Vikan


Vikan - 30.11.1967, Side 50

Vikan - 30.11.1967, Side 50
meö NIVE A - Ultra- Cremi eruð þér alltaf við öllu búin! NIVEA-Ultra-Crem verndar hörundiS — einmltt á veturna. Allt hörund. Alla daga. Áuk þess er NIVEA nœrandi fyrir hörundið. NIVEA-Ultra-Crem veitir hörundinu þa3, sem það þarfnast til að haldast stöðugt hreint, ferskt og heilbrigt, NIVEA-Ultra- Crem býr yður sannariega undir „vetrarhörkurnar". ur til að giftast Paddy. Jamie tqggði brauðið og hugsaði sig vel um nokkra hríð. — í stað- inn fyrir að búa í Brighton gæt- um við farið um allan heiminn með þennan sirkus. Sirkusfólk- ið býr hvort sem er í húsvögn- um. — Það er nú ekki nákvæm- lega það, sem ég hafði hugsað mér um framtíð dóttur minnar. En ég skal viðurkenna, að það væri svolítið óvenjulegt. Julie starði heilluð og hrifin á ostinn og brauðið hverfa með ótrúleg- um hraða inn í hítina framan á Jamie. Hann þurrkaði hendurnar á jakkanum. — Ég get víst ekki fengið að búa hérna hjá þér? spurði hann. Adrienne. Þegar hún hristi höfuðið, hélt hann áfram. — Nei, ég bjóst svo sem- ekki við því heldur. Hann and- varpaði. — Það verður ekki mik- ið gaman án Brackens. — Ég sting upp á, að þú bíð- ir þar til þú ert orðinn svolítið eldri. Þeir borga ekki strákum á þínum aldri neitt að ráði, jafn- vel ekki í sirkus. En þegar þú ert búinn með skólann, geturðu fengið góða stöðu. Jamie horfðist hugsi í augu við Adrienne. — Allt í lagi. Ég vil hvort sem er ekki fara héð- an, meðan Paddy er hér. Það eru tveir dagar eftir, og þá verður pabbi kominn aftur. Kjarkur hans þvarr ofurlítið. — Þó að þú segir honum ekkert, gerir hún það. Hún kjaftar frá öllu sem ég geri, nema því sem er gott. Þá þegir hún. — Ég skal tala við frú Garston í kvöld, þegar ég ek þér heim, lofaði Adrienne. — Það bjargar engu. Hún var bálreið út í mig, af því að ég varð að láta froskana mína í baðkerið. Hefði pabbi leyft mér að fara með sér til London, hefði ég ekki þurft að láta þá í bað- kerið, því þá hefði ég farið með þá beint í dýragarðinn. Það er allt í lagi að hafa þá í fötu svo- litla stund, en ekki lengi. Það hlýtur hún að geta skilið. — Taktu þessu nú rólega með froskana, sagði Adrienne róandi. — Pabbi þinn tekur þið sjálf- sagt með til London, þegar hann fer þangað næst. — Hann lofaði því síðast, en þegar ég bjó mig í gær, sagði hann að ég gæti samt ekki farið með, því hann þyrfti að tala við mann allan tímann. Adrienne og Julie skiptust á augnaráði yfir höfuð barnsins. — Ég hélt, að pabbi þinn væri í Oxford. Ertu alveg viss um, að hann hafi ætlað til London? Adrienne fann til andstyggðar á því að rekja garnirnar úr barninu um fyrirtekt föður þess, en frú Garston hafði greinilega sagt, að Martin Westbury hefði farið í samkvæmi í Oxford. Framhald í næsta blaði. LILUU LILJU BINDI ERU BETRI Fást í næstu búð L 0 X E N E - og flasan fer 50 VLKAN 48-tbl-

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.