Vikan - 20.09.1962, Blaðsíða 28
i
t?l\P!DQP
Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags.
Hrútsmer'kiÖ (21. marz—20. apríl): Ekki skaltu
búast við því að vikan verði neitt svipuð því, sem
þú varst að vona, þótt ekki verði h,ún samt nei-
kvæð á neinn hátt. Einhver breyting verður á
högum þínum, og líklega þá til batnaðar Þú ferð
í skemmtilegt ferðalag í vikunni, og rnuntu umfram allt
verða mjög upptekinn af einum ferðafélaga þínum.
Nautsmerkið (21. apríl—21. mai): Þú munt glíma
við verkefnið, sem þú byrjaðir að reyna við í
seinustu viku, og nú verður þér mun meira ágengt
en i fyrri viku. Þó verður líklega talsverð bið á
því að þú ljúkir þessu verkefni, því að ýmislegt
verður til þess að glepja þig í þessari viku, einkum seinni
hluta dagsins. Vinkona þin sýnir þér nýja hlið á sér.
Tvíburamerkið (22. maí—21. júni): Þetta verður
dálítið óvenjuleg vika, einkum hvað öll samskipti
þín og kunningja þinna snertir. Þú hafðir gert
þér vonir um sendingu í vikunni, en láttu þig ekki
dreyma um að fá hana, fyrr en í fyrsta lagi í
næstu viku. Kona, sem nýlega hefur kynnzt þér, sýnir þér
einhvern kulda, og veizt þú í fyrstu ekki af hverju stafar.
Krábbamerkið (22. júni—23. júlí): Þetta verður
skemmtileg vika í flesta staði, þótt eitt atvik
verði þó líklega til þess að varpa einhverjum
skugga á alla sæluna, líklega rétt eftir helgina,
en þú ert að líkindum maður til þess að láta það
ekki á þig fá. Þú hefur lifað heldur tilbreytingarlitlu lifi
undanfarið. en i þessari viku gefast þér mörg tækifæri.
Ljónsmerkið (24. júli—23. ágúst): Einn kunningi
þinn mun koma óvenjumikið við sögu þína þessa
dagana. Þú villt allt gera til að þóknast honum,
BBTiM en líklega kanntu enn ekki almennilega á honum
lagið. svo að þér verður litið ágengt. Það hefur
borið allt of mikið á óþolinmæði í fari þínu undanfarið, og
verður þú að venja þig af þessum fjára, heilsunnar vegna.
Meyjarmerkið (24. ágúst—23. september): Ekki
skaltu halda að þessi vika verði neitt svipuð þvl,
sem þú hafðir búizt við — nei, hún verður mun
viðburðaríkari og skemmtilegri, og ekki þá sizt
helgin. Þú hafðir ferðalag á prjónunum, og nú
átt þú kost á því að leggja upp í þetta ferðalag. Það skaltu
umfram allt gera, ef þú ert vel undir það búinn. Heillatala 4.
Vogarmerkið (24. sept.—23. okt.): Nú er hætt við
því að fari að bera of mikið á lesti einum í fari
þínu, og er það því að kenna, að þú missir til-
trúna á persónu, sem einhvern veginn hafði bælt
niður þennan löst I fari þínu. Þó eru líkur á því
að einhver kunningi þinn verði til þess að bjarga þessu við
á ný. Miðvikudagurinn er heilladagur fyrir unga fólkið.
Drekamerkið (24. okt.—22. nóv.): Undir helgina
gerist eitthvað, sem á eftir að breyta áformum
þinum varðandi nána framtíð til mikilla muna.
Vinur þinn hverfur af sjónarsviðinu um stundar-
sakir, og kemur það sér illa fyrir þig, því að þú
barfnaðist hans einmitt hvað mest þessa dagana. Þú átt
von á góðri sendingu, líklega á mánudag. Helgin skemmtileg.
Bogmannsmerkið (23. nóv—21. des.): Þetta verð-
ur hin þægilegasta vika í alla staði. Þú munt lifa
áhyggjulausu lífi — og það er eins og þú getir
leyft þér beinlínis að liggja i leti þessa dagana.
Þú verður fvrir dýrmætri lífsreynslu, líklega um
helgina, og verður það atvik til þess að breyta viðhorfi
þínu til vissrar persónu mjög til batnaðar. Heillalitur rautt.
Geitarmerkið (22. des—20. janúar): Þetta verð-
ur hin þægilegasta vika, þótt ekki gerist enn þeir
stórviðburðir, sem þú áttir hálfvegis von á. Þú
metur mjög vissan eiginleika í fari eins vinar
þins — en ekki virðist samt bera á því að þú gerir
bér far um hið sama — og þarftu þessa eiginleika mjög með
þessa dagana. Þú verður fyrir óréttlátri gagnrýni.
Vatnsberamerkið (21. jan.—19. febr.): Það er eins
Þú sért eitthvað utan við þig þessa dagana, og
þér verður óvenjulitið úr verki. Það kemur þó
til allrar hamingju ekki að sök, því að þú átt síð-
ur en svo annríkt. Þú skalt ekki kaupa neitt, sem
áður hefur verið notað, í þessari viku, því að það gæti að-
eins reynzt þér illa. Heilladagur kvenna fimmtudagur.
Fiskamerkið (20. febr.—20. marz): Þetta verður
dálitið óvenjuleg vika, einkum hvað allt félagslíf
snertir. Þú munt umgangast félaga þína óvenju-
lítið, en engu að siður verður þú oft innan um
margmenni, og þá stundum hrókur alls fagnaðar.
Þú færð nýstárlegt og skemmtilegt verkefni að glíma við i
vikunni, og verður það til þess að glæða áhuga þinn á sliku.
i