Vikan - 23.07.1964, Síða 45
VOLVO TIP-TOP
býður yður mestu framfarir I vöru-
bifreiðum sem orðið hafa á sfðari
árum
VOLVO Tip Top er
framleiddur í þrem
stærðum:
L-4751,137 ha. SAE
vél,
L-4851,180 ha. SAE
vél,
L-4951,255 ha. SEE
vél.
★ 5 hraða samstilltur gírkassi
'k Tvískipt drif
★ Vökvastýri
★ Lofthemlar
★ Mótorhemill
★ Nýstárlegur neyðarhemill
(handhemill) í L-4851 og
L-4951
VANÐIÐ VALIÐ -VELJIÐ VOLVO
winaí Sfys&hbbon li.f.
; Suðurlandsbraut 16 - Reykjavlk - Slmnefni: »Volver« - SlmL 35200
Veltihúsið
'k auðveldar viðhaldið
★ minnkar reksturs-
kostnað
k eykur hreinlætið
sé hlýtt. Það er hins vegar ekki
til að auðvelda umferð eða flýta
fyrir, er lögreglumenn stöðva
hrotlega bílstjóra á aðalgötum
og hefja þar rökræður, i stað
þess að taka viðkomandi bil-
stjóra og bil með sér út í hliðar-
götu.
Þá er skipulag borgarinnar
ekki nema að litlu leyti sniðið
fyrir bilaumferð og má þar til
nefna hin svonefndu hringtorg,
sem verka eins og stifla í um-
ferðinni, fáir vita hvaða reglur
gilda um akstur þar, enda mun
mála sannast, að þær séu all-
mjög á reiki.
Samanburður á umferð í
Reykjavík og flestum borgum
erlendum þar sem ég þekki til,
verður höfuðborginni okkar
mjög í óliag. Við erum sveita-
fólk, sem einn góðan veðurdag
höfum vaknað í þéttbýli, en eig-
uin eftir að tileinka okkur borg-
armenningu. Góð og greið um-
ferð er einn þáttur þeirrar
menningar. Með sífjölgandi öku-
tækjum ber yfirvöldum að gera
stórátak i því að koina umferð-
inni i mannsæmandi horf og
borgurunum að leggja sitt lóð
á þá vogarskál.
Fyrir 24 árum slóð til að
taka liér á landi upp hægri
umferð, en var illu lieilli frestað
vegna komu brezkra hcrsveita
þá um vorið. Nú liefur þessu
máli verið lireyft á ný og er
vonandi að það nái fram að
ganga eftir fjögur ár. Upp úr
slíkri meginbreytingu mætti um-
skajia umferðarmál hér á landi,
— en ef það á að takast verður
að nota vel timann sem enn er
til stefnu.
Sv. S.
PENNAVINURINN
Framhald af bls. 17.
í svefnherbergið sitt, lagðist fyr-
ir í öllum fötunum og svaf svefni
hinna réttlátu, þangað til klukk-
an á arinhillunni sló sex.
Það fór að dimma um sjöleytið,
og jók það hræðslu hennar um
allan helming. Hvað eftir annað
þetta kvöld gat hún ekki að sér
gert að draga tjöldin eilítið frá
glugganum, sem vissi að götunni
og gægjast út rétt sem snöggvast.
En úti á götunni var ekkert að
sjá, frekar en venjulega eftir að
kvölda tók, og þó að hún hefði
gert sér í hugarlund að sjá lög-
regluþjóna í leyni hak við hvern
runna í garðinum, kom hún þar
ekki auga á neinn.
Þegar hún hafði snætt kvöld-
verð, fór henni að líða betur. Og
um hálfníu leytið, þegar hún sat
við sjónvarpsviðtækið og starði
annars hugar votum augum á
titrandi myndirnar á hvelfdu
skyggni þess, fannst henni allt,
sem á undan var gengið, eins og
fjarstæðukenndur, óhugnanlegur
draumur.
Einmitt í sömu andrá heyrði
hún eitthvert þrusk niðri í kjall-
aranum.
Hún spratt á fætur og lokaði
fyrir sjónvarpið.
Ljósið í eldhúsinu varp daufum
bjarma á efstu þrep stigans, niður
í kjallarann. Þangað starði hún
óttastjörfum augum.
Og því næst tók hún að læðast
hægum, hljóðlausum skrefum
fram í eldhúsið, eins og hún væri
dregin þangað af annarlegum dul-
arkrafti. Hún lagði við eyrun og
heyrði snerlinum í kjallarahurð-
inni snúið ... hurðinni var ýtt
frá stöfum, hægt og hljóðlaust...
og andartaki síðar starði Margar-
et Lowen í þau myrkustu augu,
sem hún hafði nokkru sinni fund-
ið á sig horfá. Þarna stóð ungur
maður frammi fyrir henni, næst-
um því unglingslegur að vexti og
svip, með þétt, stuttklippt ljóst
hár. Engu að síður' var sem ör-
væntingin magnaði andrúmsloft-
ið umhverfis hann og gerði allt
ótryggt, að þessi grannvaxni,
fjaðurmagnaði náungi með
skeggbroddana, hvasst og þunnt
nefið, samanbitnu varirnar og
framstæða hökuna væri til alls
líklegur, mundi ekki hika við að
grípa til örþrifaráða og svífast
enskis, ef í það færi. Þau störðu
hvort á annað nokkur andartök
í þögulli tortryggni og bæði við
öllu búin.
„Ég ætla ekki að vinna yður
neitt mein, kona góð“, mælti
hann. „Skiljið þér það. Yður
stafar ekki nein hætta af mér,
svo að þér skuluð ekki vera
lirædd. Kallið ekki á hjálp, og þá
eruð þér örugg“.
„Hvaða ... hvaða erindi eigið
VIKAN 30. tbl. —