Vikan - 30.11.1967, Blaðsíða 24
/'■
Roberta Scott frá Tulsa í
Bandaríkjunum var 21 árs
gömul og starfaði sem sýn-
ingarstúlka og fyrirsæta. Hún
hafði tekið þátt í fegurðar-
samkeppni og borið sigur úr
býtum, hlotið titilinn „Ung-
frú Oklahoma.“
Hún kenndi meins í öðru
hnénu, fór til læknis og að
lokinni umfangsmikilli rann-
sókn, kom reiðarslagið:
Læknarnir sögðu henni, að
hún ætti aðeins um tvo kosti
að velja: Að láta taka annan
fótinn eða deyja. Hún væri
með liðamótakrabba í vinstra
hné og meinið mundi breið-
ast út fyrr en varði.
Það má nærri geta hvernig
ungri og lífsglaðri stúlku eins
og Roberta var hefur orðið
við þessi tíðindi. Sú tilhugs-
un var nær óbærileg fyrir
unga fegurðardrottningu að
eiga eftir að vera örkumla
allt sitt líf. En hún ákvað að
horfast í augu við staðreynd-
irnar og lét taka af sér fót-
inn.
Læknishjálp er dýr í
Bandaríkjunum, og aðgerðin
kostaði meira en Robertu
hafði órað fyrir: Sjálf að-
gerðin kostaði 80.000 krónur,
en þar við bættist fjögurra
vikna lega á sjúkrahúsi, sem
kostaði 70.000 krónur og
gervifótur kostaði 65.000
krónur. Hvorki Roberta né
foreldrar hennar gátu greitt
svo háa upphæð.
Almenningur hljóp undir
bagga með hinni ungu feg-
urðardrottningu. Sjónvarps-
stöðvar sögðu frá dapurleg-
um örlögum hennar og efndu
til fjáröflunar henni til
handa. Með hjálp almenn-
ings tókst henni því að greiða
hina rándýru læknisaðgerð.
Framhald á bls. 36.
V_______________________
24 VIKAN 48-tbl'
"N
SEM MISSTIFOTINN
Á myndinni efst til vinstri sést Roberta Scott, áður en hún missti
fótinn. Hún starfaði sem sýningarstúlka og fyrirsæta. Hér að ofan er
hún á sjóskíðum — á cinum fæti, og til hægri sést hún sitja hjá
hækjum sínum. Þær eru málaðar margs konar litum og Roberta gæt-
ir þess, að þær fari vel við þau föt, sem hún klæðist hverju sinni.
Roberta fcr oft í sundlaugar, og hún
hefur náð ótrúlcgri lcikni í að synda.
Hér cr hún ásamt John vini sínum.
Robcrta klæðir sig samkvæmt nýjustu
tízku eins og hún gcrði meðan hún
var fcgurðardrottning og fyrirsæta. —
Nú ferðast hún hins vcgar um og flyt-
ur fyrirlestra. Hún hefur sérstaklega
gott lag á að stappa stálinu í fólk, sem
hefur orðið fyrir sömu örlögum og
hún.