Vikan - 08.03.1962, Síða 24
Ungfrú Yndisfríð
Hvíii: er
övkin hans
nóæ?
Sjðast þegar dregið var hlaut verð-
launin:
GUÐRÚN HARALDSDÓTTIR,
Rauðalæk 41, Reykjavík.
Nú er það Örkin hans Nóa, sem ungfrú
Vndisfríð hefur falið í blaðinu. Ivann-
ske í einhverri myndinni. Það á ekki
að vera mjög erfitt að finna liana og
ungfrú Yndisfríð heitir góðum verð-
launum: Stórum konfektkassa, sem
auðvitað er frá Sælgætisgerðinni Nói.
Nafn
Sími
Heimilisfang
Örkin er á bls.
VIÐ KYNNUM
NYJAN
KLOBB
OGNYTT
BLAD
Leynilögregluþrautin:
Hver vor morðinginn?
Hurlock lögregluforingi var á
skennntife rðalagi í Prakklandi, og
kvöld nokkurt sat hann ásamt aðstoð-
armanni sinum, Snapham og dr. Wal-
nut og franska lögreglumanninum
Pathé ásamt eiginkonu hans á
skennntistað og var áformað að gera
sér glaða kvöldstund. Þau skemmtu
sér prýðilega og sérstaklega var frú
Palhé sólgin i að reyna öll skemmti-
tækin og Snaphain bauðst til þess að
fyrra bragði að fara með henni i
draugalestina, vegna þess að maður
hennar var síður en svo hrifinn af
þvi að njóta þeirrar skemmtunar.
Dr. Wa'lnut og lögreglumennirnir
tveir biðu nú rólegir á meðan hin
tvö iiutu skemmtunarinnar í drauga-
iestinni, og ]iá kom kraftalega vaxinn
maður tii þeirra og heilsaði Pathé
kunnuglega.
—Það gleður mig sannarlega að
hitta yður utan lögreglustöðvarinnar,
sagði liann hlægjandi. — Kærið þið
ykkur um að koma með mér til skot-
tjaldsins? Nú, ekki það? Jæja, kann-
ske sjáumst við siðar ....
— Hann heitir Cachot, sagði Pathé,
— og hann er því miður tiður gestur
á lögreglustoðinni. Hanu er sérfræð-
ingur í innbrotum og ótrúlegum fjar-
vistarsönnunum . . .
í þvi komu þau úr draugalestinni,
frú Pathé og Snapham og hópurinn
gekk til spilatjalds nokkurs, þar sem
Framhald á hls. 3(i.
24 VIKAN
Hér hefur nýr þáttur göngu sína — og í rauninni er þar um
nýtt blað að ræða, því ætlunin er. að hægt sé að kippa
því úr Vikunni og hefta inn í sjálfstæða möppu.
Þetta blað verður málgagn fyrir Vikuklúbbinn — og hann
er algjörlega nýr af nálinni líka. Meðlimir í honura
geta allir unglingar orðið, eða táningar, ef þið viljið það
heldur. Til nánari skýringar segjum við, að aldurstakmörkin
séu 10—20 ár.
Vikan hefur fengið þjóðkunnan mann til að standa fyrir
þessu blaði og stýra um leið Vikuklúbbnum.
Hann heitir Jón Pálsson og allir tán,ingar þekkja hann
úr tómstundaþætti útvarpsins. Þar hefur Jón fyrir löngu
vakið athygli fyrir frábærlega gott efni og orðið nijög vinsæll
hjá unglingum í tómstundaklúbbum um aRt land.
..Þessi klúbbur, sem hér fer af stað, grípur ekki aðeins
yfir tómstundaiðkun, heldur sem flest áhugasvið unglinga
á aldrinum 10—20 ára. Blaðið verður málgagn klúbbsins
og þar geta þeir látið í sér heyra, sem vilja koma einhverju
á framfæri. Að því er snertir sérstök áhugamál stúlkna,
mun Helga Finnsdóttir sjá um, að eitthvað verði
við þeirra hæfi í hverju blaði. Það verða til dæmis alls konar
ráð og bendingar í sambandi við klæðnað og tízku,
herbergið, fegrun og snyrtingu. Það verður líka
kvikmyndaþáttur í blaðinu og músíkþáttur Svavars Gests
verður hafður við hlið klúbbblaðsins.
Vikan mun gefa meðlimum klúbbsins kost á því að eignast
merki klúbbsins, annað hvort sem bindisnælu eða merki
í barm. Það verður nánar tilkynnt síðar. Jón Pálsson mun
líka gefa bendingar urn heimagerðar möppur
fyrir klúbbblaðið og einnig munum við gefa meðlimum kost á
því að kaupa möppur við vægu verði. Þið klippið blaðið
frá um punktalínuna og brjótið það síðan til helminga.
Möppurnar verða hafðar með tilliti til þess.
Að síðustu: Vikuklúbburinn verður í hverri einustu Viku
og Jón mun taka fyrir allt milli himlins og jarðar,
sem unglingar kunna að hafa áhuga á.