Vikan


Vikan - 16.11.1967, Qupperneq 32

Vikan - 16.11.1967, Qupperneq 32
Ronson HÁRÞURRKA HEIMILANM EINKAUMBOÐ: I. GUÐMUNDSSON & CO. H.F., REYKJAVÍK Tvíburamerkio (22. maí — 21. júní): Þu ert þreyttur a að fara í kringum hlutina og láta öðruvísi en þér er eðlilegast. Þér verður boðið í ferðalag, sem þú skalt þiggja, ef þess er nokkur kostur. Þú kynnir þér nýja handavinnu. Krabbamerkið (22. júnl — 23. júlf): Þú hefur áhuga á að breyta um hagi þína, en til þess skortir þig enn fjármagn. Hinsvegar skaltu bera hugmyndir þínar undir eldri og reyndari menn. þú lærir mikið af því. Þú hagnast á sölu. Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september); Þú hefur í huga áætlanir sem hafa stórfelldar breyt- ingar í för með sér fyrir þig og fjölskyldu þína, og skaltu kynna þér aðstæður rækilega. Þú verður fyrir vinnusvikum, en það rætist samt úr fyrir þér. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Þú ert of gagnrýninn á félaga þína, láttu af því og þér mun líða miklu betur. Þú átt fremur auðvelda leið til að koma metnaðarmálum þinum áfram. Skemmtu þér sem mest í hópi kunningja. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember); Viðfangsefni sem lengi hafa verið á döfinni verða nú afgerð, þér til mikils léttis. Nú geturðu loksins reitt þig á að loforð þau sem þér hafa verið gefin, standist. Þú færð góða heimsókn. Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Það er einhver óróleiki umhverfis þig. Þú neyðist til að selja hlut sem þér þykir mjög vænt um. Með- ferð nágranna þinna á vissum hlutum gera þig ergi- legan. Þú ferð sennilega í ferðalag. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ógúst): Þú hefur áhyggjur út af minnisleysi þínu, en þú veizt að það er svolítið kæruleysi saman við. Þú hefur áhuga á að komast inn í iðngrein sem gefur nokkuð af sér, en þér mun reynast það erfitt. Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Þú verður fyrir svikum á vinnustað. Vegna erfiðleika hjá þér verðurðu að fresta fyrirætlunum þínum. Þú færð bréf frá óvæntum aðila, en það vekur nýjar vonir með þér. Vertu ekki of trúgjarn. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Láttu ekki alla vita hvað þú hugsar. Komdu heim- ilisfólki þínu á óvart með einhverri nýjung. Timi þinn verður fremur ódrjúgur fyrri hluta vikunnar. Þú hefur starf með höndum, sem þér fellur illa. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Ef þú vandar þig og hefur skilningarvitin vakandi, nærðu mjög góðum árangri við verk þín. Þú veltir mikið fyrir þér ákveðinni hugmynd, en hún er allt of kostnaðarsöm. Vinir þínir gleðja þig. Þú verður vitni að smá þjófnaði, en þar sem þú þekkir málavöxtu læturðu sem ekkert sé. Þú stríðir kunningja þínum, og gerir þér ekki grein fyrir hvað hann tekur það nærri sér. Heillataia er þrír. Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Þú hefur fengið snjalla, arðvænlega hugmynd. Þér mun ganga erfiðlega fyrst í stað, en síðar þarftu engu að kvíða. Þú færð gjöf sem þú hefur verið spenrttur út af lengi. Laugardagurinn færir fréttir. Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): 32 VIKAN 46- tbl-

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.