Vikan - 30.11.1967, Side 7
que ber af. Hvenær byrjar hún
aftur?
Tvær sem vonast eftir
MÖRGUM pennavinum.
Við vonum að einhver verði
við bón þessara tryggu vin-
kvenna, — helzt fleiri en einn,
svo að önnur fari ekki í jóla-
köttinn. Angelique kemur fyrir
jól.
DRAUMUR UM BRÚÐKAUP.
Kæra Vika!
Ég hef mikinn áhuga á því að
fá ráðningu á þessum draumi,
sem mig dreymdi í nótt. Mig
dreymdi hann svo skýrt og
sterkt, að ég glaðvaknaði að hon-
um loknum og hripaði hann nið-
ur á biað. Hann hlýtur að hafa
einhverja merkingu fyrir mig;
segðu mér hver hún er, hvernig
sem hún er. Ég bíð með óþreyju
og þakka ráðninguna fyrirfram,
svo viss er ég um að ég fái hana.
Þú sérð það nú kannski á skrift-
inni, að ég er svolítið frek eða
ákveðin, er það ekki?
Draumurinn er svona:
Mér fannst að ég ætlaði að fara
að gifta mig í kirkju, og ég ætl-
aði að fara að klæða mig í brúð-
arskartið og greiða mér. En ég
ligg í rúminu og slappa af. Þá
finnst mér vera þarna staddur
ungur leikari, og er hann að æfa
sig undir leikatriði. Hef ég orð
á því við hann, að ég hafi alltaf
haft mikla trú á honum sem leik-
ara. Hann verður þá svo einlæg-
ur við mig að trúa mér fyrir því,
að hann hafi aldrei verið ánægð-
ur með sig sem leikara. Þykir
mér þá, sem þetta sé einn af okk-
ar beztu leikurum (Lárus Páls-
son). Verður hann síðan aftur
blíður og innilegur við mig, og
líkar mér það vel. Það var laust
við alla ástúð, aðeins indæll hlý-
leiki og vinátta. Fannst mér sem
hann væri hamingjusamur yfir
trausti mínu og áliti á honum.
Allt í einu man ég snögglega
eftir því, að ég ætla að fara að
gifta mig og nú sé mannsefnið
farið að bíða í kirkjunni. Ekkert
man ég eða vissi um nafnið og
aðeins það, að mér féll það ekk-
ert illa að eiga að fara að giftast.
Nú snarast ég upp úr rúminu og
fer að klæða mig, en er kvíðin
yfir því, að hárið á mér sé ekki
vel hreint og líklega verði ég í
vandræðum með að greiða það
og snyrta svo að vel fari. En það
er ekkert við því að gera. Ég
verð aðeins að gera sem bezt ég
get og er anzi taugaóstyrk. Ég
held þó áfram að tygja mig til og
er alltaf öðru hvoru og nokkuð
oft að bera á mig ilmvatn, sem
ég vissi, að var mjög gott og
ekta. En ég er afar óánægð við
sjálfa mig vegna þess, að brúð-
guminn og fleira fólk bíður í
kirkjunni. Þá finnst mér allt í
einu vera komin vinstúlka mín
og ég segi við hana:
Er þetta ekki alveg óskaplegt
með mig, hreint ófyrirgefanlegt?
Ég átti að koma klukkan 6, og
nú er klukkan um 7!
Þá segir hún og er furðu róleg:
Þú áttir að koma klukkan 7, en
hún er að verða 9!
Við það glaðvaknaði ég. Ég
leit á klukkuna, hún var um
fimm og ég hripaði drauminn
niður.
Þórunn Finnbogadóttir.
Það er afar örðugt að ráða
drauma, svo vit sé í. Sumir eru
þó býsna klókir við þe.tta, hvort
sem það stafar af einhverju sér-
stöku innsæi, sem þeir eru gædd-
ir, eða bara svolítið frjóu ímynd-
unarafli. Við skulum til gamans
freista þess að ráða draum Þór-
unnar hér á eftir, en ef einhver
draumspakur lesandi sér þessar
línur, ætti hann að skrifa okkur
og segja okkur sína ráðningu.
Við göngum út frá því, að um
berdreymi sé að ræða hjá þér,
Þórunn. Ekki þætti okkur heldur
ósennilegt, að þú værir í tygjum
við einhvem mann og að komið
hefði til tals, að þið gengjuð í
heilagt hjónaband. Það verður
ekkert úr því hjónabandi. — Þú
giftir þig ekki fyrr en löngu síð-
ar og allt öðrum manni, en þú
hafðir búizt við. Þú tekur sjálf
ákvörðun um þetta eftir að hafa
skoðað hug þinn rækilega. Þú
þykist vita með vissu, að ást
vinar þíns sé ekki eins traust og
ósvikin og þú hafðir vonað. Þið
slítið samvistum í vináttu og
bróðerni, en hjá hvorugu ykkar
gerist það að sjálfsögðu án nokk-
urs sársauka.
M. WSB mm SMWLft
5?
Hun er bœði
fallegri
og
fullkomnari“
CENTRIFUGAL
WASH M0DEL620
MED EINUM HNAPPI
veljið þér þvottakerfið, og
C.W. 620
(T) ÞVÆR,
© HITAR,
(T) SÝÐUR,
© MARGSKOLAR,
(T) ÞEYTIVINDUR
Mii IIII
-Su m\-
Sápuskammtar settir í strax — vélin skolar Alveg ||3||S1Í8P MM þeim sjálfkrafa niður á réttum tíma hljóður SJSJSiijjUE
Sll Ie^ur siólf inn sérstakt skolefni I| mmIISSiISI ef þér óskið að nota það i lUíSSUfl ^vlv'r^' afbragðs lllilllly Þeytivinding
nrlplis rr“s""g íeslin f| Þarf ekki að festast 5j niður með boltum
Ofní Þlœlonhúðuð að utan finslípað, Sérlega f01111111(1 ulEll ryðfrítt stál að innan auðveld
nnimoh ^Nkomnasta °g fallegasta EOflBðlll vélin á markaðinum leiíarvisir s
=r i
SíMl 2 4420 - SUÐURGÖTU 10 - REYKJAVlK.
Sendið undirrit. mynd af FONIX C.W. 620
rrneð nónari upplýsingum, m.a. um verð og greiðsluskilmóla
NAFN ..............................-.....
HEIMILI -------------------------........
TIL Fönix S.f. pósthólf 1421, Reykjavík
48. tbi. VIKAN 7