Vikan - 08.02.1968, Blaðsíða 32
ONSON
Tilvalin taekilæpisglöff
Lóöar # losar ryðgaða
bolta og rær * hreinsar
og þurrkar rafkerti *
losar málningu af við-
kvæmum flötum & þíðir
frosnar vatnsleiðslur &
nothæfur sem suðutæki
# og hentar við óteljandi
fleiri verk.
lust the /imited llame you noed . Thé porfoct Waj of hoating up.
o strip windowframes of paintl , thermoplastic tiles whon fixing
‘‘ them to floors or walls.
water ...itliesdowntogivoa'Buosen
lawed Durnor* effect for many labora-
tory uses.
Stillanlegur logi
hvaða verk sem er.
EinkaumboS: I. GUÐMUNDSSON & CO. H.F.
Reykjavík
y Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Vertu ekki mikið að heiman í vikunni, því þín bíða alls kyns freistingar, einkum þar sem margt fólk er samankomið. Á föstudag gerist eitthvað, sem verður til að valda þér vonbrigðum, þótt ekki alvarlegum.
Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Taktu ekki mark á því, sem vinir þínir segja um einn félaga þinn. Þú kynnist persónu í vikunni, sem á eftir að hafa mikil áhrif á gerðir þínar næstu vik- ur. Láttu ekki tortryggnina hlaupa með þig 1 gönur.
Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní); Þetta verður fremur daufleg vika, nema á vinnustað gerist eitthvað sem hleypir öllu i uppnám, en það snertir þig lítið. Fimmtudagurinn verður nokkuð frá- brugðin öðrum dögum, þá rætast óskir þínar.
Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Það gerist margt óvenjulegt í þessari viku, einkum hvað snertlr öll hjartans mál. Þú kynnist nýrri hlið ástvinar þlns, sem verður til að tengja ykkur fast- ari þöndum. Farðu varlega í fjármálum.
m Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Vinur þinn veldur þér nokkrum vonþrigðum, en hann á eftir að bæta þér það upp, svo um munar. Vertu ekki of linur við að innheimta það sem Þú átt útistandandi. Til þess er föstudagurinn beztur.
Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Þér virðist hætta dálítið til að nöldra yfir minnstu smámunum, reyndu að komast að því, hvað það er í raun og veru sem pirrar þig. Vikan verður happa- drjúg konum undir þrítugu.
0 Vogarmerkið (24. september — 23. október): Mikið annríki er á vinnustað, og þú sérð hvergi nærri fram úr verkefnum þínum. Vandaðu allt sem þú skrifar í vikunni, smávægileg fljótfærni gæti spillt miklu. Fjólublátt er heillalitur.
Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Þessari viku svipar til annarrar, sem þú hefur lengi minnzt, og jafnan með mikilli ánægju, Eitt smáat- vik á laugardaginn verður til að kóróna allt saman. Heillatala er sjö.
Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Þetta er tími mikilla anna, og þú verður að beita hörku til að fá að slappa af. Það hefur borið allt of mikið á galla í fari þínu sem angraði fjölskyldu þína og þig, fyrir nokkru. Sæktu ekki í gamla farið.
£ Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Vinur þinn gerir þér ómetanlega greiða í vikunni. Þú getur hæglega endurgoldið honum þennan greiða, því þú veizt vel hvað kemur honum bezt. Berðu ekki mikla peninga á þér.
Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar!: Menn sem hafa ýmugust á þér leggja fyrir þig erfiða þraut. Þótt furðulegt megi teljast, hefurðu heppn- ina með þér, og stenzt allar raunir. Framkoma þín er stór liður í sigri þínum.
Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Það hefur verið dálítið kalt milli þín og eins vinar þíns undanfarið, en i vikunni kemur eitthvað upp, sem skýrir máiin. Miðvikudagur er nokkuð frábrugð- in hinum. Vertu við öliu búinn.
32 VIKAN 6- tbl-