Vikan


Vikan - 16.05.1968, Page 25

Vikan - 16.05.1968, Page 25
Fred hefur engar óhyggjur af járngrindunum og varðmönnunum. Hann er frjáls i fyrsta sinn á ævinni. Hann getur horft á sjónvarp, hann getur reykt og talað frjálslega. Nú er hann laus við sjúklegan járnaga móður sinnar. Hún sendi hann i dauðaklefann, með nokkrum vel völdum og sönnum orðum. fyrsta sinn á ævinni getur Fred M. Esherick nú gert það sem hann ■ langar til. Hann er frjáls. Hann getur fengið sér Coca-cola og poka | af frönskum kartöflum. Hann getur horft á sjónvarpið eins og hann lystir. Hann getur tvinnað blótsyrði eftir því sem hann lystir. Hann getur farið í svartar gallabuxur og peysu upp í háls. Hann getur hlegið og hann getur grátið. Hann getur verið eins og aðrir eðlilegir unglingar, hann verður ekki barinn fyrir það. Hverjum dytti líka í hug að banna pilti, sem á að deyja í rafmagns- stólnum, svo óverulega hluti. Freddie er frjáls. Frjáls innan járngrinda. í fyrsta sinn á hans ungu ævi, stendur ekki mamma hans yfir honum, með sveipandi sverði banna og boða. Hann losnar við stöðuga umönnun hennar, vökul augu og allar áminningarnar. Það var mamma hans sem kenndi honum hinar þrjár höfuðreglur: Foraðstu handalögmál! Reyktu aldrei! Gráttu aldrei! Það var líka mamma hans sem kom honum þangað sem hann situr nú, með nokkrum vel völdum orðum. í klefa númer 2, í L-álmu í ríkisfang- elsinu í Ohio í Bandaríkjunum. Þessi deild er kölluð dauðadeildin. Fangi númer 126236, Esherick, barn að aldri, aðeins svipur af karl- manni, á að láta lífið í rafmagnsstólnum 15. maí. Ef lögum verður framfylgt, á að reyra hann fastan í stólinn, þennan vormorgun. Síðan á að tengja hann við rafleiðslur. Svo er rafstraumi hleypt á, það réttist úr bakinu, höfuðið fellur niður á bringu, og Fred Esherick er ekki lengur í tölu lifenda. Kannski verður framkvæmd dómsins frestað. Þá verður Freddy að ganga gegnum nýjar yfirheyrslur, jafnvel ný réttarhöld. Ef til vill verður hann olls ekki tekinn af lifi. Ef Guð heyrir allar bænir Freds, verður dómnum kannski breytt í lífstíðar fangelsi. Það yrði auðvitað ekki fjölbreytt líf, en það gæti orðið himnaríkissæla, fyrir ungan dreng, sem aldrei hefur haft tækifæri til að lifa lífinu. Sem var kallaður syndaselur, ef hann bað um marmelaði á brauðið sitt. Fred Esherick er barn, sem biður dauðans, þótt hann hafi aldrei lifað lífinu .... Nú situr hann bak við grindurnar. Hann er glaðari en hann var á heim- ili sínu. Hann hefir fitnað og hann er miklu rólegri. Hann segir að nú fyrst, í klefa hinna dauðadæmdu, hafi hann kynnzt frelsinu. Ef maður athugar vel andlit hans, er það fullt af unglingsbólum. Hann er ákveðinn, lítur út fyrir að að geta gert að gamni sínu, en stundum er hann nokkuð þrjózkur, að hætti unglinga. Eins og aðrir unglingar á hans aldri, veit hann ekki hvað hann á að gera við hendur sínar; stingur þeim venjulega í buxnavasana, þegar hann kemur til viðtals. Fred Esherick er glaðlegur, ósköp venjulegur unglingspiltur. 5. maí 1967 myrti hann föður sinn, með byssusting og reyndi að myrða móður sína, á sama hátt, setti svo likamo þeirra í bílskottið og henti þeim fram af klettabrún, niður I vatn. Síðan ók hann heim fór á skauta í tvo tíma, oq bauð bezta vini sínum upp á risastóra brauðsneið. Svo fór hann heim aftur, þar tók lögreglan við honum. Hún var þar komin og beið hans. Það þurfti ekki vitnanna við, gólfin voru blóði drifin og allsstaðar var fullt af sönnunargögnum. Svo komu réttarhöldin, og Fred Esherick var dæmdur til dauða í rafmagnsstólnum, fyrir morð og morðtilraun. Kviðdómurinn fékk litmyndir af illa útleiknu líki föðursins. Svo heyrðu þeir móður hans gráta og segja frá þessum sorgarleik fjölskyldunnar. Kviðdómurinn hafði enga meðaumkun með Fred, þeim fannst sjálfsagt að taka hann af lífi. Þessi dómur kom verjandanum svo á óvart, að það lá við að hann fengi taugaáfall. Sömuleiðis ákærandanum, sem ekki hafði getað sofið um nætur. Dómarinn gat ekki tára bundizt, og sagði að hann hefði aldrei getað trúað því að hann ætti eftir að dæma svo ungan dreng í rafmagns- stólinn. Fred kom fyrir dómstólinn sem fullvaxinn maður og hann var dæmdur sem slíkur. Mótmælaalda reis, ríkisstjórinn, James A. Rhodes hefir fengið fjölda bréfa. Prestarnir hafa talað um dóminn úr ræðustólum kirknanna í Lake Conuty, þar sem enginn hefir hlotið dauðadóm í 41 ár. Fyrir utan fangelsið i Columbus, Ohio, mæta menn reglulega með mót- mælaspjöld. Það eru unglingar, mæður og fullorðnir menn. Það er mjög algengt að sjá setningar eins og þessa á spjöldunum: „Steikið þið kjúklinga, ekki lifandi manneskjur!" „Getið þið ekki notað rafmagnið á betri veg?" Það bætir ekki úr skák, að tveir, þeldökkir unglingar 18 ára, sitja í sömu deild fangelsisins. Þeir voru dæmdir til dauða fyrir tveim árum, fyrir mjög ógeðsleg morð. Eða að tveir glæpamenn á unglingsárum eru dæmdir til dauða ( Chicago, sem er skammt frá Ohio. Þetta bendir allt til að glæpir unglinga séu að aukast. í Bandaríkjunum hefir yfirgangur alltaf átt sér stað, það eru aðeins aðferðirnar sem hafa breytzt. Ungl- ingaglæpir er orðið mjög þekkt orð. Og almenningur spyr: — Leysir maður nokkur vandamál með því að lífláta börn: Fred Esherick segir með rólegri og yfirvegaðri rödd: — Bandaríkin stæra sig af því að vera stærsta lýðveldi í heimi . . . en Framhald á bls. 28. 19. tbi. VIKAN 25

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.