Vikan - 10.09.1964, Blaðsíða 18
MEÐ SÉRSTÖKUM
IRMGARD
Erlendar LoftleiSa-
flugfreyjur leysa frá
skjóðunni:
Ingrid: „Hestarnir ykkar
eru dásamlegir, en
Reykjavík fullhundasnauð
borg.“
Irmgard: „Það er búið að
gefa mér Reykjanesið!“
Maxi: „Ungu piltarnir
mættu vera ögn
herralegri.“
Maggy: „Hvers vegna fæst
hér bara Iambakjöt?“
Arne: „Fólk giftist ótrúlega
ungt hér.“
Barbara: „Á mínum aldri
á það að minnsta kosti
5 börn!“
Fyrst hittum við þær stöllur
Ingrid Wolff og Irmgard
Thielen. Þær búa ásamt
tveimur þýzkum flugfreyj-
um í rúmgóðri fjögurra
herbergja íbúð í nýrri blokk og
greiða kr. 5000 á mánuði fyrir
utan ljós, hita og síma og una
vel við. Hinar tvær voru annað
hvort í loftinu eða í New York.
íngrid er íjóshærð, spengileg
stúlka, með gulgræn augu, 22
ára gömul. Hún byrjaði hjá Loft-
leiðum í febrúar, en hafði verið
hér áður í þrettán mánuði, frá
febrúar ‘62 fram í marz ‘63 og
unnið i þýzka sendiráðinu. Þá
hafði hún meðal annars þann
starfa með höndum að fá sér dag-
lega göngutúr upp á Öskjuhlíð
með hund í bandi. Á þess-
um hundaviðrunargönguferðum
lærði hún fyrstu orðin í íslenzku
— „má ég klappa hundinum?“
— spurning ásámt biðjandi
augnaráði. Gönguferðirnar urðu
nefnilega töluvert fjölmennar,
hátt upp undir Keflavíkurgöngu-
fjölda. Hinir dyggu förunautar
höfðu reyndar enga skoðun á
varnarliðinu, en geðjaðist þess í
stað prýðilega að hundum, að því
er virtist. í fyrstu vissi Ingrid
eiginlega ekki hvað bónin þýddi,
en svo rann upp fyrir henni ljós,
og litlar hendur fengu að klappa
hundi eins og þær vildu.
„Mér brá heldur í brún, þegar
ég kom hingað fyrst með Gull-
fossi,“ sagði Ingrid. „Það var
á einhverjum grámyglulegasta
morgni, sem ég man eftir að hafa
upplifað hér, og ég hugsaði með
sjálfri mér, „Guð minn almáttug-
ur, hvert er ég eiginlega kom-
inn“. En svolítið rofaði til, þegar
við sigldum inn á höfnina, og ég
grillti í rauð og græn húsþök,
undarlega skærlit í muggunni,
svo að ef til vill var þetta ekki
eins dökkleitt og virtist í fyrstu.
Nú, það rættist ekki verr en svo
úr íslandsdvölinni, að hingað er
ég komin aftur og kann alveg
VIÐTÖL: JAKOB MÖLLER
MYNDIR:
PÉTUR Ö. ÞORSTEINSSON
18
VIKAN 37. tbl.