Vikan


Vikan - 20.09.1962, Blaðsíða 8

Vikan - 20.09.1962, Blaðsíða 8
Gr'nclurnar viS skálana koma í vej menn róti i'jórárdalsvikrinum meS Sniöll hugmynd og snyrtileg. < Svante Hjertberg verk- fræðingur í íslandsúlpunni. Haraldur Sigurðsson fyrir aftan. fyrir, að Ef dæma má af svipnum, sér inn. þá eru þeir Jakob Jakobs- son, Árni Snævarr og Sveinn Jakobsson, alls eklci óánægðir með kaffiborðið hjá kvenfólkinu. Mér var sagt, að hér væri fallegt og þess vegna kom ég, sagði Celia Washbourn frá Cambridge. Jón Sigurðsson vinnur fyr- ir Veðurstofuna, en auk þess er hann ritstjóri blaðs- Með sælubros á vör. í>órður Kristjánsson og Stefán ins „Búrfell". Stefánssen, öðru nafni Hemineway og géneráll Patton. Jón Ögmundsson b-jr- maður, refaskytta, hag- yrðingur o. fl. § '■ %,/&//; , '' ■ , Æ / wf'' -4-; * £ m > - • V 1111 9 9 Norðan við Selhöfða gnæfir Dímon, sérkenni- legur hamar og þar norður af Fagriskógur. Að norðanverðu lokast dalurinn af Heljarkinn, Fossöldu og Stangarfjalli. Suður úr Fossöldu gengur rani, er nefnist Rauðukambar og sunnan við Rauðukamba er Reykholt, en þar eru all- miklar vikurnámur, sem nýttar hafa verið um árabil. Milli Fossöldu og Stangarfjalls fellur' Fossá niður af heiðarbrún og myndar HáafoSs. Sunnan undir Stangarfjalli stendur bærinn að Stöng, og þar skammt frá er Gjáin, einhver sérkennilegasta og fallegasta náttúrumyndun dalsins. Að austan takmarkast dalurinn síðan af suðurhluta Stangarfjalls, Skeljafelli og Búrfelli syðst. í næsta nágrenni gnæfir drottning íslenzkra eldfjalla, Hekla, sem á liðnum öldum hefur verið ógnvaldur nærliggjandi héraða. Einu sinni komu höfuðskepnurnar sér sam- an um að gjöreyða byggð í Þjórsárdal. Nú er allt útlit fyrir, að íslendingar séu í þann veginn að snúa taflinu við með því að koma sér saman um að beizla náttúruöflin. Reyndar verður Hekla látin óáreitt, að minnsta kosti í bili, en Þjórsá hneppt í fjötra í staðinn. Þessa dagana er verið að leggja síðustu hönd g VIKAN á undirbúningsrannsóknir vegna fyrirhugaðrar stórvirkjunar Þjórsár. Virkjunarstaðurinn mun verða í suðurhluta Skeljafells, þar sem heitir Sámsstaðamúli, eftir bæ, sem þar stóð til forna. Síðastliðið vor reis á Sámsstöðum dálaglegt „býli“. Þar búa nú um 50 manns í reisulegum skálum og una glaðir við sitt. Þetta eru bygg- ingaverkfræðingar, jarðvegsfræðingar, jarð- fræðingar, mælingamenn, kortlagningarmenn, bormenn og fleiri sérfræðingar með fjöl- mennan flokk alskeggjaðra eða skegglausra að- stoðarmanna sér við hlið. Við lögðum leið okkar upp í Þjórsárdal fyrir skömmu og virtum fyrir okkur framkvæmdir þar. Við ókum sem leið liggur „upp í dal“, beygðum út af Sprengisandsveginum við Hjálp- arafleggjarann, ókum fram hjá Hjálparfossi, niður að Fossá. Þar urðu á vegi okkar fyrstu vegsummerki væntanlegra virkjunarfram- kvæmda, spáný trébrú yfir ána. Þá er rétt kom- ið að aðsetursstað þeirra dalbúa. í kverkinni milli Sámsstaðamúla og Búrfells hafa þeir reist skála sína, skammt frá hinu forna bæjarstæði. Húsin eru öll reist á sandi í orðsins fyllstu merkingu, en virtust þó hin stæðilegustu. Kring- um þau og að öllum dyrum hefur verið komið fyrir trégrindum, sem gengið er á. Svona grind- ur höfðum við hvergi séð nema í Laugunum görnlu, og varð okkur starsýnt á. Svo til hjálp- arlaust fundum við út af eigin hyggjuviti, að tdgangurinn væri sennilega sá að reyna að koma í veg fyrir, að skálabúar bæru með sér fleiri tonn af fósturjörðinni inn á gólf. Við gengum eftir „landgöngubrúnni“ og knúð- um dyra. Snaggaralegur náungi í stutterma- skyrtu með úfinn haus lauk upp og virti komu- msnn fyrir sér. Við kynntum okkur og báðum hann að leiða okkur fyrir fyrirmenn staðarins. Piltur leit um öxl og kallaði: „Guðmundur, blaðamenn!" Svo birtist Guðmundur, ungur maður krafta- legur og riðvaxinn. Hann er Sigurðsson og er yfirmaður jarðborananna í Þjórsárdal, en jarð- vegsrannsóknir eru snar þáttur í undirbúnings- framkvæmdunum. Guðmundur hefur verið verk- stjóri og eftirlitsmaður við jarðboranir síðan 1945. Hann hefur meira og minna unnið við allar virkjanirnar, sem síðan hafa verið reistar hér á landi.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.