Vikan - 03.05.1962, Page 8
GoebbeJs hafði þrennt til að bera, sem hann
notaði óspart: óvenju fagra og blæbrisðaríka
rödd, fallegar hendur og áhrifamikil augu.
Árið 1902 gerðist atburður á heimili einu í smáborginni Rheydt í
Rinarlöndum, sem síðar átti eftir að hafa heimssöguleg áhrif, þótt
hann vekti þá aðeins athygli — og þó fyrst og fremst harm og kvíða
— innan fjölskyldunnar.
Yngsti sonur hjónanna, sem bá var á fimmta ári, hafði tekið sér
sæti á legubekk i dagstofunni. AJlt í einu setti að lionum ákafan grát;
og þegar hann lét ekki huggast með neinum ráðum, en gat þó ekki
tilgreint orsök eða sársauka, var heimilisJæknirinn kaJJaður. Hann
kvað upp þann úrslairð. að drengurinn Jiefði fengið snert af Jöm-
unarveiki og Jét flytja hann f sjúkrahús tafarJaust. Þar var fram-
kvæmd á honum skurðaðgerð, sem tólíst hó ekki Iietur en hað, að
annar fótur hans bæklaðist og eftir hað varð drengurinn haltur alla
ævi, auk þess sem sjúkdómnrinn dró svo úr vexti hans og þroska,
að hann varð Jíkamlega þróttlítili væskill. Fyrir bragðið samdist
liann ekki að jafnöidum sinum, tók ekki neinn hátt í Jeikjum heirra
eða félagsskap, en lokaði sig inni i herbergi sinu þann tíma dagsins,
sem hann var ekki i skóla og las þar öllum stundum og a'Jt. sem
hann lcomst yfir, hvort sem það samrýmdist aldri hans og andlegum
þroska eða ekki.
Drengur þessi hét Joseph Goel)beJs.
Joseph Goebbels var fæddur þann 29. október 1897. FjöJskyJdan
var kaþólsk, eins og titt er í Rínarlöndum; faðir hans. Friedrich
GoebbeJs, var sonur iðnverkamanns i Rlieydt, liafði sjáifur byrjað
sem verksmiðjusendill en hækkað í tigninni smám saman, unz hann
varð bókari á allgóðum Jaunnm — móðirin var af hollenzkum ættum,
járnsmiðsdóttir. sem gerzt Jaafði þýzkur ríkisborgari áður en hún
giftist, skapmikil kona og viljasterk. Joseph var yngstur þriggja
bræðra, en dóttur eignuðust þau lijón, þegar hann var tólf ára að
aldri; hún var skirð Maria og tókst seinna mjög innileg vinátta með
henni og Joseph.
Eins og oft vill verða, snerist auðskiJjanleg minnimáttarkennd
Josephs GoebbeJs, vegna bæklunar hans og væsldlsskapar, brátt í
Goebbels um tvítugt.
metnaðargirni og ytra mik-
iJJæti. Fyrir stöðugan bók-
Jestur hafði hann gerzt
fróðari jafnöldum sinum
um marga hluti, enda hafði
hann stálminni, og tók nú
að 'flika sem mest þekkingu
sinni og andlegum yfir-
burðum tii að vega móti
hvi hve vapburða hann var
Jíkamlega. Faðir hans var
maður alvörugefinn og
strangur, en Jumaði engu
að síður á næmri skop-
skynjun; hann þráði að
synir sinir fengju sem
mestan frama, og þar sem
honum þótti nú engum
vafa bundið að Joseph
væri óvenjulega vel gefinn,
tók hann þá ákvörðun að
hann skyldi ganga mennta-
veginn, þótt hann sæi fram
á að það yrði ókleift fjár-
hagslega nema styrkir og
önnur slík aðstoð kæmi til
-— hver vissi nema hann
ætti eftir að heyra yngsta
son sinn titlaðan „herra
doktor“, þrátt fyrir allt?
Joseph Goebbels hóf því
nám við menntaskólann í
Rlieydt. Hann naut JitiIJar
hylli meðal skólabræðra
sinna; setti sig aldrei úr
færi að láta sem mest bera
á þekkingu sinni, eða koma
sér í mjúkinn hjá kenn-
urunum, jafnvel með þvi að bera í þá og koma öðrum nemendum
þannig í skömm — en hann var oft efstur i sinum bekk. Um þetta
leyti tóku og tónlistargáfur hans að gera vart við sig og foreldrar
hans spöruðu saman fyrir notaðri slaghörpu handa honum.
Haustið 1914, þegar fyrri heimsstyrjöldin brauzt út, var hann nærri
seytján ára og kominn i efsta bekk menntaskólans. Bekkjarfélagar
hans buðu sig óðar fram til herþjónustu og þrátt fyrir bæklun sina
og krangavöxt fór hann að dæmi þeirra. Þegar herskráningarstarfs-
mennirnir dæmdu hann óhæfan til herþjónustu ævilangt, hélt hann
rakleitt heim, lokaði sig inni i herbergi sinu, talaði ekki orð við
nokkurn mann i tvo sólarhringa, en grét eins og barn. Fátt sannar
betur hve leikurinn og sviðsetningin var honum i blóð borin — vitan-
lega gat skarpgreindum unglingi aldrei komið til hugar að hann yrði
tekinn í herþjónustu, eins bæklaður og hann var.
Joseph Goebbels lauk náminu i menntaskólanum og tók slúdentspróf.
8 VIKAN
Það er nálega óskiljanlegt, að tiltölulega fámennur hóp-
ur ofstækismanna skyldi á skömmum tíma ná fullum yf-
irráðum yfir menntaðri þjóð og steypa ekki aðeins henni,
heldur öllum heiminum út í ófriðarbál. Goebbels er ein
skýringin: Hann sefjaði múginn með ótrúlegri tækni og
mikilli mælskulist.