Vikan


Vikan - 30.12.1964, Síða 22

Vikan - 30.12.1964, Síða 22
g hefi séð börnin % deyja. Þau gildna og deyja svo mjög snögglega. En það eru ekki eingöngu _ börnin. Við finnum öll til sjúkdómseinkennanna, og fjöldi fólks er nú sturl- aður." Það var Sebastiao Amaral, sem var að lýsa hinum hræðilega, ólæknandi sjúk- dómi, sem herjar ó nærri hvern íbúa hins brasilíska þorps, Itacambira, og ná- grenni þess. Um leið og hann talaði fálmuðu hendur hans um tölurnar á snjáðum jakk- anum hans. Fyrir utan hjúkr- unarskýli hans vappaði mag- ur og kláðugur hundur, og er hann var kominn yfir að kirkjunni lagðist hann á hlið- ina og sofnaði. Þetta land- búnaðarhérað í fylkinu Min- as Gerais í Brasiliu er um- lukið hæðardrögum. Um þau og átta greftrunarhýsi sem þarna sjást, leikur hægur andvarinn. í fyrstu mætti undarlega þykja, hvers vegna svo fámenn sveit hefir átta greftrunarhýsi. Maður á hestbaki drattast upp götuna, og hófa- dynurinn rýfur hádegiskyrrðina. Hitinn var mikill og þurr. Þegar maðurinn hafði farið framhjá okkur varð aftur þögn. Engir bílar voru á ferð. Ekki heyrðist ( neinum síma. Engin útvarpstæki rufu þögn þá er hvíl- ir hér yfir aðalgötu þessa bæjar. Bærinn er bæjar- stjóraiaus, hefir engan prest, lögreglumann, slökkvi- liðsmann né læknir. Fólkið í Itacaambira gengur um aðgerðalítið og eins og í leiðslu, og lætur sér auðsjáan- lega á sama standa um hervirki þau, sem „rakarinn" gerir, en svo nefnist það blóðsuguskordýr, sem þegar hefir dæmt til dauða flesta þorpsbúa, en ekki aðeins þá heldur einnig um sjö milljónir annarra Suður- Ameríkubúa. Sjúkdóms þess, sem þessi skordýr valda, hefir einnig orðið vart í Bandaríkjum Norður-Ameríku. En í dag er það vitað með vissu að það er í Brasilíu, þorpum eins og Itacambira, sem plága þessi virðist vera óviðráðanleg. í fljótu bragði er erfitt að gera sér grein fyrir tjóni því, er „rakarinn" hefir valdið Itacambira, því þetta litla þorp, sem liggur um 640 km fyrir norðan Rio de Janeiro, er mjög svo snoturt og vel staðsett í dal- verpi milli fagurgrænna hlíða fjallgarðs, sem nefnd- ur er Emerald Range. Það er fyrst þegar þú ræðir við þorpsbúa, að þú skynjar það ástand er þarna ríkir. Þá skilst þér hvernig stendur á öllum þeim legsteinum sem þekja kirkju- garðana. Þorpsbúar hafa ýmsar hryggilegar sögur að segja: Dauðinn heimsótfi Octavio Santos er hann var við ávaxtatínslu. José Capos féll örendur niður er hann kraup í bænargjörð, og Pedor litli Leau er hann stóð á tali við foreldra sína. Giomar Rodrigues stóð við gröf dóttur sinnar, er nýlega hafði verið kvödd burt úr þessum heimi. Hann féll yfir gröfina og var þegar liðið lík. Svo virðist, sem engin fjölskylda í þorpinu hafi með öllu sloppið, en erfitt er að segja um þetta með vissu, þar eð engar opinberar skýrslur eru til. „Dauðinn heimsækir einhvern okkar í viku hverri", heldur Sebastiao Amaral áfram. Hann sagði okkur þessu næst frá hinni 34 ára gömlu Mariu Ferreira dos Santos. „Hún liggur fyrir dauðanum í kofa sín- um, og hefir verið með óráði síðustu dagana," sagði hann. „Hún yfirgefur okkur í kvöld, eða kannski ekki fyrr en á morgun." Aður fyrr var prestur í Itacambira, ungur maður, að nafni Osvaldo Simoes, en hann yfirgaf þorpið fyrir meira en ári síðan. Enginn prestur hefir síðan komið til þorpsins, og kirkjan stendur auð og yfir- gefin. Bóndi nokkur, Lucio Bemquerer, segist ekki vita hvers vegna presturinn yfirgaf þorpsbúa. Flestir gruna að „rakarinn" hafi verið ástæðan, en Bemquerer við- urkennir, að ef til vill sé fólkinu sjálfu um að kenna. Þorpsbúar hafa sem sé lengi haft þá trú, að „rakar- inn" réðist ekki á heiðingja, og þess vegna voru þeir mótfallnir því þegar séra Simoes reyndi að skíra börn

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.