Vikan


Vikan - 10.09.1964, Side 11

Vikan - 10.09.1964, Side 11
wsm fi f tt il ::i:[ msmmimiaii :: 'IÍL II:: ■■ !>::•!Itfi ::■• Öfgamaðurinn Goldwater frá Arizona, sem milljónir Bandaríkjamanna vilja fá fyrir forseta. Hver þjóð hlýtur þann forustu- rnann,, sem hún á skilið. ’ ,ji'. l ylh : : : : ■::: : ZL : ■; ■ 'iiiii::i :ii:: þeir harðánægðir, hver með sína gleymsku. Fæstir hafa hugmynd um, hversu afdrifa- rík gleymskan getur verið. Fæstir hafa áhyggiur af því, að of miklu sé gleymt; að það sé vegna gleymskunnar að stríð tekur við af stríði. Það er vafasamt að nokkurntíma hafi aðrar eins langvarandi hörmungar dunið yfir nokkra menn eins og þá sem börðust í skotgröfunum í Verdun og nágrenni í fyrri heimsstyrjöldinni. Fyrst eftir styrjöldina höfðu menn þann viðbjóð fersk- an í huga og þá var fyrri heimstyrjöldin köll- uð „stríðið til að binda endi á öll stríð". Það var fljótt að gleymast og Þjóðverjar, sem guldu gífurlegt afhroð og hefðu átt að muna það manna lengst, hvað styrjöld kost- ar, þeir voru eða virtust vera fyrstir til að gleyma. Þegar Hitler og Göbbels öskruðu á fjöldafundum og létu múginn æpa Ja og Nein eftir atvikum, þá voru skotgrafirnar við Verdun ekki einu sinni grónar. Sagan endurtekur sig, en það virðist ekki koma að neinu haldi. Mönnum er afar ósýnt um það að færa sér fyrri reynslu í nyt. Þetta á jafnt við um þjóðir og einstaklinga. Sá sem brennir sig einu sinni, forðast ekki eld- inn. Ekki fyrr en hann er búinn að brenna sig nokkrum sinnum og það illa. Það er talað um skóla reynslunnar, en í þeim skóla eru allir tossar og marg- fallnir. Sumið komast aldrei upp. Þeir eru alltaf búnir að gleyma fyrri reynslu, þegar sú næsta knýr á. Aðdragandi styrjalda hefur oft verið með líku móti. Það er eins og skriða, sem sígur hægt og þungt af stað og allir eru áhorf- endur í bili og bíða, unz skriðan hrífur áhorfendúrna líka með. Heimskir stjórnmálamenn, sem ófullkomin stjórnkerfi hafa fleytt upp á toppinn, þenja sig út með digurbarka og svo þegar á reyn- ir er ekki hægt sóma síns vegna að snúa við og taka ummælin aftur. Eiginlega finnst mér þarna, að Kúbumálið hafi verið undantekning. Ef sagan hefði endurtekið sig þar eins og oft áður, þá hefði Krússéf ekki slak- Fjöldagrafreitur þýzkra hermanna við Verdun í Frakltlandi. Þar var liáð mannskæðasta orrusta fyrri heimstyrjaldarinnar. Hún stóð í 10 mánuði og samtals 150 þúsund manns létu lífið á litlum hletti. að til. Þess er vert að minnast. En oft er það þannig, og til dæmis bæði fyrir fyrri heims- styrjöldina og þá síðari, að fyrst er talað um stríðshættu, svo magnast þetta og sezt að í blóð- inu á mönnum og þá fara þeir að æpa um það að styrjöld sé óum- flýjanleg. Mörgum þótti gleymskan í Þýzkalandi óhugnanleg, þegar nazistarnir gengu gæsagang eft- ir strætum tæpum tuttugu árum frá stríðslokum og augljóst var að hverju þeir stefndu. Mörgum þykir hún jafnvel óhugnanleg enn í dag í því landi. Akveðin samtök hafa reynt að draga fyr- ir dómstóla fyrrverandi fjölda- morðingja úr fangabúðum naz- ista, sem komnir voru í háar stöður og þóttu virðulegir borg- arar. [ Þýzkalandi voru menn almennt á móti því að vera að hrófla við þessum mönnum og Framhald á bls. 31. VIKAN 37. tbl. —

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.