Vikan - 03.05.1962, Síða 21
f
Fimm þeirra keppa um
þrjár milljónir kröna!
í Fegurðarsamkeppninni 1962
Nú er komið að ykkur, lesendum Vikunnar, að velja
þær fimm stúlkur, sem eiga að keppa um verðlaun,
sem nema að verðmæti allt að þrem milljónum króna.
Undanúrslitum í Fegurðarsamkeppninni 1962 lýkur með þeim hætti, að hér
birtast myndir af öllum þeim þátttakendum, er svo langt náðu. Lýkur þar
með þeim þætti, sem Vikan á í Fegurðarsamkeppninni að þessu sinni, en
nú er komið að lesendum blaðsins að greiða atkvæði. Atkvæðaseðill er á
bls. 20 og atkvæði verða að hafa borizt dómnefndinni fyrir hádegi, laugar-
daginn 12. maí. Atkvæðin ber að senda í póstbox 368.
Vikan birtir hér tvær myndir af hverri stúlku og auk þess hæð og önnur
mál svo hægara sé um samanburð. Atkvæði lesenda verða höfð til hliðsjón-
ar fyrir dómnefndina, en hún ræður endanlegum úrskurði.
Fimm þessara stúlkna munu koma fram í úrslitakeppninni í Austurbæj-
arbíói laugardaginn 12, maí. Þær munu koma fram á kjólum og baðfötum,
en auk fegurðarsamkeppninnar verða ýmis önnur skemmtiatriði.
Fegurðarsamkeppninni lýkur með krýningarhátíð í Glaumbæ að kvöldi
12. maí.
Dómnefndina skipa
Jón Eiríksson, form. nefndarinnar.
Jóhannes Jörundsson, augiýsinga-
stjóri Yikunnar.
Eggert Guðmundsson, listmálari.
Ásmundur Einarsson, blaðamaður.
Sigurður Magnússon, fulltrúi,
Loftleiðum.
Karólína Pétursdóttir, bókari.
Loftleiðum
Sigríður Gunnarsdóttir, tízkusér-
fræðingur.
Atkvæðaseðillinn er hér
atkvæðin verða að hafa
borizt fyrir hádegi
laugardaginn 12. maí
Rannveig Ólafsdóttir
Reykjavík.
Hæð: 170 cm. Brjóst: 96 cm.
Mitti: 56 cm. Mjaðmir: 96 cm.