Vikan - 22.04.1964, Síða 48
Framleiðsla Mátsteinsins
hófst fyrst hérlendis fyr-
ir rúmum þrem árum en
er þegar orðið eitt eftir-
sóttasta útveggjaefnið á
marðaðnum.
Mátsteinninn er framleiddur úr hinni viðurkenndu
Seyðishólarauðamöl úr hráefnanámum framleið-
anda í Grímsnesi um 70 km vegalengd frá Reyk|a-
vík — en ekki er horft í hinn mikla flutningskostn-
að á hráefninu, þar sem það er tvímælalaust hið
bezta fáanlega hérlendis af svokölluðum giallefn-
um. enda algjörlega hrein rauðamöl og tiltölulega
létt en samt með einn mesta styrkleika hérlendra
gjallefna auk þensluþols.
Mátsteinninn er mjög þéttur og efnismikill með þrem
8x8 cm holrúmum og lokast hólfin í nokkuð þykk-
um botni — að þýzkum sið — og fyrirbyggir það
rakaflökt í veggjunum. En rakaflökt er aðalorsök til
skemmda í hleðsluveggjum að áliti viðurkenndra
byggingarefnafræðinga. — Eldri gerðir hleðslu-
steina hafa verið opnir með stórum holrúmum og
þunnum veggjum, þ.e. efnislitlir og brotþolslitlir.
Vegna mikillar framleiðni er verðið á Mátsteinin-
um ótrúlega lágt — t.d. kostar Mátsteinn ca.:
100 m2 byggingu kr. 17.000,00
120 m2 byggingu kr. 22.000,00
135 m2 byggingu kr. 25.000,00
160 m2 byggingu kr. 29.000,00
200 m2 byggingu kr. 35.000,00
Ath.: Lauslega áætlað og fer eftir stærðum glugga
og dyra. Sendið teikninguna — þér fáið kostnað-
aráætlun um hæl.
Eitt viðurkenndasta útveggjaefnið á markaðnum í
dag — framleiddur eftir verkfræðilegum útreikn-
ingum og fyrirsögnum — teiknaður af einum
MÁTSTEINN
þekktasta og viðurkenndasta byggingarefnafræð-
ingi landsins — framleiddur í fullkomnustu gerð
amerískra hrististeypuvélasamstæða á markaðnum
— gufuhertur í sérstökum herzluklefum: „Mátsteinn".
Mátsteinninn hefur þeg-
ar verið notaður í tugi I
íbúðarhúsa og annarra :
bygginga um allt land :
með góðum árangri. j
Spyrjið þá sem byggt j
hafa úr Mátsteininum
og þér munið sannfær-
ast um kostina.
------------------------
Flutningur á Mátsteininum, hvert á land sem er,
er tiltölulega nokkuð hagstæður, t.d. vegur Mát- l
steinn úr Seyðishólarauðamölinni í ca.:
100 m2 byggingu um 14 tonn
120 m2 byggingu um 18 tonn
135' m2 byggingu um 20 tonn
160 m2 byggingu um 24 tonn
200 m2 byggingu um 30 tonn
Ath.: Lauslega áætlað. Gefum tilboð í flutning
hvert á land sem er.
Flytjum Mátsteininn á
byggingarstað eftir ósk-
um yðar með hagstæðu
akstursgjaldi í Reykja-
vík og nágrenni.
Gefum yður hagstæð tilboð um flutning á Mátstein-
um með flutningabifreiðum vorum til flestra ak-
færra staða á Suðurlandi, Vesturlandi og Norður-
landi miðað við kaup á Mátsteini og öðru bygg-
ingarefni í byggingu yðar. Leitið tilboða með sem
mestum fyrirvara. Flytjum plasteinangrunina með
Mátsteininum án aukakostnaðar í flestum tilfellum.
Sendið fyrirspurn yðar sem fyrst fyrir sumarið.
