Vikan - 30.11.1967, Blaðsíða 31
Jóla°9
nýársferó
mlsGullfoss 1967
LAGT AF STAÐ: ÁFANGASTAÐIR:
FRÁ REYKJAVlK 22. DESEMBER 1967 AMSTERDAM — HAMBORG —
- KOMIÐ AFTUR 7. JANÚAR 1968. KAUPMANNAHOFN OG KRISTIANSAND.
DAGA
FERÐ
— VERÐ FRÁ [B
AÐEINS KR.jISd
00
(Faeðiskostnafiur, þjónustugjald og söluskattur innifalið).
Notið jólafríið til þess að ferðast. - Njótið hótiðarinnar um borð í Gullfossi
- og óramótanna í Kaupmannahöfn.
Ferðaóætlun: Fró Reykjavik 22. desember
1967. I Amsterdam 26. og 27. desember. i
Hamborg 28., 29. og 30. desember. í Kaup-
mannahöfn 31. desember, 1., 2. og 3. janúar.
í Kristiansand 4. janúar. Til Reykjavíkur 7.
janúar 1968.
Skipulagðar verða skoðunar- og skemmti-
ferðir í hverri viðkomuhöfn, og ýmislegt til
skemmtunar um borð. að ógleymdum
þeim veizlukosti sem Gullfoss er þekktur
af.
H.F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS
ÁSTMAJ,
eyjuna, eftir sæmilegum vegum.
Þar hittir maður hina raunverulegu
Sardiniubúa, þeir búa yfirleitt ekki
niður við ströndina, — af hræðslu
við innrás óvina. Þarna er allt svo
ósnert og langt frá skarkala heims-
ins, að maður gerir sér ekki grein
fyrir því hvernig tfminn líður, eng-
um liggur neitt á. Það getur líka
verið að þið verðið eins heppin
og ég, þegar ég tók strandveginn
frá Punta Sabbatino: — að sjá stór-
an hóp af uxum, sem voru að baða
sig í lóninu. Þeir renndu sér hægt
út f vatnið, skoluðu af sér óhrein-
indi og flugur, fnæstu glaðlega við
vatnsborðið, eins og bufflahjörð
við vatnsból Afrfku.
í þorpunum minnir andrúmsloft-
ið á Spán, úr leikritum Garcia Lorca,
svartklæddar konur sitja f skugga
undir kirkjuveggnum. En þarna sér
maður líka myndræna fegurð. Hús-
in eru Ijósrauð eða hvít, umvafin
klifurrósum og alls konar vafnings-
viði. Kindur f hundraðatali eru á
beit í hlfðunum og fjárhirðar sofa
úr sér áfengisvímuna í skuggum
olivutrjánna. Litlir, svarthærðir hirð-
ingjadrengir, sem ekki hafa slíka
svefnþörf, sitja við vegbrúnina og
spila á flautu. Angurværir tónar
flautunnar blandast saman við
jarmið í kindunum.
Vegirnir eru nokkuð góðir, sums-
staðar mjög góðir. Ólivutré og
kaktusar koma sér prýðilega sam-
an og valmúan blómstrar í þéttum
breiðum, eins og blóðrauður
röggvafeldur.
í suðri, þegar maður nálgast
höfuðborgina Cagliari, verður um-
ferðin meiri. En það snertir ekki
uxakerrurnar og ökumenn þeirra,
þótt nýtízkulegir bflar aki framhjá
þeim, og asnarnir tifa letilega
áfram, með tafandi eyru. Við veg-
brúnina eru vfða börn og gamal-
menni, sem selja vegfarendum app-
elsínur. Stutta tízkan hefur sýni-
lega enga aðdáendur á Sardiniu;
konurnar ganga ennþá í skrautleg-
um þjóðbúningum, skósíðum kjól-
um, með þrfhyrnd sjöl um axlirn-
ar, og útsaumaða höfuðklúta, sem
bundnir eru yfir hökuna.
Einu sinni á ári safnast eyjar-
skeggjar saman til stórkostlegra há-
tfðahalda, cavalcata, f bænum
Sassari á norðurströndinni. Þar sat
ég í fulla tvo klukkutíma, og horfði
á fólk frá flestum bæjum og þorp-
um eyjarinnar, ganga f skrúðgöngu,
f skrautlegum hátíðabúningum. Ut-
saumurinn á mörgum þeirra var
örugglega fleiri ára vinna. Vfðast
hvar voru það föt karlmannanna
sem báru af.
Forðist skæruliSana.
En hvar halda skæruliðarnir sig?
Þeir eru í Nuoro og héraðinu um-
hverfis borgina. Daginn sem ég ók
í gegnum borgina, var Saragat for-
seti staddur þar, við jarðarför lög-
regluþjóns, sem skæruliðarnir höfðu
skotið til bana. Um kvöldið, þegar
jarðarförin var afstaðin, var morð-
inginn skotinn til bana, af óvinum
sínum. Þarna í fjöllunum eru stöð-
ugar erjur. Þótt þessir herskáu fbú-
ar eyjarinnar berjist mest innbyrð-
is, koma oft fyrir slys á saklausu
fólki, sem þarna er á ferð.
Fyrir nokkrum árum voru ensk
hjón þarna á ferð. Þau höfðu far-
ið úr bílnum, til að matast á engi
við veginn. Þau voru skotin til
bana, vegna þess að þau höfðu
óvart lent miili tveggja óvina, sem
voru að gera upp viðskipti, sín á
milli. En yfirvöldin á Sardiniu segja
að slíkir atburðir séu aðeins ör-
lagarík slys. Það er eins gott að
halda sig sem lengst frá héraðinu
kringum Orgosolo, og akaekki veg-
inn til Nuoro í myrkri, þá er engin
hætta á að skæruliðarnir ónáði
mann.
Flestir ferðamenn halda sig við
ströndina, og njóta hinna dásam-
legu baðstranda, sem eru einstakar
í sinni röð. Á vesturströndinni eru
þær ýmist silfurhvítar eða gular,
eins og eyðimerkursandur, en sunn-
an við Alghero, er sandurinn Ijós-
rauður og í norðri virðist sandur-
inn vera himinblár.
Og ennþá er nóg pláss á Sard-
iniu....
REYNIÐ ÞESSAR FRAMÚRSKARANDI
RAFHLÖÐUR NÆST OG REYNIÐ MUNINN
Samanburður á endingartíma.
Venjulegur National HiTop
Útvarpstæki: 100 klst.
Ileyrnartæki: 100 klst.
Úeikföng: 100 klst.
Klukkur: 100 klst.
Vasaljós: 100 klst.
Segulbönd 100 klst.
= 170 klst.
= 130 klst.
= 250 klst.
= 150 klst.
= 200 klst.
= 180 klst.
Rafborg s.l.
Reykjavík - Sími 11141.
48. tbi. vikan 31