Vikan


Vikan - 03.05.1962, Page 18

Vikan - 03.05.1962, Page 18
f R a M H S L D <5 s a q s N f O. H L U T 1. María hló. „Það verð ég að segja Anítu. Hún vildi endilega að ég kæmi heim með sér í .... “ María hugsaði sig um eitt andartak. „Freyðibað ...“ „Við seldum mikið af freyðibað- sépu í lyíjabúðinni i dag. Ég hefði átt að færa þér einn pakka. Hvaða tegund notar Anita?“ „Svartar orkídeur." Tony hristi höfuðið, það átti ekki við Maríu. ,,Við höfum betri tegundir á boðstólum," sagði hann. „Ég færi þér einn pakka á morgun og kannski eitthvað fleira." „Það máttu ekki gera, Anton." „Hví ekki það, María?“ Hún tók að skoða mynztrið i líni, sem lá á borðinu. „Anita fór heim til að gera sig fallega og töfrandi “ . E'inmitt það.“ María sneri sér að honum. „Vegna Bernardos .... þegar bardaganum er lokið. Hvers vegna verða þeir að vera að berjast? spurði ég hana. Og hverju heldurðu að hún hafi svarað? Hún sagð: að karlmenn yrðu að berjast til að hljóta þá fullnægingu, sem dans- inn og ....“ María roðnaði við og hikaði sem snöggvast, „jafnvel stúlk- ur gætju ekki veitt þeim. Anita segir að bróðir minn verði svo æstur og hraustur eftir bardagann, að eigin- lega þyrfti hún þess ekki með að fara í freyðibað." Hún þagði andartak. „Aníta veit, að þú ætlaðir að koma hingað. Ég gat ekki losnað við hana með öðru móti.“ „Ég skil.“ Tony varð alvarlegur á svipinn. ,,Og hvað sagði hún um Það?“ „Að við, þú og ég, værum bæði viti okkar fjær.“ „Hún hefur þá sömu afstöðu og Bernardo gagnvart mér, og því að við hittumst." Maria hristi höfuðið og Tony las það úr augum hennar, að jafnvel Þótt svo hefði verið, þá hefði Maria ekki látið það aftra sér. „Hún sagði bara að við hlytum bæði að vera brjáluð, fyrst við ímynduðum okkur að við gætum hitzt þannig. Hún sagði að slíkt væri óhugsandi." ,,Hvers vegna?“ „Hún fylgir okkur að málum,“ svar- aði María. „En hún hefur líka á- hyggjur okkar vegna.“ „Ekkert getur unnið okkur mein, María. Hvorugu okkar. Og ég skai segja þér hvers vegna.“ Hann lagði báðar hendur sínar létt á öxl henni. Horfði beint í augu hennar. „Vegna þess að við svífum enn á skýinu okk- ar. Og þeir góðu töfrar vernda okkur.“ „Það eru líka til illir töfrar," sagði María. ,,Svartigaldur!“ Og það var sem hana hryllti við. „Tony — þú verður að segja mér satt .... ég verð að fá að vita það . . . ." „Ég skal alltaf segja þér satt.“ „Ætlar þú að taka þátt i þessurn bardaga?" Hann varp þungt öndinni. „Ég ho" ekki verið ráð'nn í hvort heldur ég ætti að gera; ekki fyrr cn nú, þogar þú spyrð mig. Nú er ég ekki lengur á báðum áttum. Ég tek ekki neinn þátt í bardaganum. Ég fer heim á eftir, hef fataskipti og heimsæki þig • . • „Fyx-st verð ég að tala við foreldra mína,“ svaraði hún, og var nú á- kveðin. „En áður en ég geri þr.ð, verður þú að sjá svo um að ekkert verði úr þessum bardaga." „Þeitn kemur vitanlega saman um að við skulum láta gifta okkur í kirkju ...