Vikan - 08.03.1962, Blaðsíða 13
höfum tekið eftir því ofl og mörgum sinnum.
„Já, heppnin er skrýtin.
Eitt fyrirtæki liér í bænum á eina 30 miða, sem starfsfólkið er skrifað
fyrir. Það hefur komið fyrir tvisvar sinnum, núna á skömmum tíma
að stærsli vinningurinn hefur lent þar.
Sumir eru svo undrandi þegar þeir frétta að þeir hafi hlotið stóran
vinning, að þeir trúa því hreint ekki.
Ég man t. d. eftir manni, sem fékk stóran vinning. í þetta sinn
lét ég mér nægja að hringja til hans og segjá honum frá þessu. Hann
var ósköp kurteis í simann og þakkaði fyrir, en eitthvað fannst mér
hann vantrúaður.
Eftir litla stund hringir hann sjálfur hingað óg spyr eftir mér. Svo
spyr hann mig aftur að því hvort þetta sé rétt. Ég fullvissaði hann
um það.
Nokkru síðar hringir svo konan hans. Hann hafði beðið hana um
að hringja.
Og enn síðar hringir kunningi hans og spyr hins sama fyrir manninn.
Við komumst svo að þvi að vinnufélagár hans höfðu gert honum
þann Ijóta grikk einhverntima, að þeir höfðu gabbað hann einmitt
Framhald á b s. 31.
Hjónin Erna Jónsdóttir og Sigurður Ingason, deildarstjóri
í Pósthúsinu hafa verið í hópi hinna heppnu að undan-
förnu. Þau unnu Hudson-bí' f Olympíu-happdrætti fyrir
nokkrum árurn 03 Volkswagen í bingó núna í vetur. —
Myndin að ofan: Einn ljónheppinn Þingeyingur með happ-
drættisfeng sinn. — Til vinstri: Hólmfríður Oddsdóttir, sem
fékk fu'lgerða íbúð hjá DAS.
VIKAN 13