Vikan - 10.09.1964, Blaðsíða 32
Notaðir bílar
og nýir
í miklu úrvali og við allra efni
NÝIR BÍLAR ERU OFVIÐA FJÖLMÖRGUM
EN NOTAÐIR GERA
OFT SAMA GAGN
Öll þekktustu merkin á markaðnum
Seljum gegn: staðgreiðslu, afborgunum, tryggum skuldabréfum og
vel tryggðum víxlum.
KomiS, skoSiS og kaupiS
Gamla Bílasalan Rauðará
n
'bHPna r>
Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags.
Hrútsmerkið (23. marz — 20. apríl);
Það koma margir afturkippir í framkvæmdir þínar
áður en yfir lýkur. Þér er áríðandi að nota hverja
stund eins vel og unnt er, bezt væri að þú skipu-
legðir tíma þinn. Það er hyggilegt að vera ekki
með of mikla peninga í umferð.
Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí):
©Þú hefur nýlega tapað einhverju sökum vangæzlu
þinnar. Ef til vill geturðu miðlað málum með því
að greiða úr eigin vasa. Allt mun komast á réttan
kjöl á heimilinu, ef þú gerir vissar tilslakanir og
viðurkennir atkvæðisrétt hinna yngri.
Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní):
Ættingjar þínir hafa gert þér greiða, sem þú getur
seint goldið að fullu. Kjóstu einveruna um stundar-
sakir til þess að hugsa ráð þitt og hvíla þig. Miklar
líkur eru til þess, að þú gerir heppilegan samning
við mikilsmetinn aðila.
Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí):
Gerðu þér sem fyrst grein fyrir því, að það geta
fleiri haft lög að mæla en þú og einnig það, að ef
þér er annt um að ná sem beztum árangri, máttu
ekki vera of einráður. Gömul saga, gleymd og graf-
in, birtist þér í nýju Ijósi vegna óvænts atviks.
Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst):
eGættu þess að særa ekki eða móðga á einn eða ann-
an hátt, þá sem eru þér kærastir. Þú skalt með
sjálfum þér athuga hvort ekki skortir eitthvað á
háttprýði þína og tillitssemi við náungann. Þú færð
glæsilegt tilboð rétt eftir helgina.
Mcyjarmerkið (24. ágúst — 23. september):
Kvöldstundir vikunnar verða einstaklega heppilegar
til hvers konar félagsstarfa og vinafunda, en þrátt
fyrir það verður minna um rómantík en þú gerir
'1L ráð fyrir. Þú færð fréttir af félögum, sem þú
kynntist fyrir skömmu.
Vogarmerkið (24. september — 23. október):
Það, sem þú hefur á prjónunum, er algjör fásinna.
Reyndu eins og þú getur að efla félagsandann á
heimili þínu og styrkja fjölskylduböndin. Þú hefur
sniðgengið persónur, sem þú finnur til vanmáttar
þíns gegn, reyndu að gera þér grein fyrir af hverju.
Drekamerkið (24. október — 22. nóvember):
Þú hefur komizt í nánari kynni við ákveðna per-
sónu, sem, ef þú ferð rétt að, þú getur vænzt þín
mikils af. Líkur eru til þess, að ráðagerðir þínar
fari út um þúfur. Þú verður trúnaðarvinur ákveð-
innar persónu, sem með því kemur þér 1 vanda.
Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. desember):
©Þú hefur gert áætlun um vinnuhagræðingu. Ef þú
lætur letina ekki ná tökum á þér, ertu örugglega
á grænni grein. En þú skalt blanda sem fæstum
inn í þessar tilraunir þínar. Maður, sem hefur veitt
þér atvinnu, hefur samband við þig.
Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar):
Þú hefur fengið eitthvert hlutverk, sem þú unir
þér mjög vel við. Ættingi þinn, af sama kyni, legg-
'tqggpr ur fyrir þig gildru, sem þú átt erfitt með að varast.
Þú verður óviljandi þátttakandi í persónulegum
óeirðum nokkurra nágranna þinna.
Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar):
Þú hefur mjög mikið að gera og sérð ekki út úr
augum. Skynsamlegast fyrir þig, væri að leita hjálp-
ar við ýmis atriði í þessu sambandi. Þegar minnst
vonum varir, og á mjög ólíklegum stað, dynur
rómantíkin yfir þig. Heillalitur er blátt.
©Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz):
Athugaðu hvort það er ekki sprottið af öfundsýki,
sem þú gefur í skyn um ákveðna persónu. Þér er
áríðandi að gefa gaum að þessari viðvörun því af-
leiðingarnar geta orðið miður skemmtilegar. Haltu
hópinn með gömlum félögum þínum.
m
Skúlagötu 55 — Sími 15812.