Vikan


Vikan - 27.08.1964, Blaðsíða 24

Vikan - 27.08.1964, Blaðsíða 24
Framhaldssagan 3. Iiluti efftir Ross Mc. Donald Þýðing Loftur Guðmundsson Teikning Þórdís Tryggvadóltlp „Kaera Helena. Þakka þér fyrir kortiS, sem þú sendir mér sunnan úr sólinni í Kaliforníu, fylkinu, þar sem ég hef unað mér bezt í Bandaríkj- unum, þó að nú sé ár og dagur síðan. Ég vildi óska að þú hugs- aðir þig um tvisvar varðandi skilnaðinn; en það er sennilega um seinan nú og verður ekki aft- ur tekið. Það er sannarlega leitt að þið Bert skuluð ekki geta bú- ið sátt saman, hann er bezti drengur á sinn hátt. En ég geri ráð fyrir að það lokki meir, sem lengra er undan. Faðir þinn er þér enn mjög reiður, eins þú getur farið nærri um. Ég vona að sættir takizt með ykkur áður en hann er all- ur. Við erum bæði farin að eld- ast. Þú ert greind stúlka, Helena, og hefur hlotið góða menntun, og þér ætti að vera í lófa lagið að skrifa honum bréf, sem fengi hann til að skoða „hlutina“ í öðru ljósi. Þú ert einkadóttir hans, hvað sem öðru líður, og þú hefur ekki enn beðið hann af- sökunar á því að þú kallaðir hann huglausan þorpara. Það er hart fyrir lögregluþjón að verða að þola slíka nafnagift, enda hefur hann ekki fyrirgefið þér hana, þó að nú séu umliðin meira en tutt- ugu ár. Þú verður að skrifa hon- um, gerðu það. Mamma/ Ég lagði bréfið aftur inn í orða- bókina og hélt inn í dagstofuna. Bradshaw hafði tekið sér sæti, jafn hátíðlegur þó að hann væri einsamall. Eitt var það, sem olli mér heilabrotum — hin greinilega mótsögn allsnægta og fátæktar, sem setti svip sinn á allt þarna í húsinu, rétt eins og tvær konur hefðu átt þar heimili, önnur vell- rík, hin blásnauð. „Þekktuð þér ungfrú Haggerty prófessor, dr. Bradshaw?“ spurði ég. „Það get ég varla sagt. Við vor- um viðstödd nokkrar skólasam- komur. Hún var mjög glæsileg kona, bæði í sjón og framkomu." „Hvaða laun hafði hún?“ Hann skildi þegar hvað ég var að fara. „Ég held að henni hafi tæmzt arfur,“ svaraði hann. ,Hvaðan kom hún hingað?" „Frá einhverjum litlum há- skóla í Miðvesturríkjunum. Hún hafði hætt þar kennslu áður en okkur var bent á hana, en við leituðum til hennar út úr vand- ræðum, skiljið þér; einn af kenn- urunum veiktist af kransæða- stíflu." „Þér hafið athugað fyrri feril hennar áður en þér réðuð hana til starfsins?“ „Ekki nákvæmlega. Eins og ég gat um, þá var þetta út úr vandræðum gert. Og ég bar ekki neina ábyrgð á ráðningunni. Það var yfirkennarinn við viðkom- andi deild, sem tók allar ákvarð- anir þar að lútandi." Það leyndi sér ekki, að það var með vilja gert, að hann lét þessa svo rækilega getið. „Hvernig atvikaðist það, að ungfrú Haggerty gerðist náms- ráðunautur Dollýar?“ „Það var allt með eðlilegum hætti, að ég hygg. Ég geri ráð fyrir að þetta hafi verið síðara námstímabil Dollýar og það er venjan, að þeir nemendur kjósi sér sjálfir ráðunauta úr hópi prófessoranna, svo framarlega sem viðkomandi prófessor getur við sig bætt.“ „Þá hefur Dolly að öllum lík- indum ráðið því sjálf, að ung- frú Haggerty varð fyrir valinu, og það hefur svo orðið upphafið að kunningskap þeirra." „Mér þykir það sennilegt. En hversvegna er það mikilsvert at- riði?“ Hann varð ærið undrandi, þeg- ar ég sagði honum það. ,,Ég skil hvorki upp né niður í þessum orðum stúlkunnar," sagði hann. „Eigið þér við, að hún hafi í raun og veru játað á sig . . . þetta morð?“ „Lögregluþjónn eða saksóknari kynnu að halda því fram. Sem betur fór voru slíkir aðilar ekki viðstaddir. Ég hef orðið heyrnar- vitni að allmörgum játningum, bæði sönnum og ósönnum. Ég tel að þessi játning hafi verið ósönn.“ „Þér álítið þá að við eigum ekki að minnast á þetta við lögregl- una?“ „Ef þér gerið það ekki að neinu kappsmáli, tel ég að við ættum að láta það liggja í þagn- argildi." Það mátti sjá það á svip hans, að honum var um og ó. Ég býst við að okkur hafi báðum létt, þegar heyrðist til ferða lögreglu- bílsins upp brekkuna. Hermann Crane lögreglufulltrúi var mað- ur mikill vexti og herðabreiður á fimmtugsaldri. Hann heilsaði Brandshaw með háværri virð- ingu. Framkoma hans við mig var eins og ég hef alltaf átt að venj- ast af lögreglunnar hálfu. Þeir hafa mig alltaf grunaðan um það ódæði að hugsa mínar eigin hugs- anir. Mér tókzt þó að fá Crane lögreglufulltrúa til að senda lög- reglúbíl út af örkinni og veita eftirför unga manninum, sem á okkur rann í myrkrinu. Því næst ræddum við saman nokkra hríð, og einn úr fylgdarliði hans, sem kunni hraðritun, skrifaði samtal okkar jafnóðum. Ég sagði honum einfaldlega, að Dolly Kincaid hefði komið að líkinu af náms- ráðunaut sínum, ungfrú Hagg- erty prófessor, fengið hart tauga- lost, og væri nú í umsjá læknis. „Hvaða læknis?“ „James Godwins." „Sálfræðingsins?" Hann hall- aði sér að mér og spurði forvitn- islega: „Hvers vegna bar nauð- syn til að kalla sálfræðing á vettvang?" „Hún var ekki fyllilega með sjálfri sér vegna lostsins, svo að ég áleit hyggilegast að snúa mér til hans.“ „Hvar er hún núna?“ Mér varð litið ti lRoys Brad- shaw. Það var auðséð að honum leið allt annað en vel. „Heima hjá móður minni,“ svaraði hann. „Hún var ráðin til móður minn- ar sem bílstjóri, en annars er hún skráður nemandi — dða öllu heldur — verður skráð sem nemandi við háskólann.” Lögreglufulltrúinn ók sér á fætur. „Við skulum skreppa og hafa tal af henni,“ sagði hann. „Ég er hræddur um að það sé ekki ráðlegt,“ sagði dr. Brands- haw. „Ef vesalings stúlkan hefði haft einhverju að leyna, mundi hún ekki hafa snúið sér tafar- laust til leynilögreglumnans. Ég þykist þess fullviss, að við séum engir þeirrar skoðunar, að það beri að refsa henni svo harðlega, einungis fyrir það að gegna borg- aralegri skyldu sinni.“ „Hvað eigið þér við með því að „refsa henni harðlega?" Það 24 — VJKAN 35. tw.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.