Vikan - 16.05.1968, Qupperneq 7
áttina! Mig langar til að
leita á náðir þínar.
Þannig er mál með
vexti, að ég reyki, þótt ég
sé enn ungur að árum. Ég
hef reykl í rúm tvö ár. Ég
man enn vel þegar ég byrj-
aði á þessum fjandi. Ég fór
með þetta eins og manns-
morð. Þegar ég laumaðist
út í sjoppu til að kaupa
mér sígarettur, var eins og
ég væri að kaupa mér
skammbyssu. Síðan beið
ég eftir tækifæri til að
svæla tóbakið í mig, inni
á klósetti þegar enginn var
heima eða úti í bílskúr.
Mér fannst þetta laumu-
spil mjög spennandi. En
skelfilegar líkamskvalir
þurfti maður að leggja á
sig fyrst í stað. Ég blikn-
aði og blánaði og kastaði
upp hvað eftir annað. En
ekki gafst ég upp. Þegar
ég hafði fiktað við að
reykja í heilt ár, ýmist
einn eða með félögum
mínum, þá var mér farið
að finnast það gott. — Og
einn góðan veðurdag
var ég afhjúpaður. Ég
hafði keypt mér heilan
sígarettupakka og mamma
fann hann í jakkavasa
mínum. Ég bjóst við hinu
versta, hélt að nú yrði
heldur betur sprenging. En
ég varð bæði undrandi og
svolítið vonsvikinn yfir
viðbrögðum foreldra
minna! Pabbi kallaði á
mig og bað mig að finna
sig inn í bókaherbergið. Og
á hverju heldurðu að hann
hafi byrjað samtalið? —
Hann bauð mér sígarettu!!
Hann var hinn blíðasti og
sagði, að fyrst ég væri far-
inn að reykja, þá skyldi
ég alveg eins reykja
heima hjá mér og annars
staðar. Hann sagðist hafa
byrjað að reykja sjálfur,
þegar hann var á mínum
aldri. Hins vegar sagði
hann mér frá öllum ókost-
um reykinga, hvað þær
væru dýrar og hve slæm
áhrif þær hefðu á heils-
una.
Eftir þetta fannst mér
ekki nærri því eins spenn-
andi að reykja. En ég var
búinn að reykja svo lengi
í laumi, að ég var orðinn
háður tóbakinu. Ég reyndi
að hætta en gat það aldrei
nema stuitan tíma í einu.
Mig langar til að hætta að
reykja, sérstaklega af því
að ég veit að „karlinum“
mundi lík það svo vel. —
Geturðu ekki, Póstur
minn, gefið mér eitthvað
verulega gott ráð til þess
að hætta að reykja? Er
hægt að fá einhverjar
pillur hjá lækni?
Með fyrirfram þökk.
Reykháfur.
Lýsingin á því hvernig
þú byrjaðir að reykja er
býsna skemmtileg, og lík-
lega hafa margir byrjað á
sama hátt og þú. Það er í
rauninni merkilegt liversu
margir verða þrælar tó-
baksnautnarinnar, með
hliðsjón af því hversu
menn þurfa að leggja á
sig miklar þjáningar til að
verða það! Engan mann
þekki ég, sem ekki hefur
þótt afskaplega vont að
reykja fyrstu sígaretturn-
ar sínar. Og svo hefst stríð-
ið við að hætta. Sumir
segja, að sjöunda árið sé
verst, en við skulum vona,
að það séu öfgar. Fyrir
nokkrum árum kom út
bók um það, hvernig menn
ættu að hætta að reykja,
en ekki man ég lengur
hvað hún heitir. Og einnig
eru til grænar töflur, sem
kannski er hægt að fá hjá
heimilislækni.
MEÐ FEITAN MAGA.
Kæri Póstur!
Við höfum svo oft séð
ráðleggingar þínar í Vik-
unni, svo að okkur langar
til að biðja þig að hjálpa
okkur. Við erum hérna
tvær vinkonur, sem erum
með heldur feitan maga
(við tökum það fram, að
við erum ekki óléttar). —
Þess vegna langar okkur
endilega að biðja þig að
hjálpa okkur að ná þess-
ari fjandans fitu af mag-
anum. Kanntu ekki annað
ráð en megrunarkúr? Svo
vonum við að þú svarir
okkur skýrt og skorinort.
Okkur finnst mjög gaman
að lesa Vikuna.
Með fyrirfram þökk.
Tvær í vanda.
Gerið eftirfarandi lík-
amsæfingar kvölds og
morgna: Standið gleiðfætt-
ar úti á miðju gólfi. Teyg-
ið handleggina upp fyrir
höfuð og dragið djúpt inn
andann. Beygið ykkur til
vinstri og andið frá ykk-
ur, síðan til hægri og þann-
ig koll af kolli.
Fyrir nýtízku lampa
OSRAM kertaperur
Fyrir sérlega hátíSlega lýsingu
OS.RAM kristalkertaperur
19. tbi. VIKAN 7