Vikan


Vikan - 27.08.1964, Blaðsíða 25

Vikan - 27.08.1964, Blaðsíða 25
er ekki eins og ég ætli a‘ö pynda hana til sagna.“ „Ég vona og treysti því, að þér látið stúlkuna í friði í kvöld. Annað væri í sannleika sagt hörð refsing að mínu áliti, og ég þori að fullyrða, að það sé í fyllsta samræmi við almenningsálitið hér í borg.“ Crane opnaði munninn til and- mæla, en hætti við; þóttist víst sjá að það væri vonlaust verk að ætla sér að hafa betur í rökræð- um við Bradshaw. Við Brads- haw héldum síðan á brott. Þegar við vorum komnir spöl- korn frá húsinu, eða á svipaðan stað og þar sem ungi maðurinn rann á okkur í myrkrinu, heyrði ég eitthvað glamra við fót mér á mölinni. Ég laut niður og tók það upp. Það reyndist vera hattur, mjúkur með mjóum börðum. f svitaólinni var merki fataverzl- unar í Reno og fangamarkið J. F. F. stimplað gulli á leðrið. Þegar við komum heim til Bradshaw, stakk ég hattinum í skírteinahólf- ið í bílnum mínum. Allt virtist við sama í hliðvarð- arhúsinu. Dolly ló á svefnbekkn- um og sneri andliti til veggjar og Alex stóð vörð yfir henni. Við Bradshaw dokuðum við fyrir utan þröskuldinn, og þegar Alex varð okkar var, kom hann og talaði við okkur, svipdapur og niðurlútur. „Godwin sálfræðingur skrapp heim á setrið að fá lánaðan síma. Hann álítur að koma verði henni í sjúkraheimili um tíma; kveðst ekki vilja eiga það á hættu að hún svipti sjálfa sig lífi.“ „Er hún svo illa farin?“ spurði ég. „Ég held ekki og lét það i Ijós við hann; kvaðst geta setið hjá henni, en hann álítur það ekki heppilegt eins og á stendur.“ „Það er rétt ályktað,“ varð Roy Bradshaw að orði. „Auk þess veitir yður ekki af að vera vel undir morgundaginn búinn.“ „Já, morgundaginn . . .“ Það var eins og hann stæði allt í einu á þröskuldi leyndardóma, sem voru skilningi hans og skynj- un ofviða. „Ég geri ráð fyrir að ég ætti að leita aðstoðar föður míns. En hann mundi einungis svara því til, að þetta væri ekki annað en það, sem hann hefði sagt fyrir.“ „Hversvegna álítið þér það?“ spurði ég. „Hann hefur viljað fá mig til að láta dæma hjónaband okkar ógilt.“ Mikill maður vexti, klæddur skinnfeldi, kom fram úr þok- unni og gljáði á hvelfdan skalla hans í dyraljósinu. Hann heils- aði Roy Bradshaw innilega; sneri sér síðan að mér. „Herra Archer, er ekki svo? Eg er James Goldwin sálfræðingur." Við tókumst í hendur. Gold- win var stórleitur og svipmik- ill. „Mér þykir vænt um að þér skylduð kveðja mig hingað,“ sagði hann. „Ungfrú McGee ... frú Kincaid, þurfti róunar við. Það er svo margt, sem yfir hana hefur dunið." Godwin sálfræð- ingur beindi augum uppávið. „Á stundum get ég ekki varizt þeirri hugsun að máttarvöldin snúi baki við vissu fólki." Ég bað hann að skýra það nán- ara, en hann gerði einungis að hrista höfuðið. „Ég er alltof þreyttur til að segja yður hina blóði drifnu sögu McGee fjöl- skyldunnar," sagði hann. „Engu að síður þurfum við að ræðast við.“ „Um hvað?