Vikan - 30.12.1964, Page 2
?
BROTNAÐI
NÖGL ??
j-ú. aó vísuen gerir ekki svo
mikið til,-J>vi aó meó n®iu fTIOdel flðll
geturóu 'b'ú.ió til nýja álOmin.
lfD(Dyj
algjör nýjung i handsnyrtingu
Svo dásamlega einíalt er þaff: Plastmótinu er komið fyrir á
fingrinum, grunnvökvinn borinn á og síðan dropi af sjálfu
efninu. Eftir örstutta stund er nýja nöglin tilbúin til snyrt-
ingar. Nýja nöglin er sterkari en þínar eigin, — og efnið má
jafnvel nota ti! þess að styrkja brotgjarnar neglur.
snyrtivörur hf
Laugavegi 20A — Sími 19402
í fullri alvöru:
Viðmót í verzlunum
Flestir þurfa á því að halda
að koma í verzlanir og þeir sem
búa i bæjum og borgum eiga
þangað jafnan dagleg erindi.
Viðmót afgreiðslufólks er mjög
þýðingarmikið fyrir hverja
verzlun; viðskiptavinirnir leita
að sjálfsögðu annað, ef þeim
finnst afgreiðslan óþolandi.
Samt er ekki liægt að slá þvi
föslu, að kaupmenn liafi al-
mennt viðurkennt þessa stað-
reynd. Ef satt skal segja, þá er
hreinasta hugraun að koma í
sumar verzlanir hér i Reykjavik.
Einkum er það þar sem ungl-
ingsstúlkur standa við afgreiðslu.
Þær verstu ljúga vísvitandi,
segja þá vöru ekki til, sem þær
nenna ekki að leita að og svo
er heilmikið verk að vekja at-
liygli á því að maður sé til og
vilji fá afgreiðslu. Það er kunn-
ara en frá þurfi að segja, að sá
sem tyggur tyggigúmmi af al-
efli á erfitt með að hugsa. Sum-
ar afgreiðsludömur virðast liafa
alveg nóg að gera við þetta verk-
efni eins og það er nú geðslegt.
Yfirleitt eru karlmenn mun
betri við afgreiðslu.
I Danmörku er talið, að af-
greiðslufólk þurfi að læra sitt
starf. Þar verður fólk að vera
við nám i búðarfræðum i nokk-
ur ár og hefur sáralitið kaup
á meðan. Samt er það svo, að
þetta er ekki einhlitt og sýnist
liafa fætt af sér aðrar öfgar.
Það liggur við að maður þurfi
að drekka i sig kjark til þess
að fara inn í sumar verzlanir
i Kaupmannahöfn, sérstaklega
ef maður er ekki viss um að
kaupin gangi. Það eru ef til vill
komnir tveir eða þrír stima-
mjúkir afgreiðslumenn í kring-
um mann og þeir hafa svipað
liugarfar og veiðimaðurinn, sem
þegar hefur laxinn á færinu.
Það endar með því að maður
kaupir eitthvað til j>ess að losna
og komast út, en heitir sjálfum
sér því um leið, að þangað fari
maður aldrei aftur.
Ég get ekki nógsamlega dá-
samað það, hversu lítið er af
jjesskonar kaupmönnum og húð-
arfólki á íslandi, sem lítnr á
viðskiptavininn eins og fisk í
neti. Það er venjulega hægt að
komast út úr verzlunum hér
ef maður hefur ekki fundið
neitt við sitt hæfi, án þess að
]>að verði nein mannraun. Hins-
vegar er mannraunin fólgin i
því eins og áður er sagt að fá
einhvern til að hreyfa sig. Þetta
stafar sumpart af hinum ahnenna
skorti íslendinga á umgengnis-
menningu og sumpart af þvi,
hversu þjónustuhlutverkið virð-
ist l'jarri þjóðareðlinu. GS.