Vikan


Vikan - 10.09.1964, Page 50

Vikan - 10.09.1964, Page 50
í FULLRI ALVÖRU Hrein frísk heilbrigð húð Það skiptir ekki máli, hvernig húð þér hafið! Það er engin húð eins. Fn Nivea hæfir sérhverri húð. Því Nivea-creme eða hin nýia Nivea-milk gefur húðinni allt sem hún þarfnast: Fitu, raka og hið húðskylda Euzerit. Og þess vegna getur húð yðar notið þeirra efna úr Nivea sem hún þarfnast helzt. Hún getur sjálf ákveðið það magn, sem hún þarfnast af fitu og raka. Þetfa er allur leyndardómurinn við ferska, heilbrigða og Nivea-snyrta húð. Framhald af bls. 2. laust fram að þessu, því bílfreyj- an, sem sérstaklega var ráðin til að sjá um velferð farþeganna, haföi hvað eftir annað lofað að láta piltinn vita, þegar kom- ið yrði i hans áfangastað. Við spurningu konunnar tók piltur- inn viðbragð og játaði, og fékk þá að- vita, að síðasti viðkomu- staður hefði verið Bifröst. Hann snaraðist til og bað bilstjórann að stöðva bílinn, hvað hann gerði þegar í stað, en þá var komið nokkuð niður i hraun. Og þar mátti pilturinn fara af bilnum, með farangur sinn, sem var töluvert mikill, og ösla til baka gegnum svaðið á veginum. Nú dró ekki til tíðinda, fyrr en komið var niður í Mosfells- sveit. Við Hlíðartún þurftu hjón og barn að fara úr. Á Tungu- melum báðu þau bílfreyjuna að láta bílinn stanza á réttum stað, og spurðu hana, hvort hún vissi, hvar afleggjarinn væri. Hún játti því. Svo fór hún fram í aftur og sat sem fastast, og er ekki að orðlengja það, að hjónin þurftu sjálf að kalla í ökumanninn, þeg- ar hann ók sem snarast framhjá afleggjaranum, enda hafði bíl- freyjan ekki minnzt á það einu orði, að hann ætti að stansa þar. Og þar máttu þau þrjú ösla for- ugan veginn vænan spotta til baka, vegna sofandaháttar bíl- freyjunnar. Eitthvað minntust þau á það við hana, að hún hefði lofað að láta bílinn stansa á réttum stað, og eina svarið, sem þau fengu var þetta: „Ég bið afsökunar." Og það var nú svo sem gott, svo langt sem það náði. Ég leyfi mér að efast um, að forráðamenn Norðurleiðar h.f. hafi nokkurn tíma haft hugmynd um sofancfiahátt þessarar bíl- freyju. Ég trúi þvi ekki, að þeir hafi vitandi vits svona tróð- brúður í sinni þjónustu. Og þá eru bílstjórarnir ekki alveg sak- lausir, því varla fer svona lag- að alveg fram hjá þeim. Það er ekki nóg, að bílfreyjan líti vel út og hugsi vel um við- hald útlitsins, hún verður líka að geta hugsað örlítið, munað stundinni lengur einföldustu at- riði, og helzt að vita eitthvað sjálf. Um þessa bilfreyju er það að segja, að liún vissi ekki nafn á einum einasta stað leiðarinnar, sem liún var um spurð. Þegar farið var fram hjá Staðarskála í Hrútafirði, var hún spurð, hvað þessi staður héti. Hún leit tóm- um augum út um gluggann og svaraði: — Ég veit það þvi mið- ur ekki! Það eru vinsamleg tilmæli til forráðamanna Norðurleiðar h.f., að þeir vandi betur til bílfreyja sinna en þetta. Annars er hætt við, að gott álit fyrirtækisins rýrni fljótlega. Sig. Hreiffar. 50 VIKAN 37. tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.