Vikan - 16.11.1967, Blaðsíða 32
Ronson
HÁRÞURRKA HEIMILANM
EINKAUMBOÐ:
I. GUÐMUNDSSON & CO. H.F., REYKJAVÍK
Tvíburamerkio (22. maí — 21. júní):
Þu ert þreyttur a að fara í kringum hlutina og
láta öðruvísi en þér er eðlilegast. Þér verður boðið í
ferðalag, sem þú skalt þiggja, ef þess er nokkur
kostur. Þú kynnir þér nýja handavinnu.
Krabbamerkið (22. júnl — 23. júlf):
Þú hefur áhuga á að breyta um hagi þína, en til
þess skortir þig enn fjármagn. Hinsvegar skaltu
bera hugmyndir þínar undir eldri og reyndari menn.
þú lærir mikið af því. Þú hagnast á sölu.
Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september);
Þú hefur í huga áætlanir sem hafa stórfelldar breyt-
ingar í för með sér fyrir þig og fjölskyldu þína,
og skaltu kynna þér aðstæður rækilega. Þú verður
fyrir vinnusvikum, en það rætist samt úr fyrir þér.
Vogarmerkið (24. september — 23. október):
Þú ert of gagnrýninn á félaga þína, láttu af því og
þér mun líða miklu betur. Þú átt fremur auðvelda
leið til að koma metnaðarmálum þinum áfram.
Skemmtu þér sem mest í hópi kunningja.
Drekamerkið (24. október — 22. nóvember);
Viðfangsefni sem lengi hafa verið á döfinni verða
nú afgerð, þér til mikils léttis. Nú geturðu loksins
reitt þig á að loforð þau sem þér hafa verið gefin,
standist. Þú færð góða heimsókn.
Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. des.):
Það er einhver óróleiki umhverfis þig. Þú neyðist
til að selja hlut sem þér þykir mjög vænt um. Með-
ferð nágranna þinna á vissum hlutum gera þig ergi-
legan. Þú ferð sennilega í ferðalag.
Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ógúst):
Þú hefur áhyggjur út af minnisleysi þínu, en þú
veizt að það er svolítið kæruleysi saman við. Þú
hefur áhuga á að komast inn í iðngrein sem gefur
nokkuð af sér, en þér mun reynast það erfitt.
Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar):
Þú verður fyrir svikum á vinnustað. Vegna erfiðleika
hjá þér verðurðu að fresta fyrirætlunum þínum. Þú
færð bréf frá óvæntum aðila, en það vekur nýjar
vonir með þér. Vertu ekki of trúgjarn.
Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar):
Láttu ekki alla vita hvað þú hugsar. Komdu heim-
ilisfólki þínu á óvart með einhverri nýjung. Timi
þinn verður fremur ódrjúgur fyrri hluta vikunnar.
Þú hefur starf með höndum, sem þér fellur illa.
Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz):
Ef þú vandar þig og hefur skilningarvitin vakandi,
nærðu mjög góðum árangri við verk þín. Þú veltir
mikið fyrir þér ákveðinni hugmynd, en hún er allt
of kostnaðarsöm. Vinir þínir gleðja þig.
Þú verður vitni að smá þjófnaði, en þar sem þú
þekkir málavöxtu læturðu sem ekkert sé. Þú stríðir
kunningja þínum, og gerir þér ekki grein fyrir hvað
hann tekur það nærri sér. Heillataia er þrír.
Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí):
Þú hefur fengið snjalla, arðvænlega hugmynd. Þér
mun ganga erfiðlega fyrst í stað, en síðar þarftu
engu að kvíða. Þú færð gjöf sem þú hefur verið
spenrttur út af lengi. Laugardagurinn færir fréttir.
Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl):
32 VIKAN 46- tbl-