Vikan


Vikan - 20.09.1962, Blaðsíða 17

Vikan - 20.09.1962, Blaðsíða 17
Bölvaöi og sparkaöi svefnpokanum af fótum sér og skreið út i sólskinið. Hann sá þá Prowse og Greatorex koma á harðahlaupum út úr kjarrinu, kallandi og veifandi. Og hann tók ekkert eftir því að hann hafði fengið blóðnasir við högg- ið, fyrr en blóðið tók að renna ofan i hann og hann fékk hóstakast og kvölin í síðubrotinu magnaðist um all- an helming. En hann reyndi að láta sem hann vissi ekki af henni. FIMMTI KAFLI: ALISON varð gripin hamslausri gleði, þegar hún sá leitarflugvélina nálgast stöðugt og stefna beint yfir eiðið, spölkorn fyrir sunnan tjaldstað- inn. Þess gat ekki orðið löng bið, að hana bæri yfir.... að flugmaðurinn vaggaði henni til, og gæfi þar með til kynna, að hann hefði komið auga á þau. „Hún er að koma!“ hrópaði einhver. „Okkur verður bjargað!" Karlmennirnir kunnu sér ekki læti fyrir fögnuði, dönsuðu og hoppuðu og sveifluðu örmunum eins og óðir væru, æptu og öskruðu fullum hálsi. „Bjargað... .okkur verður bjarg- að!“ heyrði hún sjálfa sig taka und- ir; heyrði sína eigin rödd titra af fögnuði, og þó fannst henni sem hún kæmi ekki úr sínum eigin hálsi. Prowse hoppaði og skoppaði, stirð- lega eins og kálfur fyrir framan hana; nam staðar sem snöggvast og festi á henni gleðiölvuð augun. Sem snöggv- ast greip hann löngum fingrum um arm henni, en sleppti óðara aftur takinu. „Hvað sagði ég ekki?“ spurði hann sigri hrósandi. Og enn brá hann stirðbusalega á leik. Teygði upp langa armana og hrópaði: „Komdu, elskan... ,komdu“ Hreyfilgnýrinn titraði I taugum Alison, þandi þær til hins ýtrasta. Dahl brosti til hennar, lyfti henni skyndilega upp á örmum sér og dans- aði léttilega með hana um lausamöl- ina. „Allt í lagi, allt í lagi", sönglaði hann iaglaust. Snart munn hennar vörum sinum, dansaði með hana á örmum sér og brosti. „Komdu, elskan.... komdu", kallaði Prowse bænarrómi. Og allt í einu var sem Alison fyndi vakna með sér einhverja efakennd, sem hún þó fyrirvarð sig fyrir. Það getur ekki hjá því farið, að flugmað- urinn komi auga á okkur....Guð minn almáttugur, beindu augum hans að okkur.... „Elskan.... “ kallaði Prowse. En þess sáust enn engin merki, að l því rauðgul reykjarsúla, allhátt i loft flugmaðurinn hefði komið auga á þau. i upp. Þá hætti hún að skara i eldinn. Þá gerðist það, að Burd vélstjóri^ Greatorex gamli, sem nú fyrst var rankaði við sér. „Reykblysin!" hróp- ' Nokkrum klukkustundum síðar hrökk Dahl upp við það, skjálfandi af kulda og með kvöl í höfðinu, að einhver kallaði á hann með nafni og þegar hann opnaði augun, sá hann Alison Dobie standa yfir sér. Hún vissi ekki, hvort þetta hefði nokkra þýðingu, en þar var þó aö minnsta kosti tilraun. I sama bili sá hún, sér til ósegjan- legs léttis, að Dahl hafði tekizt að kveikja á blysinu, og þyrlaðist upp frá aði hann. „Við höfum gleymt reyk-| blysunum... Það var eins og fagnaðarölvuninl rynni af þeim i einni svipan. Dahl hafði þegar tekið sprettinn að flugvélarflakinu, þar sem reykblysin voru geymd. Flugvélin var nú komin á móts við eiðið, þar sem bálið var, en stefndi spölkorn frá, þó ekki lengra en svo, að Alison gat greint flugmanninn inn um rúðuna. Og nú gat hún ekki með nokkru móti staðið aðgerðarlaus. Hún valdi í skyndi þurrustu sprekin úr viðar- hrúgunni, varpaði þeim á eldinn og skaraði í með viðargrein. Fyrst í stað var sem eldurinn ætlaði að kafna und- ir sprekunum, en skyndilega gusu upp 'Í'f£ 1 farinn að átta sig á hlutunum eftir all- jan fögnuðinn, kallaði allt í einu: |,,Senditækið, Sam... .1 guðanna bæn- m, reyndu að ná sambandi við flug- vélina.... “ Flugvélin sneri við. Flaug á brott. Burd starði orðlaus og að gráti kom- inn á Greatorex gamla. Og allt í einu var sem hann áttaði sig á þvi, sem sá gamli hafði verið að segja. Hann tók til fótanna að flugvélarflakinu, sem mest hann mátti. Þetta gerðist allt á skammri stundu. Fögnuðurinn hafði gripið þau öll eins og æði, svo þau gættu ekki neins.... það var því líkast sem flugeldi hefði verið skotið í loft upp og logasindur hans varpaði fjöllitu, óraunhæfu skini á umhverfið eitt andartak. Og nú hafði eldur sá slokknað og hálfu En Dahl sveiflaði enn