“ Ég hefði heldur viljað komast hjá að hreyfa því í áheyrn Alex, en sagði þó: „Um líkurnar fyrir því, að hún hafi gerzt sek um þetta morð, — eða öllu heldur, að hún verði sökuð um það. Svo virðist nefnilega, sem hún vilji það sjálf.“ Alex snerist tafarlaust henni til varnar. „Hún var ekki með sjálfri sér, og þið getið ekki vitn- að í það, sem hún sagði, gegn henni . . .“ Godwin lagði höndina á öxl honum. „Verið þér öldungis ró- legur, Kincaid. Nú höfum við öll þörf fyrir að sofa af nóttina, og þó sér í lagi kona yðar. Ég ætla að biðja yður að verða mér sam- ferða með hana á hjúkrunarheim- ilið; það er ekki óhugsandi að ég þurfi aðstoðar yðar við í því sambandi. Og þér . . .“ Hann sneri sér að mér. „Þér fylgið okk- ur kannski eftir í bílnum yðar og akið honum til baka. Þér verðið hvort eð er að rata leiðina að hjúkrunarheimilinu, því að ég ætla að biðja yður að hitta mig þar í fyrramálið klukkan átta, eftir að ég hef rætt við frú Kin- caid. Er það í lagi?“ „í fyrramálið klukkan átti.“ Loks sneri hann sér að Roy Bradshaw. „Væri ég í yðar spor- um, mundi ég fara og athuga líð- an frú Bradshaw“, sagði hann. „Ég gaf henni róandi lyf, en nær- vera yður hefur áreiðanlega mun betri áhrif.“ Það var einhverntíma eftir miðnættið, að ég ók Alex til baka og kom hinum í rúmið á gisti- staðnum. Ég fór þó ekki strax í háttinn, heldur ók ég fram á tangann í allri þokunni. Það var myrkt í kofa Möggu Gerhardi og svaraði enginn þegar ég knúði dyra. Alex svaf væran um morgun- inn þegar ég bjóst til ferðar. Ég lofaði honum að sofa, bæði vegna þess að ég vissi að hann þurfti þess með og svefninn yrði hon- um líknsamari en vakan — og ég taldi að ég mundi eiga hægara um vik, ef hann yrði ekki með. Ég hringdi dyrabjöllunni á hjúkrunarheimilinu stundvíslega klukkan átta. Godwin sálfræð- ingur hlýtur að hafa beðið komu minnar í anddyrinu, því að hann opnaði dyrnar í sama vetfangi og vísaði mér inn í litla biðstofu. „Líður Dolly betur?“ „Já, ég var að tala við hana, og ég er ekki frá því að henni líði heldur skár.“ „Það mundi verða mér mjög gagnlegt, ef þér vilduð trúa mér fyrir því, sem hún hafði að segja." „Og ef til vill hættulegt,“ svaraði sálfræðingurinn. „Þegar allt kemur til alls, er nokkur munur á okkur og aðstöðu okk- ar. Ég er bundinn þagnarheiti gagnvart sjúklingum mínum. Þér njótið ekki neinnar embætt- isverndar, og ef þér neitið fyrir rétti að veita þær upplýsingar, sem þér eruð krafinn um, má dæma yður í fangelsi. Þannig má að vísu fara með mig líka, en ekki nema að undangengnum dómsúrskurði, og það er harla ólíklegt að til þess komi.“ „Mér hefur þá verið ógnað áður, án þess það bæri árangur. Og lögreglan fær mig ekki til að segja neitt það, sem ég ekki vil segja; það þori ég að ábyrgj- ast.“ „Gott og vel.“ Sálfræðingur- kinkaði kolli, en var þó bersýni- lega um og ó.“ Það er Dolly, sem ég hef áhyggjur af, og ég ætla fyrst að segja yður hvers vegna í sem fæstum orðum. Þegar Dolly var tíu ára, kom móðir hennar, Constance McGee, með hana til Framhald á bls. 43. VIKAN 35. tM. — J

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.