“ „Ég kom i veg fyrir að þeir berðust í kvöld er leið. Þetta verða ekki ann- að en venjuleg slagsmál. Og Bern- ardo á ekki á hættu að verða fyrir neinum teljandi meiðslum." Hún hristi enn höfuðið. „Við meg- um ekki láta Þá berjast. Það er aldrei nema til ills eins.“ „María,“ r.iælti hann rólegur. „Ég hef dvalizt hérna lengur en þú. Ég á við . . . . “ Honum vafðist tunga um tönn, þegar hann varð þess var að enn var sem hiollur færi um hana. „Ég á við, að þessi bardagi þeirra geti ekki haft nein áhrif á samband okkar. Það gerist ekkert alvarlegt, vertu viss. Og gerðu það nú fyrir mig að brosa eins og áður.“ „Ekki nema þú gerir þetta fyrir mig,“ sagði hún „Og ekki fyrst. og fremst mín vegna, heldur okkar beggja. Þú verður að koma í veg fyr- ir að þeir berjist ....“ „Fyrst þú biður mig okkar beggja vegna, verð ég r.ð gera það,“ svaraði hann. , „Geturðu það?“ Hún klappaði sam- an höndunum. „Geturðu það?“ end- urtóii hún og þrýsti hendur hans. ,,Þú vilt ekki einu sinni að þeir berjist með hnefunum? Gott og vel, I þá verður ekkert úr því . .. .“ „Ég treysti þér. Þú ræður yfir ein- hverjum töframætti," sagði hún lágt. Það var sannarlega tími til Þess kominn að hann vefði hana örmum aftur, og hún lét höfuðið hvíla á öxl honum, eins og hún væri þreytt af hitanum. „Gætirðu ekki verið í hvíta kjólnum þínum? Mér gafst ekki tími til að virða þig nógu vel fyrir mér, skilurðu." „Hvíta kjólinn?" „Hvíta kjólinn." Varir hans snertu eyra hennar þegar hann hvíslaði nafn hennar. ,,í kvöld, þegar ég kem að heimsækja þig." „Þú mátt ekki heimsækja mig.“ Henni brá. „Móðir min ....“ „Verður að kynnast móður minnl áður en langt um líður,“ greip hann fram i fyrir henni ,,En fyrst verð ég að kynnast móður þinni. Svo get ég boð'ð henni með okkur, þegar þú kemur heim til að kynnast móður minni. Ég bý með móður minni, skil- urðu; faðir minn er löngu látinn.“ „Mér þykir þetta leitt, Anton." Hún losaði sig úr örmum hans og hann gerði ekki beina tilraun til að halda henni fastri, þótt hann gjarnan vildi. „Ég veit ekki hvað segja skal,“ sagði hún hikandi. „En ég veit það,“ sagði Tony og var hinn öruggasti. „Taktu nú eftir," | sagði hann og strauk armana, rétt e'ns og töframaöi'.r, sem brettir upp crmarnar áður en hann tekur að fremja töfrabrögð sín , Það verður ei-.kert í veginu.n racð þær. Og þú hofur sj'lf sagt, að ég væri töfra- rOur. Sj-'mu nú ...." Hann gekk að gínu einni, som stóð á gólfinu, vafin ble'ku híalíni. Hann skók fing- r.r'nn ao ginunni, snari sér síðan að Maríu. „Þetta er móðir mín. Hún kemur inn úr eldhúsinu til að heilsa þér og bjóða. þig velkomna. Hún er yf.'rleitt alltaf í eldhúsinu, þegar hún cr heima." , L'.i hve hún er fínt klædd, svona þegar hún er í eldhúsinu," hvíslaði María, og þoð brú fyrir lotningar- hreim í röddinni. „í’að er vegna Þess að þú ert kom- in í hvíta kjólnum þínurn," svaraði hann. Hann tók sér stöðu bak við gín- una og hallaði henni sitt á hvað. „Nú er hún að virða Þig fyrir sér. Segir v.ð sjálfa sig, að þú sért ljómandi

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.