Vikan - 10.09.1964, Page 28
„Nei. Hún slaðhæfir enn að hún
eigi sök á því. Allt sé sín sök. Að
sjálfsögðu legg ég ekki neinn trún-
að á það." Hann þagnaði stutta
stund.
„Hvað haldið þér um sjúkleika
hennar?"
„Þér verðið að ræða það við
sálfræðinginn."
„Hann verst allra frétta. Það er
einhver sálfræðileg tilraun, sem
hann hyggst gera á morgun, og
standist hún hana, getur verið að
hann reyni við hana þetta lyf, sem
fær fólk til að láta allt uppskátt —
sodium pentothal — kannski á
mánudag. Ég hvatti hann til þess."
„Hvetjið þér mig líka til að halda
áfram?"
„Ég var að vona að þér telduð
það sjálfsagðan hlut. Ég vil að þér
gerið allt, sem unnt er, til að leysa
þessa gátu."
„En það getur orðið yður út-
látasamt," varð mér að orði, og
skýrði honum síðan frá þeirri fyrir-
ætlun minni að skreppa flugleiðis
til lllinois, ef til vill með viðkomu
í Reno í bakaleiðinni.
„Ég get alltaf selt bílinn. Ég á
hann skuldlausan, og satt bezt að
segja hef ég fengið mig fullsaddan
á kappakstri og öllu þess háttar."
Hann vildi endilega láta mig
hafa allt það fé, sem hann hafði
á sér, og ég var einmitt að telja
það, þegar við heyrðum háreysti
mikla ( konu frammi á ganginum.
Hún hrópaði og hafði ekkert vald
á röddinni fyrir geðshræringu, og
fyrst hélt ég að þar mundi um ein-
hvern af sjúklingum sálfræðingsins
að ræða.
En þar reyndist komin Alice
Jenkis. Hún stóð rétt fyrir innan
útidyrahurðina og starði hvasst á
sálfræðinginn gegnum móðuskyggð
gleraugun. Godwin mælti af þjósti:
„Þér takið Dolly ekki heim til yðar;
as>}*
28 — VUSAN 37. ÍbL
hún er orðin fullveðja og gift kona,
og dvelzt hér af frjálsum vilja."
„Það er satt og rétt," greip Alex
fram í orðaskak þeirra. „Ég er Alex
Kincaid, maður Dollyar. Ég ál(t
það þýðingarmikið fyrir hana, að
hún sé hér um kyrrt. Ég ber traust
til sálfræðingsins og konan mín
einnig."
„Ég hef samúð með yður. Hon-
um tókst líka að slá ryki f augu
mér, þangað til ég varð þess vís-
ari, sem fram fór í skrifstofu hans."
Alex leit spyrjandi á sálfræðing-
inn, sem yppti öxlum og sneri síð-
an máli sínu enn að Alicu Jenkins.
„Ég hefði vænzt þess, að starf sál-
fræðingsins ætti meiri skilningi að
mæta af hálfu konu, sem hefur jafn-
mikla reynslu í opinberu starfi og
þér."
„Ég er ekki að tala um starf
sálfræðingsins, heldur aðrar athafn-
ir, sem ekki koma við lærdómi hans.
Haldið þér kannski að ég viti ekki
hvað ykkur systur minni fór á milli?
Haldið þér að ég muni ekki allt til-
haldið og pjattið áður en hún fór
til yðar á laugardagsmorgnana og
að hún vildi umfram allt flytjast
hingað til að vera sem næst yður."
„Næst mér?"
„Svo sagði hún að minnsta kosti.
Þér unnuð henni, var ekki svo?"
„Ég unni henni eins og sérhver
læknir ann sjúklingi sínum, ef hann
er á annað borð hæfur og góður
læknir. . Andlit sálfræðingsins
var náfölt, en augun dökk og myrk.
„Þér eruð heimsk kona, frú Jenkis,
og ég mælist til þess að þér verðið
á brott héðan, tafarlaust."
„Ég fer ekki fet fyrr en ég hef
náð tali af systurdóttur minni og
komizt sjálf að raun um hverskon-
ar læknisráð það eru, sem þér beit-
ið við hana." Það var eins og hún
skammaðist sín hálft í hvoru og
þættist hafa sagt of mikið. Og þeg-
ar ég tók undir hönd henni, leyfði
Framhaldssagan
5. hluti
eftir
Ross Mc. Donald
Þýðing
Loftur Guðmundsson
Teikning
Þórdís Tryggvadóttir
hún mér mótþróalaust að leiða sig
út.
