Vikan - 23.07.1964, Síða 46
APPELSÍN
S ÍTR Ó N
L I IVI E
Svalandi - ómissandi
á hverju heimili
JÁ? NEI?
HVENÆR?
Þúsundir kvenna um heim allan nota
nú C.D. INDICATOR, svissneskt reikn-
ingstæki, sem reiknar nákvæmlega út
þá fáu daga i hverjum mánuSi, sem
írjóvgun getur átt sér stað. Lækna-
vísindi 56 landa ráðleggja C. D. IND-
ICATOR fyrir heilbrigt og farsælt
hjónaband.
Skrifið eftir bæklingum vorum, sem
veita allar upplýsingar. Sendið svar-
frímerki.
C. D. INDICATOR. Deild 2.
Pósthólf 1238 Reykjavik.
þér hingað?“ Það var með naum-
indum, að hún kom upp orði.
„Þér hljótið að fara nærri um
það, eða eruð þér ekki föður-
systir Maggyar? Þér hljótið því
að kannast við mig“.
„Maggý er ekki heima“, mælti
Margaret Lowen svo lágt að varla
heyrðist.
Hann gekk nær henni, unz
hann snart olnboga hennar.
„Við skulum koma hingað inn
og ræðast við“.
Hann leiddi hana inn í dagstof-
una, og lét hana setjast þar í
stól. Því næst gægðist hann út
um örlitla rifu, sem hann gerði
á gluggatjöldin, og horfði andar-
tak út á götuna. Að því búnu
sneri hann sér aftur að ungfrú
Margaret Lowen víxlaði arma á
brjósti og virtist nú rólegri.
„Hvar er Maggý?“ spurði hann.
„Hverju skiptir það . ..“
„Það skiptir mig að minnsta
kosti öllu máli.“
„Látið frænku mína í friði. Þér
þekkið hana ekki einu sinni...“
„Svo að þér haldið það? Ég
þekki hana betur, en ...“ Hann
þagnaði við og gekk skrefi nær
henni, þar sem hún sat. „Athugið
það, kona góð, að ég hef nauman
tíma. Ég verð að ná sambandi við
Maggy, og það tafarlaust".
„Maggy er ekki heima“. Hún
reyndi að halda rödd sinni í
skefjum. „Það sagði ég yður
strax. Hún dvelst hjá kunningja-
fólki sínu.“
„Hvaða kunningjafólki? Og
hvar?“
„Það veit ég ekki!“
Hann tók sér stöðu fyrir fram-
an hana, hörkulegur og ógnandi.
Hún þorði ekki að líta í augu
honum eða framan í hann. En
þegar hann tók til máls aftur,
var rödd hans vingjamleg, eins
og hann væri líka hræddur.
„Þér verðið að hlusta á mig
og taka mark á því, sem ég segi,
hvað okkur Maggy snertir. Ég
elska frænku yðar af einlægni.
Mér mundi aldrei til hugar koma
að vinna henni nokkurt mein,
hvernig sem á stæði. Ég verð
einungis að fá að hitta hana,
tala við hana. Þér verðið því að
hjálpa mér“.
Eins og ég hef sagt yður, þá
veit ég ekki hvar hún er.“
Hann urraði reiðilega og tók
að stika um gólfábreiðuna, fram
og aftur eins og hann gæti ekki
ráðið við sig hvað gera skyldi.
Hvaða ráðum hann ætti að beita
föðursystur stúlkunnar, sem hann
unni. Þá varð honum litið á Ijós-
mynd, sem stóð þar á borði.
„Hún er falleg ...“
Margaret svelgdist á. „Látið
hana í friði! Þér þekkið hana
ekki, vitið ekkert um hana. Hún
er ekki annað en barn ...“
„Ég veit allt um hana, sem ég
þarf að vita!“ Hann nálgaðist
hana enn og svipur hans var æst-
ur og reiðilegur. „Hlustið þér á
mig! Vitið þér hvað ég var gam-
all, þegar þeir stungu mér í svart-
holið? Seytján ára. Vitið þér
hvað ég hef setið þar lengi? Full
ellefu ár.“ Hún leit undan, og
hann greip í-, öxl henni, neyddi
hana til að horfast í augu við
sig. „Getið þér ýmyndað yður
hvað hræðilegur einmanaleikinn
getur orðið manni í slíkri dyfl-
issu? í hópi þúsund samfanga —
en þó aleinn. Vitið þér hvílíkar
þjáningar það getur bakað
manni?“
„Já, ég veit það!“ svaraði hún
hranalega. „Ég veit það ..