reykblysinu, rétt eins og hann annað hvort gerði sér það ekki ljóst eða vildi ekki við- urkenna það, að tækifærið væri hjá liðið. Alison gat ekki haft af honum augun, starði á hann eins og dábund- in og fann annarlegan bruna á vörum sér. Eins og í þoku greindi hún þá Greatorex gamla og Prowse, þar sem þeir stóðu hlið við hlið, gamli maður- inn álútur og niðurbrotinn, Prowse í háir logar með snarki og gneistaflugi. myrkara yfir en fyrr. með uppréttan arminn eins og stjarfakasti. Burd kom til baka frá flakinu. Hann gekk hægum skrefum, eins og miðaldra tennisleikari, sem heldur út aí vellinum eftir að hafa tapað leikn- um, og kemst ekki hjá að viðurkenna þá staðreynd, að hann sé ekki lengur maður til að leggja í slíka raun. Surrey stóð við hlið henni. Hún hafði ekki tekið eftir því, að hann væri kominn á vettvang, en þarna stóð hann. Hann ætlaði að segja eitthvað, en orðin drukknuðu i hóstEikasti; hann hélt vasaklútnum fyrir vit sér, en tárin streymdu af augum hans og andlitið afmyndaðist af sársauka. Alison sá Prowse nema staðar, stara á Surrey skelfdur og undrandi, eins og hann sæi afturgöngu. Greatorex gamli neri vinstri arm sinn ákaft. Þegar hún sneri aftur að bálinu, heyrði hún Burd segja ómvana röddu: „Þú hóstar blóði, Des.... Heyrirðu það ekki, þú hóstar blóði...." Hún reikaði að bálinu eins og svefngengill. Það hafði ekki átt fyr- ir þeim að liggja að þeim yrði bjarg- að i þetta skiptið, hugsaði hún. Og vegna þess, hve leitarsvæðið var vítt, mundu þeir ekki fljúga yfir neinn hluta þess oftar en einu sinni. Henni varð litið um öxl til Dahls. Hann stóð enn með reykblysið í höndum sér. Ösjálfrátt bar hún fingur að vörum. Það var eins og koss hans brynni þar enn og áhrif hans seitluðust um hverja taug. Lómurinn úti á vatninu rak upp hlátur. „Hvað kætir þig, lómurinn þinn?" Dahl hló sjálfur við. „Jú, jú, fyrir alla muni, haltu áfram að hlægja". Hann lét hallast upp að trjástofn- inum, teygði hægri höndina aftur fyr- ir sig og þuklaði mosann þangað til hann fann flöskuna. Það var eins og honum væri það ákaflega mikilvægt að missa ekki sjónar á lóminum. Svo skrúfaði hann stúthettuna af flðsk- unni, bar hana að vörum sér og teig- aði beizkan drykkinn þangað til tár- in stóðu í augum hans og hann þraut andrá. Þegar hann fór að svipast um eftir lóminum, var hann hvergi sjáan- legur, og í stað þess að finna til vel- líðunaráhrifa áfengisins, varð hann gripinn sárri einmanakennd. Kann- ske vegna þess að lómurinn var horf- inn. Þá kom fuglinn allt í einu aftur í ijós, og að þessu sinni við ármynn- ið; stór, rennilegur fugl með grann- an háls. Og enn rak hann upp hlátur og var horfinn. Hrekkjalómur, hugsaði Dahl með sér. Birtist, hverfur, birtist aftur og maður veit aldrei hvar. Rekur upp hæðnishlátur og er svo farinn. Jæja, í hvaða mynd skyldi svo ólánið dynja yfir í þriðja skiptið? Fyrst var það, að þeir komust að raun um að svæðið var hvergi að finna á landabréfi. Þvi næst það, að flug- maðurinn skyldi ekki koma auga á þau. Ógæfan sló mann, að sögn, alltaf þrisvar sinnum I röð. 1 hverju mundi þriðja höggið vera fólgið? Hann lagði við hlustirnar, og nú, þegar hlátur lómsins var hljóðnaður, varð þögnin dýpri en áður, náði heimsendanna á milli. Engar borgir, hugsaði hann, engar borgir nema í minningu og draumum. Hér eftir verður það eingöngu auðnin, skóg- arflákar, fjöll og vötn. Og gamall bjálkaköstur, sem Indíánaijnir létu hér eftir, þegar þeim var hér ekki lengur lífvænlegt. Það verður langt á milli sopanna, eins og maðurinn sagði, hugsaði hann enn, um leið og hann saup á, og varð nú að lyfta flöskunni hátt, þvi að nú var lítið orðið eftir í henni....Og hvað þá, hugsaði hann og varð allt I einu skelfingu gripinn; ekki nema tvær flöskur og þessi smásopi, og hvað svo? Kannske yrði það þriðja ógæfan? Ösjálfrátt fann hann til sektar- kenndar, sem að visu risti ekki djúpt, sektarkenndar gagnvart þeim hinum, og honum varð litið um öxl í áttina að eiðinu, sem hann þó mátti vita, að hann gæti ekki séð, því að hann var mílu vegar þaðan og lágan skógarás bar á milli. Þá hló lómurinn enn, og Framhald á bls. 25. IIK4N 17

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.