Vikan - 03.05.1962, Blaðsíða 13
Franskur
útsaumur
Franskur útsaum-
ur cr aðailcga noi-
aður til nierkinga á
sængurfatnaði. Þá er
saumað með D.M.C.-
„brodergarni“, 1
þáttur dreginn úr
garr.inu, til þess að
minnka snúðinn. —
Saumað er frá vinstri
til hægri og sporin
látin liggja þétt og
hallalaus, eins og
sést á myndinni.
Algengt er að sauma lykkjuspor undir
franskan útsaum, til þess hann verði
hærri og formið greinilegra.
Skraut á
borðið
Þótt afmælisborðið sé oft þakið góðgæti, vantar stundum eittlivað
til að hýrga það og gefa léttan, skemmtilegan blæ, sem falli vel við
kátínu aímælisbarnsins og litlu gestanna. Hér kemur borðskraut, sem
er ekki aðeins lífgandi, heldur líka auðgert og ódýrt.
Takið teiknipappír, strikið á hann ferninga lxl cm í þvermál, teiknið
siðan mynztrið af skýringarmyndinni og klippið út.
Takið pappírinn, vefjið hann upp í hólk, festið með þvottaklemmum
og límið vel niður samskeyti. Takið síðan klemmurnar og skreytið
hólkinn með mislitum pappír, efnisafgöngum, garni og öðru litriku
efni, sem hugmyndaflugið býður.
Kex, tvíbökur og fleira
Hrökkbrauð:
250 gr heilhveiti, 1 tesk. sykur,
1 tesk. salt, % tesk. lyftiduft, 100
gr smjörlíki, 1 dl pilsner, bjór eða
vatn.
Þurru efnunum blandað saman
og smjörlíkið mulið saman við,
vökvinn látinn i og hnoðað laus-
lega saman. Látið standa á köld-
um stað í klukkutíma. Flatt út
mjög þunnt, lagt á smurða plötu
og skorið í ferhyrndar lengjur.
Bakað í 10 mín. við 200 st. hita.
Hvítt hrökkbrauð:
500 gr hveiti, 1 tesk. lyftiduft,
250 gr smjörlíki, V tesk. salt,
% tesk. sykur, 1 dl vatn, 3 egg,
2—4 matsk. kúmen.
Lyftiduftið sett í hveitið og
smjörlíkið mulið saman við. öllum
hinum efnunum bætt í og deigið
hnoðað, flatt þunnt út, stungið
á víð og dreif með gaffli. Sett á
smurða plötu og skorið í ferhyrn-
inga,, aða bakað heilt og brotið i
stykki eftir að búið er að baka
það.
Rúgkex:
75 gr smjörliki, 250 gr rúgrojöi,
1 matsk. kúmen, 2 tesk. sykur,
1 dl vatn, % tesk. salt. (Líka má
hafa helming rúgmjöl og helming
hveiti).
Smjörlikið mulið saman við
hveitið og öllu öðru þætt í og allt
hnoðað saman. Látið standa í
klukkutima á köldum stað og fletj-
ið það siðan þunnt út, leggið á
plötu og skerið i Jerhyrninga.
Stingið það út með gaffli og bakið
í 8—10 mín. við góðan hita. Þetta
verða u. þ. b. 50 stykki.
Hafrakex:
200 gr haframjöl, 65 gr smjör-
líki„ 40 gr hveiti, 50 gr sykur, 6
matsk. mjólk, 6 tesk. eggjaduft.
Ef til vill % tesk. lyftiduft eða
framan í tesk. hjartarsalt, eða
hvort tveggja,
Smjörið og sykur-
inn hrært vel saman
og . mjólkinni jirært
saman við. Hveitinu,
haframjölinu og eggjaduftinu bætt
í og deigið hnoðað, flatt út og
búnar til kringlóttar kökur með
glasi eða blikkmóti. Bakað ljós-
brúnt.
FljótbakaSar
heilhveitibollur:
250 gr heilhveiti, 1 tesk. sykur,
2 tesk. lyftiduft, 50 gr smjörlíki,
1 dl mjólk.
Hveiti, sykri og lyftidufti bland-
að saman og smjörlíkið mulið út
í, mjólkinni bætt í, allt hnoðað
lauslega. Búnar til bollur, sem eru
smurðar með eggi eða mjólk, og
bakaðar við 200 st. hita í 15 mín.
Verða u. þ. b. 12 bollur.
Hveitikex:
(Þrjár uppskriftirj.
I. 500 gr hveiti, 200 gr smjörl.,
2 egg, rúmur 1. mjólk, 1 tesk. salt,
1 tesk. sykur.
Smjörlíkið mulið í hveitið, syk-
ur og salt sett í og hnoðað vel upp
með eggjunum og mjólkinni. Látið
standa i klukkutíma, stungið í það
með gaffli og gert úr því kringlótt
eða ferhyrnt kex.
II. 500 gr hveiti, 125 gr kart-
öflumjöl, 3 tesk. hjartarsalt, 125
gr smjörliki, 2V di k'alt vatn. Búið
til og bakað eins og fyrsta upp-
skrift.
III. 625 gr hveiti, 250 gr smjörl.,
35 gr sykur, 1% dl vatn, 1 egg.
Sama aðferð og við hinar upp-
skriftirnar.
Litlar tvíbökur:
(Tvær uppskriftirj.
I. 250 gr hveiti, 1 egg, 65 gr
smjörl., 50 gr sykur, 1 dl mjólk,
1 tesk. lyftiduft, einhverjir drop-
ar ef vill, helzt kardimommu-
dropar.
Smjörl. mulið í þurru efninu og
öllu hnoðað vel saman og búnar
til lengjur, og síðan litlar kúlur,
jafnstórar og tvibökurnar eiga að
vera. Látnar á vel smurða plötu
og bakaðar ljósbrúnar. Þá eru
þær skornar i sundur með vel
beittum hníf, látnar
aftur í ofninn og bak-
aðar við lítinn hita.
Framhald á bls. 36.
VIKAN 13