„Þér haldið það. En í rauninni
hafið þér ekki minnstu hugmynd
um það. Maggy aftur á móti...“
Hann varp öndinni og sneri sér
undan. Sleppti takinu á öxl henn-
ar og gekk út að glugganum;
gægðist út, þungbrýnn og svip-
dapur.
Ungfrú Margaret Lowen virti
hann andartak fyrir sér, þar sem
hánn stóð grannvaxinn og lot-
inn í herðum og vissi sér hvergi
hald né traust. Og það dró móðu
á augu henni.
„Allt í lagi“, mælti hún lágt.
„Hvað?“
„Allt í lagi. Ég skal ná sam-
bandi við Maggy fyrir yður ...
ef yður er það mjög umhugað ...“
Það birti yfir honum. Hann elti
Margaret með augunum þegar
hún stóð á fætur og reikaði eins
og í draumi fram í anddyrið. f
huganum endurtók hún i sífellu
símanúmerið, sem stóð prentað á
litla, hvíta spjaldið í sloppvasa
hennar. Og hún sneri talnaskíf-
unni án þess að hika.
„Berger lögregluvarðstjóri",
svaraði karlmannsrödd.
„Halló, það er föðursystir
Maggyar, sem talar ... Það er
staddur héma maður, sem langar
til að hafa tal af henni. Strax
í stað ...“
„Er Collin kominn? Svarið að-
eins „já“, ef svo er, ungfrú
Lowen“.
„Já, já, það er rétt til getið“.
„Reynið að tefja fyrir honum.
Við komum á stundinni".
„Allt í lagi. Já, ég skil...“
Hann lagði talnemann á, og það
munaði engu að hún ræki upp
vein, þegar hún fann gripið fast
um arm sér. Hún leit um öxl,
og sá Raoul Collins hvessa á sig
myrk, tryllingsleg augun.
„Þú varst að kalla á lögregl-
una!“ hvæsti hann.
„Nei...“
„Þú lýgur! Allt í lagi.. Já, ég
skil!“ hermdi hann eftir henni.
„Þetta er lævís gildra ..Hann
barði um sig af reiði. „Ég geri
ráð fyrir að löggan hafi haft
samband við þig, og ...“
„Nei, fyrir alla muni...“ kjökr-
aði hún og hörfaði undan, skelfd
af tryllingslegu augnaráði hans
og reiðinni í röddinni. „Fyrir alla
muni, komdu þér á brott! Við
getum ekki hjálpað þér ... það
getur enginn hjálpað þér ...“
„Svo að þú heldur að þú getir
STRETCH
buxurnar
frá SPORTVER eru viðurkenndir fyr-
ir gæði.
Fást í eftirtöldum verzlunum:
Verzl. SIF, Laugavcgi 44
Verzl. TIBRÁ, Laugavegi 19
Verzl. ANDRÉSAR ANDIÍÉSSONAR
Verzl. S.Í.S., Austurstræti
Verzl. VERA, Hafnarstrætl
REYKJAVÍK
ÞAÐER SPARNAÐUR
í AÐ KAUPA GÍNU
Úskadraumurinn
við heimasauminn
Ómissandi fyrir allar konur, sem
sauma sjálfar. Stærðir við allra
hæfi. Verð kr. 550,00 og með
klæðningu kr. 700,00. Biðjið um
ókeypis leiðarvísi.
Fæst í Reykjavík hjá:
DÖMU- & HERRABÚÐINNI
Laugavegi 55 og
GÍSLA MARTEINSSYNI
Garðastræti 11, sími 20672
— VIKAN 30. tbl.