00
Amazon 90 hp. — 195.000 00
Innifalið í verðinu er:
* Miðstöð
* Þvottatæki fyrir framrúðu
* Aurhlífar
* Öryggisbelti
Biðjið um myndalista.
Gunnar Asgeirsson h.f.
í tilefni af því, að Vikuklúbbur-
inn hefur göngu sína í þessu blaði,
liöfum við helgað yngri kynslóðinni
forsíðuna. Það er partý eins og sjá
má og þau eru búin að taka af sér
skóna til þess að vera liprari í rokk-
inu og tvistinum. Plötuspilarinn er
í gangi og auk þess gítar til þess
að ítreka tilbeiðslu ástarsöngvanna.
Það er ung og efnileg listakona,
Selma Jónsdóttir (ekki listfræðing-
ur) swn hefur teiknað ])essa mynd.
Það er fyrsta myndin sein birtist
él'tir hana og vonandi ekki sú síð-
asta, því Selma hefur lært auglýs-
ingateikningu og ætlar sér að hafa
atvinnu af því.
Selma er dóttir Jóns G. Nikulás-
sonar, Jæknis, og Helgu Ólafsson.
Hún sigldi út til Skotlands að loknu
gagnfræðaprófi og lagði stund á
auglýsingateikningu við Glasgow
School of Art í tvö ár. Þar lærði
hún teikningu, leturgerð, umbrot
og hvaðeina sem snertir gerð aug-
lýsinga. Hún kom lieim í sumar og
byrjaði strax að teikna. Það gerir
hún heima hjá sér á Háteigsvegi 6,
en teiknistofuna vantar enn sem
komið er. Það er áætlun hennar að
koma sér upp teiknistofu og starfa
sjálfstætt, enda iniun ekki margt
gefa jafn mikið í aðra hönd og aug-
lýsingateikningar, fyrir þá sem
lcomnir eru á strik.
Se'ma segir áhugamál sín vera
lestur bóka og tónlist fyrir utan
teikninguna, en auk þess skemmtir
liún sér; þó ekki í partýum eins
og á myndinni, það stig segist hún
vera komin yfir. Selma cr 21 árs
og trúlofuð Baldri I'’riðrikssyni, sem
leggur stund á byggingafræði í
Kaupmannahöfn.
Suðurlandsbraut 16. Sími 35200.