Vikan


Vikan - 20.09.1962, Blaðsíða 27

Vikan - 20.09.1962, Blaðsíða 27
KLe/BBURlKfN VIKU klúbburinn Klúbbblað íyrir börn og unglinga. Ritstjóri: Jón Pálsson. piiii Flugflotinn í höfn. ÞAÐ GAF A AÐ LÍTA allt að 70 tommu vænghafi. Línustýrðar vélflugur og fiarstýrð model, og vakti list- fiug þeirra mikla athygli, enda ekki ó hverjum degi, sem reykviskir unglingar sjá fjarstýrð flugmodel leika ým.sar listir í loftinu. Þessi þáttur sýningarinnar heillaði vitanlega áhorfendur, unga sem gamla. Tilgangur modelsýningar- innar var, að auka áhuga meðal æskufólks á flugmodel- smíði. Hér er um tómstunda- iðju að ræða, sem mjög er Eitthvað er í aðsigi. Kunnáttumenn búa vélarnar til flugs. PAÐ er alltaf margt um manninn á flugvell- inum í Reykjavík, þegar flugsýningar eru haldnar þar. Þannig var það líka sunnudaginn 26. ágúst s.l. Þá vakti það athygli margra, að börn og unglingar voru þar í yfirgnæfandi meirihluta. Hvers vegna? Jú, Flugfélag fslands, efndi til flugmodelsýningar þennan dag. Þó veður væri hið fegursta, hentuðu flugbrautir vallarins ekki hinum veikbyggðu vélum, svo sýningin fór að mestu fram á grasvelli Vals, skammt frá. Og þar gaf á að líta: Um 40 model, smá og stór, voru þar samankomin og um 15 „flugmenn" á aldrinum 10 til 50 ára. Þarna voru lítil teygjumodel, svifflugur, með < Tveir ungir menn leggja síðustu hönð á undirbúninginn. > Sérstæð og skemmtileg sjón. Flugan er komin á loft og hækkar flugið óðum. Þeir sýna áhorfendum flugurnar. útbreidd erlendis og árlega fara þar fram sýningar og kappmót. Modelsýningin 26. ágúst var fyrsta tilraun hér á landi og heppnaðist prýðisvel. Vonandi á hún eftir að glæða áhuga á þessari skemmtilegu tómstundaiðju, en nú mun meira úrval á boðstólum hér, en nokkru sinni fyrr, og verð- ur efnt til námskeiða í haust. Flugmodelklúbbur hefur ver- ið stofnaður og mikill áhugi ríkajndi. Stefna ber að ár- legum flugmodeldögum, en fyrst og fremst verður tak- mark klúbbsins auðvitað, að kennsla í flugmodelsmíði verði miðuð við tegundir, sem henta hér bezt, svo „smið- irnir“ nái sem mestum ár- angri við smíði og flug. — í vetrarbyrjun verður nánar vikið að þessu viðfangsefni hér í V-klúbbnum, með tilliti til væntanlegra modelsmiða úti um land, þar sem leiðbein- endur eru ekki við höndina. — Hér eru svo nokkrar myndir frá flugmodel-degin- um. * VIKAN 27

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.