Það var svalt úti, eftir allan gróð-
urhúshitann inni í hjúkrunarheimil-
inu, og þegar frú Jenkis var setzt
inn í bílinn, dró hún pappírsþurrku
upp úr töskunni og strauk svitann
af andliti sér og móðuna af gler-
augunum. Það sá í samanbrotið
dagblað upp úr töskunni, og ég
spurði, hvort hún hefði lesið frétt-
ina af byssufundinum.
Hún setti á sig gleraugu í svo
miklum flýti, að mér datt strax f
hug að hún vildi leyna svipbrigð-
um sínum. „Auðvitað," svaraði hún.
„Og hvernig varð yður við?"
„Lýsingin kom heim við byssu,
sem ég átti í eina tíð, svo að ég
brá mér á lögreglustöðina að at-
huga hana. Það er samskonar marg-
hleypa og mfn var, en ég hef ekki
haft hana í mfnum fórum full tfu
ár."
„Og þér getið sannað það?"
„Vitanlega. Henni var stolið af
mér skömmu áður en systir mfn var
myrt. Crane lögreglufulltrúi var
helzt þeirrar skoðunar, að það væri
skotvopnið, sem McGee myrti syst-
ur mína með. Er það raunar enn.
Það var hægur nærri fyrir McGee
að stela henni; hann vissi að hann
gat gengið að henni á náttborðinu
f svefnherbergi mínu."
„Hvað heldur Crane lögreglufull-
trúi um þetta morð? Að McGee
hafi sjálfur framið það, og vilji
koma sökinni á dóttur sfna?"
„Ég mundi trúa honum til þess.
Maður, sem hagaði sér eins og
hann gerði, gagnvart konu sinni. . ."
Hún lækkaði svo röddina, að ég
heyrði ekki alla setninguna.
„Er þetta satt, sem þér sögðuð
um samband sálfræðingsins við
systur yðar?"
„Það býst ég við, þó að ég hafi
aldrei fengið óyggjandi sönnun fyr-
ir því. Ég vissi að hún átti sér elsk-
huga í borginni — og Godwin sál-
fræðingur var eini maðurinn, sem
hún fann þar að máli . . ."
Hún ræsti bílhreyfilinn og ók af
stað. Ég ók út á flugvöllinn og
keypti mér farmiða með vél til
lllinois — fyrir peninga þá, sem
Alex hafði fengið mér.
Ég tók mér far með næturþot-
unni og var kominn til Bridgeton
klukkan níu að morgni.
Dyrabjallan heima hjá Hoffman
lögregluþjóni reyndist óvirk, svo að
ég notaði gamla lagið og knúði
hurðar. Inni fyrir var svarað rámri
röddu: „Komdu inn . . . ég held mig
f greninu!"
En þegar ég var kominn inn fyr-
ir þröskuldinn, leit gamli berserk-
urinn tortryggnislega til mín gegn-
um reykjarsvæluna, þar sem hann
lá endilangur uppi á legubekknum.
Augu hans sýndust á floti og þef-
urinn gaf til kynna f hverju þau
flutu. Hann hélt á tfmaritshefti f
skærgulri kápu, sem var næstum f
lit við gul náttfötin. Hann var eins
og aflraunamaður að vaxtarlagi, og
veggurinn fyrir ofan legubekkinn,
var skreyttur rifflum, haglabyssum
og marghleypum.
„Ekki ert þú tengdasonur minn,"
urraði hann. „Hver fjandinn er orð-
inn af Bert. Ég sendi hann eftir
meira áfengi, og það lítur helzt
út fyrir að eitthvað hafi komið
fyrir hann."
Það leyndi sér ekki að Hoffman
var illa drukkinn og hafði verið
það um hríð; ég þóttist fara nærri
um orsökina. Hann tók að for-
mæla tengdasyni sínum fyrrverandi;
kvað hann ræfilstusku, sem ekkert
hefði að gera í hendur á kvenmanni
og væri ekki einu sinni trúandi fyrir
að kaupa áfengi.
„Ég þekkti dóttur yðar," hóf ég
máls. „Archer heiti ég, og kom
hingað flugleiðis frá Kaliforníu."
Hann gerbreyttist f framkomu. „Er