Vikan


Vikan - 16.05.1968, Blaðsíða 10

Vikan - 16.05.1968, Blaðsíða 10
/---------------------------------------------> Þar Iöpu Fangi hjá rauðliDum Efftir Róberl Jackson Lífi Dickey Chapelle er lokið. f síðustu sendiför hennar, var það loksins, í Suður-Vietnam, að ham- ingjan brást hennl. Hún hafði farið út af veginum þurrum og rykugum, til þess að taka mynd af hópi bandariskra hermanna, og tók þá ekki eftir iarðraski nokkru sem huldi reyndar jarðsprengju Viet- congliða. Brotin smugu um hana alla og eftir örstutta stund var hún látin. En [ hugum fjölmargra manna, um þver og endilöng Bandaríkin, mun hún eigi deyja. Þeir muna þessa grannvöxnu konu, sem ( ofsa bardagans hætti sér fram í eldregn óvinaliðs. Hugrekki henn- ar við að afla mannkyninu frétta af hörmungum vígvallanna, mun eigi gleymast. Þessi saga segir frá einni af fyrstu hættuferðum hennar. Dickey Chapelle hafði hvað eft- ir annað kennt hinna áköfu hjarta- slaga óttans frá því hún komst á fullorðinsaldur. Hún hafði fundið harðgreipar skelfingarinnar lykjast um sig, þegar sprengjur Japana dundu allt í kringum skipið sem flutti hana til IwoJima, þar sem hún átti að vera stríðsfréttaritari. Sama tilfinning hafði gagntek- ið hana á sjálfri Iwo-eyju, þegar hún var stödd á hæðardragi nokkru, þar sem hún hafði tekið sér stöðu til að Ijósmynda víg- svæðið, en kúlur leyniskyttna þutu um eyru hennar. En sKkur ótti var annars eðlis, óttinn sem vaknar ( ákafa bardag- ans. Nú, þegar hún lá á grúfu ( næturdimmri jörð Ungverjalands, en snjór og kuldi læstu klóm s(n- um um limi hennar og klæðnað, og skuggi af rússneskum varðmanni féll aðeins fáa metra frá henni, þá var sem kökkur myndaðist ( hálsi hennar af þeim lamandi ótta sem var að koma yfir hana. Hún minntist heimilis síns í hinu sólríka Wisconsin, en nú var það orðið svo órafjarri, eins og millj- ónir kdómetra væru á milli. Þetta var ( desember 1956. Fá- einum vikum áður hafði Ungverja- land logað í uppreisn — uppreisn sem hafði verið miskunnarlaust bæld niður með hervirkjum Asíu- liðs Rússa, sem stutt var skriðdrek- um og flugvélum. [ kjölfar þessarar misheppnuðu byltingar hafði fylgt hin hrottaleg- asta „hreinsun" — og fjöldi Ung- verja, karlar, konur og börn reyndi að komast yfir auða svæðið sem skilur landamæraverðina á mörkum Austurríkis — til þess að komast undan ógnarstjórninni, með því að læðast framhjá rússnesku landa- mæravörðunum. Dickey Chapelle var komin til Ungverjalands í tvennum erinda- gerðum. Hún var Ijósmyndari hjá blaðinu Life, og hálfum mánuði fyrr hafði hún komið til Austurrík- is til þess að kynnast flóttamanna- ástandinu af eigin raun; en ( öðru lagi hafði hún tekið að sér verk fyrir Alþjóða hjálparnefndina, sem vildi senda baráttumönnum frelsis- ins í Ungverjalandi nauðsynlegustu læknislyf og hjúkrunargögn. Aðfaranótt 6. desember lagði hún af stað inn yfir landamærin og yfir á óvinasvæðið, í fylgd með tveimur ungverskum leiðsögumönn- um. Hún bar á baki sér tösku fulla af fúkalyfjum, sem voru til þess ætluð að forða heimilislausum ungverskum börnum frá lungna- bólgu. Það marraði [ snjónum undan fótum þeirra, en skyndilega gaf annar leiðsögumaðurinn frá sér að- vörunarblístur. Þau fleygðu sér flötum öll þrjú — en of seint. Blyssprengja flaug um loftið skammt frá þeim og sprakk, og lýsti þá skær birtan upp allt um- hverfið. Vélbyssa heyrðist hreyta úr sér skotum, og leitarljós þutu yfir Framhald á bls. 36. 10 VIKAN 19 tbl-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.