Mátsteinninn fæst afgreiddur i Reykjavík, Hafnar-
firði, Keflavík og í Þorlákshöfn um borð í síldar-
og fiskibáta eftir samkomulagi fyrir þá aðila víðs-
vegar um allt land er geta þannig flutt Mátsteininn
og annað byggingarefni að vertíðarlokum er bát-
arnir halda til heimahafnar. Vinsamlega pantið
slíka afgreiðslu með nokkurra daga fyrirfara.
Mátsteinninn er það
sterkur, að hann þol-
ir yfirleitt hverskonar
hnjask í flutningum og
því flytjanlegur með
skipum t.d. til Austur- :
lands, en þangað er 1
skipafragt hagstæðust
þ.e. ódýrust.
Með notkun Mátsteinsins sparið þér allan mótaupp-
slátt og timpurkaup ásamt frásláttarvinnu með
meiru. I kostnaðarsamanburði hlaðins húss úr Mát-
steini við uppsteypt hús má reikna með að Mát-
steinninn kosti álíka og hrá steypa í mótin. Miðað
við hagstæða hleðslu getur sparnaður þannig orðið
allt að 40—50% og í mörgum tilfellum meiri eftir
aðstæðum.
Stærð: L: 39,5 cm, H: 19,5 cm, þykkt: 20 cm.
Stöðluð stærð í vegg: 40x20x20 cm. Magn í hvern
veggfermeter: 12 stk. Þyngd: 15 kg/stk. úr Seyðis-
MÁTSTEINN
hólarauðamöl. Þyngd: 22 kg/stk. úr steypusandi.
Staðlaður við tilkomandi Mátkerfi. Æskilegt að öll
múrmál bygginga úr Mátsteininum séu margfeldi
af 20.
Vönduð hleðsla tryggir vandað hús — sé öðrum
reglum einnig fylgt um frágang húsa hlöðnum úr
Mátsteininum. Þar sem með öllu er útilokað að
hafa eftirlit með öllum hinum mörgu bygginga
hlöðnum úr Mátsteininum er jafnframt útilokað
að taka ábyrgð á endingu slíkra húsa — en sé
frágangur góður og Mátsteinninn þurr — er slikt
hús eigi síður váranlegt en uppsteypt hús og
álíka verðmikið: Há endursala.
Sparið tíma, fé og fyrir-
höfn og hlaðið húsið á
stuttum tíma úr hinum
viðurkennda Mátsteini.
Kostnaður við hleðslu húss úr Mátsteininum getur
orðið tiltölulega mjög hagstæður ef vanur maður
þ.e. múrari hleður: Hver sem er getur einnig hlað-
ið sjálfur undir eftirliti múrara: — Frágangur við
hleðslu verður að vera vandaður svo að kostir Mát-
steinsins fái að njóta sín og byggingin verði varan-
leg. Biðjið um helztu hleðslureglurnar er þér pant-
ið Mátsteininn.
Allar brúnir og stærðir Mátsteinanna eru réttar og
hleðsla mjög auðveld: Þér getið hlaðið húsið sjálfir
úr Mátsteininum ef múrar fást ekki á staðnum. Leit-
ið þó ávallt aðstoðar múrarameistara ef til næst.
Biðjið um prentaðar leiðbeiningar um hleðslu og
frágang húsa hlöðnum úr Mátsteininum. Vanur múr-
ari hleður ca. 100 m2 íbúðarhús á aðeins ca. tveim
dögum með aðstoð handlangara.
Mátsteinarnir spara mik-
inn hleðslukostnað þar
sem hvergi þarf að
höggva steina og þar
sem líming er ávallt
lögð á sléttan flöt.
Máthellur með múrstærð 40x20x10 cm eru fram-
leiddar sem hálf þykkt af Mátsteininum. Máthellur
má nota í hleðsluveggi er steinamynstrið á að njóta
sín en einnig þekkist að nota Máthellur til hleðslu
á „kápum" utan yfir Mátsteininn og er þá kápan
eigi múrhúðuð. Slík tvöföld vegghleðsla tryggir að
innri steinninn sé jafnan þurr. Einnig notaðar í
burðarveggi í stað uppsteyptra burðarveggja.
