Vikan


Vikan - 10.09.1964, Síða 2

Vikan - 10.09.1964, Síða 2
Verkið samanstendur af: 8 stórum bindum (nú þegar eru komin út 7 bindi) í skrautleg- asta bandi sem völ er ó. Hvert bindi er yfir 500 síður, inn- bundið í ekta ,,Fablea" prýtt 22ja karata gulli og búið ekta gull- sniði. í bókina rita um 150 þekktustu vísindamenn og ritsnillingar Danmerkur. Stórt raflýst hnattlíkan með ca. 5000 borga- og staðanöfnum, fljófum, fjöllum, hafdjúpum, hafstraumum o. s. frv., fylgir bókinni en það er hlutur, sem hvert heimili þarf að eignast. Auk þess er slíkur Ijóshnöttur vegna hinna fögru lita hin mesta stofuprýði. VIÐBÆTIR: Nordisk Konversa- tions Leksikon fylgist ætíð með tímanum og því verður að sjálf- sögðu framhald á þessari út- gáfu. VERÐ alls verksins er aðeins kr. 5420,00, Ijóshnötturinn inni- falinn. GREIÐSLUSKILMÁLAR: Við mót- töku bókarinnar, skulu greiddar kr. 620,00, en síðan kr. 400,00 mánaðarlega, unz verkið er að fullu greitt. Gegn staðgreiðslu er gefin 10% afsláttur, kr. 542,00. Undirrit sem er 21 árs og fjárráða, óskar að gerast kaupandi að Nordisk Konversation Lexikon — með af- borgunum — gegn staðgreiðslu. Dags. .......................... Nafn:.................................. Heimili: .............................. ................................ Sími Bókabúð NORÐRA Hafnarstræti 4 - Sími 14281. Fyrir 400,00 krónur á mánuði getið þér eignazt stóru ALFRÆÐIORÐABÖKINA Nordisk Konversations sem nú kemur út að nýju á svo ótrúlega lágu verði ásamt svo hagstæðum greiðsluskilmálum, að allir hafa efni á að eignast hana. I fullri alvöru: Bilfreyja eða tróðbrúða? Það er eitt, sem við íslending- ar þurfum ekki að niiða við höfðatölu, til þess að standa mjög framarlega i. Það er ó- kurteisi og léleg þjónusta. Það líður ekki sá dagur, að ekki bcrizt nýjar frétlir af einhverju slíku tilviki, mismunandi grófu, en sumt er aldeilis yfirgengilegt. Ég frétti til dæmis um daginn af atviki varðandi þjónustufyrir- tæki, sem ég hef ekkert haft nema gott af að segja, og lief sjaldan heyrt neitt misjafnt um. Þetta fyrirtæki hefur verið rek- ið af miklum dugnaði og lagt mikið upp úr góðri þjónustu, og ég efast ekki um, að svo er enn, þótt slysalega hafi tekizt til. Fyrirtækið, sem hér um ræð- ir, er Norðurleið h.f. Eitt af þvi, sem Norðurleið hefur gert til að hæta þjónustu við farþegana, er að ráða til sín bilfreyjur. Þær hugsa um far- þegana á einn og annan hátt, þannig að ferðalagið geti orðið þeim sem þægilegast og fyrir- hafnarminnst. En ekki eru þeim öllum jafn fimar hendur í þessu starfi, og það sem nú verður sagt frá, sýnir að þær þurfa sína aðgæzlu og eftirlit. Það var mánudaginn (i. júlí s.h, að meðal far]>ega frá Akur- eyri í suðurátt var ungur piltur, scm ætlaði að Hreðavatni. Hann bað bílfreyjuna að segja sér, þegar komið væri að Bifröst, því liann var ókunnugur og þekkti sig ekki. Hún lofaði því. 1 Varmahlið endurtók hann beiðni sína, og enn tók bílfreyj- an vel í það, og lofaði statt og stöðugt að segja honum, ])egar komið væri í Bifröst. Jæja. Svo nemur áætlunarbif- reiðin staðar i Bifröst. Það var rigningarveður oð svað á veg- unum, og litið fýsilegt að þurfa að ganga mikið eftir þeim. Drengurinn var, þrátt fyrir góð orð bilfreyjunnar, heldur óró- legur og skimaði um, en þar sem hún virti hann ekki við- lits og sagði ekkert, sat hann kyrr. Svo var lagt af stað á ný, og enn sagði bílfreyjan ekkert, Þá stóðst nærstödd kona ekki lengur mátið, en sncri sér að drengnum og spurði, livort hann hefði ekki ætlað úr i Bifröst. Hún liafði látið málið afskipta- Framhald á l)ls. 50. 2 — VIKAN 37. tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.