Vikan


Vikan - 27.08.1964, Blaðsíða 20

Vikan - 27.08.1964, Blaðsíða 20
L ÉjÍffl i y " - , > , tííy/ws/í: Alltaff elns, endurbaettup Hvernig er það með Volkswagen? Verður ekki farið að breyta honum? Óekki. Fólkið vill hafa hann eins og hann er og hefur alltaf verið, og á meðan verður honum ekki breytt. Sá sem ekur á 10 ára gömlum Volkswagen er jafn vel akandi og sá, sem fær ‘65 módelið. Því VW er ekki breytt, en endurbættur til hagsbóta fyrir alla aðila, — án verðhækkunar! Og hverjar eru þá helztu endurbæturnar, sem gerðar hafa verið á ‘65 módelinu: Við skulum reyna að svara því: Mynd 1. Hærri breiðari og boginn framrúða. Öruggara útsýni til allra átta. Stærri hliðargluggar. Minni póstar — meiri birta — meira útsýni. Stærri afturgluggi. Hærri og breiðari. Mynd 2. Þurrkurnar hafa verið endurbættar. Þær voru að vísu góðar fyrir, en nú þurrka þær stærri flöt og einkum vel til vinstri, sem er mikið atriði fyrir ökumanninn. Mynd 3. Einfaldari læsing á trekkgluggunum. Þar til nú hefur þurft að styðja á hnapp til að losa læsinguna á trekk- gluggunum, en nú þarf þess ekki lengur. Eitt handbragð — og glugginn er opinn. Mynd 4. Bólstruð sólskyggnin eru stærri og betri, og einnig hægt að byrgja fyrir hliðarsól. Mynd 5. Betri og nákvæmari miðstöðvarstillingar. Þeim er komið fyrir milli framsætanna, þar sem mjög þægilegt er að ná til þeirra. Mynd 6. Ný gerð af húnum á vélarhúsinu. Nú þarf ekki lengur að snúa húninum — aðeins að þrýsta á hnapp, og vélarlokið er opið. Mynd 7. Bak framsætisins hefur verið endurbætt. Þægi- legra að sitjá í því, og meira fótarými fyrir farþega í aftur- sætinu. Hægt er að stækka farangursrýmið aftan við aft- ursætið, með því að leggja bakið niður. Þykkt, sterkt teppi myndar heilan botn. Einkar þægilegt þegar tveir ferðast. Þetta er það helzta. Breytingarnar eru til bóta — auk- inna þæginda, aukins öryggis.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.