Framleiddur úr beztu fáanlegum hráefnum hér-
lendis: Seyðishólarauðamál og/eða hreinum steypu-
sandi. Framleiddur úr öðrum efnum eftir pöntun-
um. Eftirsóttastur úr Seyðishólarauðamölinni.
MÁTSTEINN
Meðaltalsburðarþol: Ur Seyðishólarauðamöl, pr. fer-
sentimeter: 50 kg/cm2. Einangrunarþörf miðað við
íbúðarhús: Seyðishólarauðamöl: 1" Frauðplast.
Steypusandur: 2" Frauðplast.
Samkvæmt hinum nýju kröfum um varmaleiðslu og
einangrun íbúðarhúsa nægir að einangra Mátstein-
inn úr Seyðishólarauðamölinni með 1" (tommu)
Frauðplasti. Ráðleggjum samt sem áður notkun 1 V2"
Frauðplasts innan á Mátsteininn. Mátstein úr
steypusandi þarf að einangra með 2" (tveggja
tommu) Frauðplasti. Þér fáið Frauðplast til einangr-
unar á sama stað og Mátsteininn ásamt mörgum
öðrum byggingarefnum er þér þurfið á að halda
til að koma húsinu upp fokheldu.
Milliveggja-Mátsteinar
eru framleiddir úr Seyð-
ishólarauðamöl 40x20x
9,5 cm að múrmáli og
notaðir í hverskonar
milliveggi í hverskonar
hleðslumynstur.
Notkun Mátsteinsins í hverskonar byggingar hér-
lendis eykst hröðum skrefum og auk íbúðarhúsa
hafa verið reistar úr Mátsteininum: Fiskvinnslustöðv-
ar, verkstæðisbyggingar, verksmiðjubyggingar,
geymsluhús, skólabyggingar, gripahús, raðhús, iðn-
aðarhús, bílskúrar o.s.frv.. Einnig hefur Mátsteinn
mikið verið notaður í veggi strengjasteypuhúsa á
milli súlna.
I Reykjavík er leyfð hleðsla tveggja hæða húsa úr
Mátsteininum úr Seyðishólarauðamölinni, enda full-
nægir Mátsteinninn byggingarsamþykktum hverj-
um sem eru. Einnig má járnbinda útveggi hlaðna
úr Mátsteininum ef vill til að ná fyllsta burðarþoli.
Mátsteinninn er algjörlega eldtraustur og ófor-
gengilegur og því mikið notaður einnig í eldvarn-
arveggi milli húsa og íbúða, í ketilhúsum o.s.frv.
Auk venjulegra Mát-
steina eru framleiddir
heilir og hálfir glugga-
steinar með rauf fyrir
gluggajárn (sama verð). ;
Ekki er þörf á- sérstök-
um hornsteinum þar sem
Mátsteinninn er enda-
sléttur.
Miðað við efnismagn hvers Mátsteins, 'brotþol, ein-
angrunargildi, traustleika, hagkvæmni í hleðslu
auk annarra kosta er Mátsteinninn úr Seyðishóla-
rauðamölinni ódýrasta útveggjaefnið á markaðnum.
MÁTSTEINN
Allar nánari upplýsingar og áætlanir veittar um hæl.
Greiðsluskilmál. eftir samkoumlagi miðað við magn.
JÓN LOFTSSON HF. — Hringbraut 121 — Sími 10600.
Húsbyggjendur á Austurlandi athugið: Vegna mikill-
ar notkunar nú þegar og áframhaldandi eftirspurn-
ar eftir Mátsteini hefur Mikael Jónsson, múrari,
Seyðisfirði, tekið að sér að fara tvær eftirlitsferðir
um Austurland og byggðir næstar Seyðisfirði sum-
arið 1964 og mun taka að sér múrvinnu eftir sam-
komulagi. Vinsamlegast hafið samband við Mikael
.hið fyrsta ef þér eruð ( byggingarhugleiðingum.